Evrópa: loftslagshamfarir banka á hurðina

Truflanir á raforkuframleiðslu, aflýstar lestarferðir, vatnsskortur, uppskerubrestur, dauðsföll hjá húsdýrum og skógareldar á áður óþekktum skala ‒ á meginlandi Evrópu er hlýnun af völdum loftslagsbreytinga tvöfalt hraðari en meðaltalið í heiminum og veðuröfgar leggjast nú þegar af fullum þunga á mörg Evrópuríki.
Tími afneitunar er liðinn en erfitt reynist að sammælast um aðgerðir.

Rúmenski sjóherinn sprengir kletta í Bala-skipaskurðinum til að beina vatnsrennsli Dónár í átt að Cernavoda-kjarnorkuverinu þann 3. ágúst 2026.

Það er flestum Evrópubúum orðið ljóst að loftslagsbreytingar eru ekki lengur fjarlæg framtíðarógn heldur nú þegar orðnar veruleiki nútímans. Náttúruhamfarir farnar að banka rækilega á dyrnar og sumarið 2026 stefnir í að vera eitt það versta í mannaminnum, ef ekki það versta. Á heimsvísu er hlýnun nú þegar komin rétt undir 1,5°C en í Evrópu er hlýnunin tvöfalt hraðari en meðaltalið á heimsvísu.

Síðan í lok maí hafa hitabylgjur komið á færibandi og hitametin fallið hvert eftir annað. Þetta öfgaveður kom sumum í opna skjöldu en frá sjónarhorni loftslagsvísinda er þetta allt samkvæmt áætlun, enda höfðu vísindamenn löngu varað við því að loftslagsbreytingar myndu meðal annars leiða til þess að hitabylgjur yrðu í senn fleiri, lengri og svæsnari eftir því sem tíminn liði og magn koltvísýrings í andrúmsloftinu héldi áfram að aukast.

Töluvert hefur verið fjallað um hitabylgjur í íslenskum fjölmiðlum en sú umfjöllun er oft einhliða og ofureinfölduð. Mest er fjallað um þau líkamlegu óþægindi sem hitinn veldur og gjarnan birtar myndir af íbúum að kæla sig við gosbrunna eða að stinga sér til sunds, eins og hitabylgja sé fyrst og fremst tilefni til skemmtunar.

Af og til er minnst á það að hitinn getur vissulega drepið. Hitabylgjan í lok júní hefur nú þegar valdið um 10.000 umframdauðsföllum í allri Evrópu en heildartalan fyrir sumarið 2026 á eftir að koma í ljós og verður væntanlega mun hærri. Umframdauðsföll eru þó aðeins ein af mörgum afleiðingum hitabylgna og ef til vill ekki sú alvarlegasta þegar á hólminn er komið. Hér verður farið yfir ýmis önnur alvarleg vandamál sem hitabylgjur fela í sér fyrir samfélög manna.

Bilanir í raforkukerfi og truflanir á raforkuframleiðslu

Frakkland er eitt þeirra Evrópulanda þar sem hitinn hefur verið hvað mestur. Síðan í lok maí hafa nú þegar orðið fjórar hitabylgjur. Í París er hitinn farinn að valda bilunum í raforkukerfi. Þær bilanir stafa af því að þegar hitastigið fer yfir ákveðin mörk marga daga í röð byrjar hitinn að safnast neðanjarðar þar sem raflagnir eru grafnar og getur náð allt að 80 gráðum. Sumar raflagnir af eldri kynslóðum eru ekki hannaðar til að þola slíkan hita og flutningskerfið bilar. Á tímabilinu 25. júní til 7. júlí urðu 250 bilanir vegna ofhitnunar sem leiddu til rafmagnsleysis hjá um 6000 heimilum.

Enedis, fyrirtæki sem sér um raforkuflutning fyrir íbúa og fyrirtæki í París, mun þurfa að fjárfesta 1,3 milljarða evra á ári í endurnýjun á lögnum og búnaði til að aðlaga raforkukerfið að loftslagsbreytingum á næstu áratugum.

Raforkuframleiðsla getur líka orðið fyrir barðinu á hitabylgjum. Ýmis orkuver sem reiða sig á vatn úr ám til að kæla sig geta lent í vandræðum (kjarnorkuver en einnig gas- eða kolaorkuver). Samkvæmt regluverki sem er ætlað að vernda dýralíf í ám mega orkuver ekki losa sig við heitt vatn ef hitastigið í ánni fer yfir ákveðin mörk. Þetta þýðir að viðkomandi kjarnorkuver geta þurft að draga úr framleiðslu sinni eða hætta henni alveg á meðan á hitabylgjunni stendur. Einnig getur gerst að vatnsflæðið í ánni sé einfaldlega ekki nægilegt miðað við þörf orkuversins.

Þetta gerðist einmitt um miðjan júlí þegar Frakkland þurfti að stöðva raforkuframleiðslu hjá þremur kjarnorkuofnum. Í Ungverjalandi hafa yfirvöld sömuleiðis neyðst til að stöðva raforkuframleiðslu hjá eina kjarnorkuveri landsins eftir að vatnsborð Dánár náði sögulegu lágmarki vegna þurrka og hita, en orkuverið skaffar um 40% af raforkunni í Búdapest, höfuðborg Ungverjalands.

Truflanir í lestar- og skipasamgöngum

Við háan hita á járnið í lestarteinunum til að þenjast út og járnbrautirnar geta skekkst af þeim sökum. Til að forðast slys sem þetta getur valdið neyðast lestarfyrirtæki til að fresta eða aflýsa sumum lestarferðum. Loftlínur fyrir ofan brautirnar geta líka þanist út óvenjulega mikið og fara þá að lafa niður, sem getur sömuleiðis valdið bilunum og slysum. Í Frakklandi var einni af hverjum 4 lestarferðum aflýst af þessum sökum í hitabylgjunni sem reið yfir í lok júní.

Járnbrautir beyglast, loftlínur lafa niður, eldri lestir án loftkælingar: víða í Frakklandi hefur þurft að aflýsa lestarferðir vegna ofsahita.

Hér þurfa fyrirtæki einnig að fjárfesta í aðlögun þar sem það er hægt, en slíkt getur reynst kostnaðarsamt. Lestarfyrirtækið Eurostar, sem rekur lestarferðir milli Frakklands, Bretlands og Hollands, pantaði nýjar lestir fyrir nokkru. Fyrst um sinn átti að hanna lestirnar til að þola 45 stiga hita en fyrirtækið neyddist til að uppfæra pöntunina og gerir nú kröfu um lestir sem geta þolað allt að 55 stiga hita.

Ýmsar Evrópuþjóðir hafa lengi getað notið þess að nota stórfljót sem renna í gegnum álfuna sem náttúrulegar flutningsleiðir til að flytja vörur og farþega. En hiti og þurrkur eru farnir að valda því að vatnsborðið lækkar og vatnið verður of grunnt til þess að hægt sé að sigla eðlilega á stærstu skipunum. Þetta veldur því að skip neyðast til að taka minni farm eða hætta jafnvel við að sigla, með tilheyrandi raski á framleiðslukeðjum og efnahagslegu tjóni. Þegar þessi grein er skrifuð hafa stór þýsk fyrirtæki á borð við BASF nú þegar neyðst til að draga úr framleiðslu sinni vegna röskunar á skipaumferð á Rínfljótinu. Ferðaþjónustan verður líka fyrir barðinu á þessu fyrirbæri þar sem mörgum skemmtisiglingum hefur verið aflýst.

Dauðsföll hjá húsdýrum og uppskerubrestur

Í mörgum tilfellum geta íbúar varið sig gegn verstu óþægindum með því að setja upp loftkælikerfi í heimahúsum, á skrifstofum, í skólum og öðrum stofnunum. Annað gildir um húsdýr: það yrði afar kostnaðarsamt og jafnvel ómögulegt að koma því í hring að kýr, svín, alifuglar og önnur húsdýr hefðu aðgang að loftkælingu. En dýrin þjást líka í hitanum og alifuglar eru sérstaklega viðkvæmir fyrir hitabylgjum. Það sem af er sumri hafa yfir 5 milljónir hænsna drepist vegna hita í Frakklandi eingöngu. Á einu búi drápust um 10.000 kjúklingar á einni nóttu.

Í hitabylgjunni sem reið yfir Frakkalnd í lok júní drápust allt að 3 milljónum alifugla. Á sumum svæðum fór hitinn allt upp í 44°C en hæsni þola illa hitastig yfir 40°C og ógjörningur er fyrir bændur að loftkæla heilu kjúklingabúin.

Mjólkurkýr eru líka viðkvæmar fyrir hita og þótt minna hafi orðið um dauðsföll hjá þeim er ljóst að hitinn getur haft mjög neikvæð áhrif á mjólkurframleiðsluna. Þegar hitinn fer yfir 30 gráður þurfa kýr að nota meiri orku til að stjórna eigin líkamshita og mjólkurframleiðslan getur dregist saman um 30%. Við enn hærra hitastig getur framleiðslan stöðvast að fullu.

Matjurtarækt er einnig viðkvæm fyrir hita og þurrkum. Ein af þeim matjurtum sem mest er ræktað af í heiminum er maís, en búfræðingar telja að fyrir hvert hitastig hlýnunar á heimsvísu dragist framleiðni maísræktar saman um 7%. Þegar hiti fer yfir 30 gráður byrjar að hægja á vexti maísplöntunnar og ef hitinn fer yfir 35 gráður á meðan á blómgun stendur getur frjókornið „grillast“, eins og það er kallað, en þá er einfaldlega úti um uppskeruna.

Þar að auki eykur hiti uppgufun sem verður til þess að víða í Evrópu glíma bændur við alvarlegan vatnsskort. Margir þeirra lýsa mjög erfiðum aðstæðum og óttast uppskerubrest, þótt enn sé of snemmt að segja til um hvaða áhrif hitabylgjurnar munu hafa á uppskeru. Í lok júlí var þó talið að hitabylgjur hefðu nú þegar valdið skaða upp á tvo milljarða evra hjá evrópskum kornbændum. Þá hafa bændasamtök í Bretlandi varað við mögulegum skorti á matvælum miðað við áframhaldandi hita og þurrka.

Skógardauði og skógareldar

Skógar eru nú þegar að veikjast víða í Evrópu undir álagi hita, þurrka og sjúkdóma. Í Frakklandi er talið að miðað við 2°C hlýnun gætu 50% af skógum landsins drepist á næstu áratugum. Það er sérstaklega óheppilegur vítahringur þar sem víða gera áætlanir um samdrátt í losun ráð fyrir að skógarnir muni hjálpa til við að ná kolefnishlutleysi (heilbrigð tré sem eru í vexti geta bundið mikið magn kolefnis).

Frakkland er nú að upplifa skógarelda á áður óþekktum skala. Í Gironde-héraði í Suðvestur-Frakklandi hafa 42.000 hektarar orðið eldinum að bráð og 30.000 manns hafa neyðst til að yfirgefa svæðið (sumir íbúar og aðrir ferðamenn í fríi). Þar að auki hafa 2000 hektarar brunnið í hinum sögulega Fontainebleau-skógi rétt fyrir utan París.

Í Frakklandi og á Spáni hafa 265.000 hektarar af landi brunnið til kaldra kola það sem af er ári. Það er svæði á stærð við allt höfuðborgarsvæðið auk Reykjanesskagans. Í þeim eldum hafa fleiri hundruð byggingar eyðilagst auk þess sem eldarnir hafa valdið mikilli loftmengun og munu koma illa niður á ferðaþjónustu og ýmissi annarri atvinnustarfsemi á svæðinu.

“Sandur, sjór, og blár himinn” var ferðamönnum lofað við vesturströnd Frakklands rétt við Bordeaux. Í stað þess fengu þeir heimsendaútsýni eftir að eldur kviknaði. Það sem af er árinu hafa 120.000 hektarar af gróðri brennt í Frakklandi (24 sinnum flatarmál Reykjavíkur or nágrenni) og 30.000 manns hefur verið gert að yfirgefa heimili sín

Aðlögun eða kapphlaup til helvítis?

Viðbrögð stjórnvalda við aukinni tíðni hitabylgna í Evrópu og víða er að leggja aukna áherslu á aðlögun. Slík aðlögun er nauðsynleg en getur um leið breyst í einhvers konar vítahring. Loftkæling er dæmi um slíkan vítahring. Í sumum löndum er raforkuframleiðsla að mestu leyti laus við notkun jarðefnaeldsneytis (Frakkland og Ísland til dæmis), en í öðrum er hún enn knúin áfram að hluta af brennslu slíks eldsneytis. Aukin notkun á loftkælingu leiðir til aukinnar eftirspurnar eftir raforku, sem leiðir aftur til enn frekari brennslu jarðefnaeldsneytis. Aðlögun breytist þá í einhvers konar „kapphlaup til helvítis“. Þar að auki felur loftkæling í sér aðra alvarlega hliðarverkun í stórborgum: hún flytur hitann út úr byggingum og inn á götuna, með þeim afleiðingum að hitinn úti á götu verður enn óbærilegri.

Vítahringur getur líka farið af stað þegar kjarnorkuver neyðast til að hætta framleiðslu og flutningaskip hætta að sigla, til dæmis ef „aðlögunin“ felst í því að skipta út kjarnorku fyrir gas- eða kolaorkuver og að skipta út skipum fyrir vörubíla (flutningabílar eyða mun meira eldsneyti en skip til að flytja vöru um sömu vegalengd).

Þar að auki er aukin tíðni skógarelda vítahringur í sjálfu sér, sem við höfum nánast enga stjórn á: þegar skógur brennur veldur brennslan gríðarlegri losun koltvísýrings auk þess sem skógurinn hættir að binda kolefni.

Verðbólga og atvinnuleysi

Truflanir á orkuframleiðslu, samgöngum og vöruflutningum, vatnsskortur, uppskerubrestur, skógardauði, tjón á byggingum og öðrum innviðum: Það er ljóst að hitabylgjur eru miklu stærra vandamál en svo að þær snúist eingöngu um tímabundin líkamleg óþægindi, og að vandinn verður ekki leystur með því að kveikja á loftkælingunni einni. Tjónið mun leggjast á hagkerfið í heild sinni af fullum þunga, í formi ýmissa áfalla og með tilheyrandi verðbólgu og atvinnuleysi. Sú verðbólga er nú þegar orðin veruleiki. Hún mun óhjákvæmilega aukast í framtíðinni og smitast til Íslands, en fyrirbærið hefur gjarnan verið kallað „climateflation“ eða „loftslagsverðbólga“.

Lengi vel höfum við litið svo á að umhverfismál séu eitthvað aukaatriði, eitthvað sem nægir að huga að þegar við höfum ekkert betra að gera, eftir að við erum búin að leysa „mikilvæg mál“ svo sem efnahagsmál, verðbólgu og annað þvíumlíkt. Náttúruöflin eru hins vegar að minna okkur á að það að búa við stöðugt umhverfi sem er í þokkalegu ástandi er forsenda þess að geta tryggt efnahagslegan stöðugleika, fyrirsjáanleika, öryggi og sæmileg lífsgæði handa sem flestum borgurum.