Borgaraþing í Frakklandi: félagsleg nýsköpun á óvissutímum

Frakkland hefur komist í fréttir nýlega eftir að mótmæli og óeirðir brutust út víða um land. En langt frá myndavélum stórmiðlanna gerast líka góðir hlutir. Fyrir nokkrum vikum hófst borgaraþing sem hefur það að markmiði að gera Frökkum kleift að sameinast um framtíðarsýn. Borgaraþingið samanstendur af 150 þátttakendum sem voru valdir með slembiúrtaki og endurspegla franskt samfélag í allri sinni fjölbreytni. Borgararnir þurfa nú að bretta upp ermarnar. Verkefni þeirra? Að ná samstöðu um þær stóru samfélagslegu áskoranir sem hafa verið látnar sitja á hakanum allt of lengi. Tillögur þingsins verða kynntar í febrúar og skipuleggjendur vonast til að þær geti haft áhrif á komandi kosningabaráttu. Loftslags- og auðlindamál eru ráðandi þáttur í þeim áskorunum sem hópurinn þarf að glíma við.
Blaðamaður Umskipta fylgist náið með borgaraþinginu og kjaftar frá öllu því sem gerðist þar.

„Jæja, eigum við að drífa í þessu? Við megum engan tíma missa!“
Klukkan er aðeins hálf níu að morgni þennan laugardag, 19. september, en Isabelle, með kaffibolla í hendi, iðar af spenningi. Hún býr í 3000 manna bæ sunnan við Lyon, mætti til Parísar daginn áður og býr sig nú undir það að taka þátt í fyrstu lotu borgaraþingsins ásamt 149 öðrum borgurum sem valdir voru með slembivali alls staðar að úr Frakklandi. Isabelle er 56 ára athafnakona og starfar við kaup og endursölu á notuðum efnafræðibúnaði. „Þegar ég fékk símtalið var ég svolítið þurr á manninn. Ég hélt, eins og margir, að þetta væri eitthvað svindl. Ég velti ýmsu fyrir mér áður en ég þáði boðið, en ég er himinlifandi að vera hér,“ segir hún.

Nokkrum metrum frá henni stendur Koffi, 40 ára, með vel hnýtt bindi og í fínum bláum jakkafötum. Hann hikaði ekki við að ferðast 7.000 kílómetra leið frá Frönsku Gvæjana að höfuðborginni. Hann er kennari í hagfræði og rekstrarstjórnun við iðnmenntaskóla og hreifst samstundist af „ópólitískri vídd verkefnisins“. Hann vonast til þess að þingið verði „tækifæri til að koma rödd og málefnum Frönsku Gvæjana á framfæri“. Shaïma, 25 ára nemandi í taugavísindum frá Nantes, fylgist með þessu öllu, örlítið til hliðar. „Málefnin sem við ætlum að taka fyrir heilla mig en ég velti því fyrir mér hvort ég eigi í raun erindi í þessar umræður.“

„Getum við enn vonast til að fá allt?“ spurði verkfræðingurinn og meðlimur Loftslagsráðs Jean-Marc Jancovici í opnunarerindi sínu. Jancovici er upphafsmaður borgaraþingsins.

Heimurinn eins og hann er

Samfélög munu alltaf þurfa á sérfræðingum og vísindamönnum að halda til að lýsa heiminum eins og hann er. Skilningur á því hvernig hlutirnir virka er ómissandi forsenda þess að byggja hús sem standast óveður eða finna nýtt bóluefni. En vísindin þjóna ekki aðeins þeim tilgangi að finna upp nýja tækni. Þau geta einnig fengið okkur til að skynja ósýnilega áhættu, ýmist sem einstaklingar (til dæmis í tilfelli reykinga) eða sem samfélag (til dæmis í tilfelli ofnýtingar á fiskistofnum eða breytinga á loftslagi).

Þegar þekkingin varpar ljósi á nýja áhættu eða þolmörk stillir hún okkur stundum upp við vegg. Við stöndum þá frammi fyrir ástandi þar sem ómögulegt verður að vinna á öllum vígstöðvum – eða halda í það sem við tökum sem sjálfsagðan hlut án þess að það komi okkur í bakið síðar.

Hvað er þá til ráða? Vísindalegur sannleikur einn og sér nægir ekki lengur til að vísa veginn. Lífsgildi og tilfinningar koma einnig við sögu. Og þar sem þau eru einstaklingsbundin er enginn heilagur sannleikur: aðeins rökræður og samningar geta gert okkur kleift að ná samkomulagi. Borgaraþing eru vettvangur fyrir slíkar rökræður þar sem ólíkir hópar geta fengið rödd óháð efnahag, félagslegri stöðu eða bakgrunni og án þess að rökræðurnar detti í hefðbundnar pólitískar skotgrafir og málþóf af ýmsu tagi.

150 meðlimir þingsins voru valdir með slembivali og með það að markmiði að hópurinn endurspegli fjölbreytni samfélagsins hvað varðar kyn, aldur, búsetu, menntun og atvinnu.

Getum við enn vonast til að fá allt?

„Getum við enn vonast til að fá allt sem við þráum á 21. öldinni?“ Þetta er titill opnunarerindis sem Jean-Marc Jancovici, upphafsmaður borgaraþingsins, flytur á fyrstu stundum þingsins í kyrrlátum fyrirlestrarsalnum. Jancovici er gamalreyndur og þjóðþekktur verkfræðingur, kennari, vísindamiðlari og meðlimur Loftslagsráðs. Hann hefur skrifað og gefið út ýmsar bækur um orku- og loftslagsmál, meðal annars teiknimyndabók sem fjallar um málin á aðgengilegan hátt og með töluverða kímnigáfu árið 2021, Heimur sem ekki endar. Verkið var mest selda bókin í Frakklandi árið 2022 og hefur verið þýtt á mörgum tungumálum.

Þessi stóra spurning Jancovici verður útfærð í sex mismunandi álitamál sem þingið mun taka fyrir yfir sex helgar, frá september 2026 til febrúar 2027. Dæmi um álitamál sem nefnd eru: Getum við haldið loftinu hreinu samhliða óheftu ferðafrelsi? Getum við fengið matvæli sem eru í senn umhverfisvæn, innlend og ódýr? Hópnum er ætlað að komast yfir mótsagnarkenndar kröfur og einfeldningslegar lausnir. „Við hverju flóknu vandamáli er til einföld lausn… sem virkar ekki,“ segir Thierry Lhermitte, þjóðþekktur gamanleikari sem kom til að styðja verkefnið og uppsker hlátur í salnum.

Sérfræðingar til stuðnings, en í farþegasætinu

Til að hjálpa borgurunum að byggja tillögur sínar á sameiginlegum þekkingargrunni tóku nokkrir sérfræðingar til máls á fyrstu helgi þingsins. Þeim er falið að leggja fram staðreyndir um stór viðfangsefni á borð við efnahagsmál, auðlindastjórnun og loftslagsmál. „Þróun loftslagsins mun ráðast af því sem við gerum. Þetta eru spurningar um réttlæti, rökræður og lýðræði. Þess vegna skiptir rödd ykkar raunverulega máli,“ segir meðal annars Valérie Masson-Delmotte, loftslagsfræðingur og meðlimur í Loftslagsráði (Haut Conseil pour le climat).

Marie, 49 ára, umsjónarmaður hjá samtökum sem sinna heimaþjónustu í Sète í Suður-Frakklandi, er sérstaklega umhugað um loftslagsmálin. „Sumarið sem við vorum að ganga í gegnum var hörmulegt. Það voru miklar þjáningar bæði hjá starfsfólkinu og eldri borgurum. Innandyra fór hitinn allt upp í 39 gráður í byggingum sem eru ekki einangraðar. Það vekur auðvitað spurningar um hvað verður um okkur öll.“

Erindin voru ítarleg og full af alls kyns tölfræði, sem kom sumum borgurum úr jafnvægi. Maximilian, 23 ára, er frá Grenoble og starfar hjá McDonald’s. „Fyrir mig var ekki endilega auðvelt að halda einbeitingunni með allar þessar stóru spurningar. Þetta er krefjandi en ég held ótrauður áfram!“ segir ungi maðurinn. Sophie, sem starfar hjá ráðgjafarstofu sem var fengin til að stýra fundum þingsins, reynir strax að róa leikinn. „Þótt þið skiljið ekki allt sem hefur verið sagt þýðir það ekki að þið eigið ekki fullt erindi hingað. Ykkur á ekki að finnast að þið þurfið öll að vita allt. Þið eruð með 150 heilar og hugmyndin er að vinna í þágu almannahagsmuna.“

Eftir hvert erindi sérfræðings fylgja umræður í litlum hópum svo borgararnir fái tækifæri til að setja fram sameiginlegar spurningar. „Það snertir mig djúpt að sjá alla þessa borgara saman komna á sunnudagsmorgni til að reyna að skilja hvernig fjárlögin og opinber fjármál virka. Spurningar þeirra voru mjög viðeigandi og það vakti hjá mér gríðarlega von um lýðræðið okkar,“ segir Selma Mahfouz hagfræðingur.


„Hefði gjarnan borgað til að fá að vera hér“

Jean-Marc Jancovici upphafsmaður borgaraþingsins ræðir við meðlimi.

„Hvaða tryggingu höfum við fyrir því að rödd okkar heyrist og hafi áhrif á forsetakosningarnar?“ spyr einn meðlimur eftir kynningu á verkefninu. „Enga,“ svarar Jancovici hreinskilinn. Mörgum kemur til hugar borgaraþing um loftslagsmál sem var haldið að frumkvæði Macron árið 2020 og endaði með því að flestum tillögum var stungið í skúffu. Í þetta skiptið er borgaraþingið óháð öllum stjórnmálasamtökum og Jancovici vonast til að með nægilegum stuðningi frá samfélaginu geti þingið haft áhrif.

Ólíkt því sem hefur tíðkast hjá öðrum borgaraþingum fá meðlimir þingsins töluvert frjálsræði þegar kemur að því að velja málefni til að fjalla um. Í upphafi fengu borgararnir 14 málefni til að velja úr og gátu þar að auki lagt fram tillögur að öðrum málefnum. Að lokum urðu 6 málefni fyrir valinu og eru öll í formi „áskorana“, það er að segja að borgararnir þurfa að forgangsraða í málum þar sem ekki verður bæði sleppt og haldið.

Hópfjármögnunarherferð var hleypt af stokkunum í ágúst og þar er öllum boðið að gefa eina táknræna evru til verkefnisins til að lýsa yfir stuðningi við framtakið. Yfir 270.000 Frakkar hafa nú þegar gerst stuðningsaðilar. Vefsíða á vegum verkefnisins (uncommunaccord.fr) á að gera öllum kleift að fylgjast með umræðunum og leggja sitt af mörkum. „Það var ekki fyrr en ég kom hingað sem ég áttaði mig virkilega á hversu mikla hvatningu við fáum frá almenningi. 270.000 manns, það setur svolitla pressu á mann en það fær mann líka til að bretta upp ermarnar,“ segir Ludivine, 26 ára, sem sér um reikningagerð hjá byggingafyrirtæki í litlum bæ sunnan við París.

Þann 10. október hófst önnur vinnulota borgaraþingsins. „Ég hefði gjarnan borgað til að fá að vera hér hefði ég ekki verið valinn, ég svo ánægður með að fá að taka þátt,“ segir Ferdinand, 18 ára nemi í stjórnmálafræði og líffræði. Sabrina, fasteignasali í Marseille, er himinlifandi eftir að hafa rekist aftur á Nicole, sem hún kynntist í fyrstu lotunni. Þær hafa verið að skiptast á skilaboðum á milli lotanna.

„Forfeður okkar kunnu þetta miklu betur“

Í upphafi annarrar lotu hlýða borgararnir á lokafyrirlestur Marc-André Selosse, prófessors við Muséum national d’Histoire naturelle (Náttúrugripasafn Frakklands). Selosse ræðir þær áskoranir sem tengjast líffjölbreytni. „Þið eruð saumuð úr líffjölbreytni en þið sjáið það ekki,“ segir líffræðingurinn kíminn og bendir á að minnst 10% af erfðafræðilegri fjölbreytni lifandi tegunda sé þegar horfin. „Þetta er ekki kreppa líffjölbreytninnar, heldur útrýming hennar, og hún gerist á ógnarhraða. Á mælikvarða mannsins er staðan grafalvarleg,“ áréttar fræðimaðurinn. Hann uppsker dynjandi lófatak að fyrirlestrinum loknum. „Hann heillaði okkur með því að ræða um hluti sem varða okkur öll, þetta var ótrúlegt,“ segir Adrien, 19 ára nemi í samningatækni frá Suður-Frakklandi.

Líffræðingurinn Marc-André Selosse flutti líflegt erindi um líffjölbreytni og útrýmingu hennar. Flókið málefni og dauðands alvara en engu að síður hlaut Selosse standandi lófatak.

Catherine gengur hins vegar út úr fyrirlestrasalnum í miklu uppnámi og á erfitt með að halda aftur af tárunum. „Ég er dóttir bónda. Forfeður okkar fyrir fimmtíu árum kunnu þetta miklu betur eftir allt saman. Að sjá þennan jarðveg í dag eyðileggjast með tilbúnum áburði og eiturefnum í nafni framleiðni og gróða, ég er algjörlega orðlaus,“ segir hún. Orð líffræðingsins bergmála líka hjá Véronique, 58 ára skrifstofukonu sem bjó lengi í sveitinni en flutti síðan til borgarinnar Antibes við suðurströnd Frakklands. „Síðan ég fór að búa lokuð inni milli fjögurra veggja er þetta eins og stöðug barátta við sjálfa mig, því ég finn líkamlega þörf fyrir snertingu við náttúruna.“

Það sem eftir lifir helgarinnar er varið í að kanna áskoranirnar sex sem urðu fyrir valinu. Fyrir hverja þeirra fá þátttakendur stutta kynningu á nokkrum tölulegum staðreyndum. Síðan reyna þeir að taka afstöðu hver fyrir sig, áður en málin eru rædd sameiginlega í sex manna hópum. Ákafar umræður fara fram milli þátttakenda en ýmist heyrast hlátursköst, reiðilestur eða ágreiningur:

„Það þýðir ekki að rækta maís í Frakklandi, þetta er hitabeltisplanta!“
„Daginn sem bíllinn var tekinn af mér leið mér eins og ég væri dauður.“
„Ég sé ekki af hverju ég ætti að neita mér um sundlaugina mína!“
„Það er ekki hægt að rækta án skordýraeiturs.“
„Þegar vatnið klárast erum við öll búin að vera!“
„Gervigreind mun aldrei geta unnið starf bænda.“ –„Jú, víst!“ svarar borðið einum rómi.

Umræðurnar endurspegla fjölbreytileikann innan hópsins. Örfáir þátttakendur ganga út af fundinum „mjög pirraðir út í borðfélaga sína“, en mikill meirihluti talar um að borðfélagar hafi hlustað af virðingu og séu færir um að halda vitrænar rökræður.

Spjallað í sólinni í hádegishléinu.

Borgaraþingið í Frakklandi stendur yfir fram í febrúar en þá verða tillögur þingsins kynntar í frönskum fjölmiðlum. Fleiri fréttir af þinginu munu birtast í næstu tölublöðum Umskipta og lesendur eru hvattir til að fylgjast með!