Kastljós RÚV: Afneitun í sparifötum?

Ítarleg úttekt á fréttaskýringum Kastljóss á líðandi ári sýnir að umræða um loftslagsmál og aðrar umhverfisógnir er hverfandi hluti af heildinni og bendir til kerfisbundinnar vanþekkingar og metnaðarleysis. Þrátt fyrir einróma álit vísindamanna um að vistkreppan sé mesta ógn sem samfélög nútímans standa frammi fyrir fjölluðu aðeins 1% af öllum fréttaskýringum þáttarins um áhrif loftslagsbreytinga á íslenskt samfélag. Aðeins um 0,8% fréttaskýringa fjölluðu um loftslagslausnir á meðan 3,5% fjölluðu um gervigreind og 8,5% um málefni barna og unglinga. Fréttaskýringar um slátturóbóta í heimagörðum, karla í skúrum og bresku konungsfjölskylduna fengu til samans meira pláss en umfjöllun um loftslagsaðgerðir. Þá er umfjöllun um önnur samfélagsmál ekki sett í samhengi við loftslags- og auðlindamál og styður gjarnan við óbreytt ástand.

Samkvæmt vefsíðu RÚV er Kastljósinu lýst sem „lifandi og fjölbreyttum þætti um fréttir, menningu og dægurmál“. Þættirnir eru um 30 mínútur að lengd en í hverjum þætti eru að jafnaði 1 til 3 fréttaskýringar. Flestar þeirra fjalla um menningu (25%) en næstflestar um stjórnmál (17,5%) og ýmis samfélagsleg málefni svo sem málefni barna og unglinga (8,5%), heilbrigðismál (6,5%) og efnahagsmál (6,5%). Á tímabilinu 1. janúar til 21. október voru sýndir 115 þættir með alls 266 fréttaskýringum. Úttekt blaðamanns sýnir að aðeins tvær þeirra fjölluðu með beinum hætti um lausnir á loftslagsvandanum.


Loftslagslausnir nærri ósýnilegar og vanmáttartilfinningu gefið undir fótinn

Í annarri af þessum tveimur fréttaskýringum er fjallað um líftæknikjöt sem lausn til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá landbúnaði en ekki um einfaldari lausnir sem hægt væri að grípa til strax, svo sem með því að draga úr kjötframleiðslu og auka framleiðslu á prótínum úr jurtaríkinu. Í hinni fréttaskýringunni er fjallað um orkuskipti hjá bílaleigum landsins. Þótt umfjöllunin í þeim þætti sé að sumu leyti ágæt er viðmælandi látinn komast upp með afar villandi málflutning án þess að þáttastjórnandi sjái ástæðu til að leiðrétta hann (viðmælandinn fullyrðir meðal annars að Ísland sé „eitt umhverfisvænasta land veraldar“ þvert á allar staðreyndir málsins eins og fjallað var um í síðasta tölublaði Umskipta).

Á tímabilinu voru einnig fluttar 3 fréttaskýringar um loftslagsvandann en þar eru engar lausnir kynntar til sögunnar heldur fyrst og fremst lögð áhersla á „frekari rannsóknir“ og „aðlögun“. Í umfjöllun um mögulega stöðvun AMOC-veltihringrásarinnar þann 27. apríl nefnir viðmælandi að draga þurfi úr losun án þess að útskýra það nánar og bætir við um leið að það væri „óábyrgt að vera með dómsdagsspár“. Hinn viðmælandinn telur að fyrst og fremst þurfi að „rannsaka meira og safna meira af gögnum“.

Í öðrum Kastljósþætti sem sýndur var í september er fjallað um El Nino og mögulegan skaða af völdum hans á komandi mánuðum. Þar eru aðgerðir til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda heldur ekki nefndar. Þáttastjórnandi gefur í skyn að Íslendingar geti lítið gert þar sem þeir séu „fámenn þjóð“ sem geti „kannski ekki tæklað þetta með jafn kröftugum hætti og aðrir“. Viðmælandi leggur áherslu á að það sé „hlutverk stjórnvalda“ að aðhafast í málinu og gefur þannig í skyn að almenningur geti ekki eða þurfi ekki að aðhafast neitt sérstaklega.

Wolfgang Blau, blaðamaður og einn af stofnendum Oxford Climate Journalism Network (OCJN), er einn af fjölmörgum sem hafa ítrekað mikilvægi þess að blaðamenn bendi á lausnir til að koma í veg fyrir að neikvæðar fréttir valdi vanmáttartilfinningu. Hann segir margar rannsóknir sýna að borgarar séu líklegri til að meðtaka ógnvænlegar upplýsingar ef jafnframt er bent á leiðir til að bregðast við hættunni eða vandanum. „Meginskylda blaðamennsku er að sjálfsögðu að greina frá heiminum eins og hann er,“ segir Blau, „en ef það felur í sér að fjalla eingöngu um vandamál, ógnir og áhættu án þess að greina jafnframt frá því hvað hægt væri að gera til að takast á við þau, þá sinnir blaðamennskan ekki hlutverki sínu.“

Byggt á greiningu blaðamanns á 266 fréttaskýringum Kastljóss árið 2026

Umhverfisógnir neðarlega á forgangslistanum

Stór hluti þeirra 115 Kastljósþátta sem um ræðir fjallar um hinar ýmsu ógnir sem steðja að samfélaginu og ólíkum hópum innan þess. Töluvert er fjallað um möguleg neikvæð áhrif gervigreindar (9 fréttaskýringar) og neikvæð áhrif snjallsíma- og samfélagsmiðlanotkunar (5 fréttaskýringar). Þar á meðal er heil fréttaskýring tileinkuð umfjöllun um hvernig farsímar geti valdið truflunum á meðan á fæðingu stendur. Sömuleiðis fá afbrotamál og heilbrigðismál mikla umfjöllun (6 og 17 fréttaskýringar). Þá skýtur skökku við að málefni barna og unglinga eru einn sá flokkur sem fær hvað mesta umfjöllun (23 fréttaskýringar) án þess að minnst sé nokkru sinni á allar þær ógnir sem vistkreppan felur í sér fyrir framtíðarvelsæld barna og ungmenna. Hvernig er hægt að þykja vænt um börnin án þess að hafa áhyggjur af loftslagshamförum á framtíð þeirra?

Áhugaleysið á loftslagslausnum er einnig áberandi í viðtölum við æðstu ráðamenn, sem eru aldrei krafðir um skýringar á aukinni olíunotkun í hagkerfinu þrátt fyrir markmið um orkuskipti (+30% síðan 2014) eða minntir á aukningu í losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi þrátt fyrir markmið um kolefnishlutleysi (+13% síðan 2014). Í viðtali við Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra er rætt um olíuverðshækkanir og verðbólgu án þess að nefna orkuskipti eða aðgerðir til að draga úr olíuþörf. Í viðtali við Daða Má Kristófersson efnahagsráðherra er sömuleiðis rætt um „baráttuna við verðbólguna“ án þess að nefna langtímalausnir. Í viðtali við Loga Einarsson settan orkumálaráðherra er rætt um lokun Hormússunds og mögulegan olíuskort en heldur ekki spurt um langtímalausnir (aðeins talað um að auka neyðarbirgðir og forgangsraða olíunotkun tímabundið ef til skorts kemur).

Forsætisráðherra og efnahagsráðherra voru báðir fengnir í viðtöl. Hvorugur þeirra var spurður hvernig ætti að taka á loftslagsmálunum eða draga úr olíuþörf íslenska hagkerfisins, sem hefur aukist um 40% á aðeins 12 árum.

Plástursaðgerðir í forgrunni og auðlindakreppu lýst sem tímabundnu vandamáli

Eftir árásir á Íran og lokun Hormússunds hófst töluverð umfjöllun um hættuna á olíuskorti og áhrif olíuverðshækkana á íslenskan efnahag. Í umfjöllun Kastljóss er hins vegar aldrei minnst á þá staðreynd að hráolía er takmörkuð auðlind og að skorturinn er ekki eingöngu drifinn áfram af stríðsátökum heldur líka afleiðing af áratuga langri ofnýtingu, enda væri lokun Hormússunds ekki vandamál ef næg væri olían annars staðar í heiminum. Til að mynda hefur olíuframleiðsla í Norðursjó dregist saman um helming síðan 2000 (einföld staðreynd sem blaðamenn RÚV minnast aldrei á).

Með því að skilgreina olíukreppuna aðeins sem afleiðingu stríðsátaka frekar en birtingarmynd ofnýtingar er ýtt undir þá ranghugmynd að vandinn sé aðeins tímabundinn og kalli þar af leiðandi eingöngu á skammtímalausnir. Eins og í tilfelli loftslagsbreytinga er fjallað um olíukreppuna án þess að nefna langtímalausnir til að draga úr olíuþörf. Umfjöllunin umbreytist fljótt úr því að snúast um rót vandans (olíuskort) yfir í það að ræða um einkenni (verðbólgu) og plástursaðgerðir til að draga úr þeim einkennum. Vandinn er þá skilgreindur sem efnahagsleg áskorun sem þurfi að leysa ýmist með skattabreytingum, breyttri peningastefnu eða samráði milli aðila vinnumarkaðarins. Minnst sjö fréttaskýringar eru helgaðar umræðu um plástursaðgerðir á meðan aðeins ein fréttaskýring fjallar um langtímalausn til að draga úr olíuþörf (rafvæðing bílaleigna).

Í allri umfjölluninni um verðbólgu er aldrei minnst á að aðgerðir til að draga úr neikvæðum áhrifum olíuverðshækkana eru að stórum hluta þær sömu og aðgerðir sem miða að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda: breytt samgöngukerfi, orkuskipti, aukin innlend framleiðsla á nauðsynjavörum og minni notkun á innfluttum olíuafurðum. Í viðtali við hagfræðing þann 13. apríl er gefið í skyn að ekkert sé hægt að gera til að draga úr áhrifum olíuverðbólgu („hækkun sem við ráðum ekkert við“), að vandinn sé aðeins tímabundinn og að seinna verði aftur mögulegt að „sækja kjarabætur“. Sú bjartsýni virðist byggjast á þeirri trú að olíuauðlindin sé óþrjótandi.

Rauður þráður í allri umfjöllun Kastljóss um efnahagsmál og verðbólgu (17 fréttaskýringar) er að hagkerfið er aldrei sett í samhengi við undirliggjandi auðlindir. Sú nálgun ýtir undir þá ranghugmynd að hagkerfið sé aftengt náttúruauðlindum og þar af leiðandi að mögulegt sé að tryggja efnahagslega velgengni án þess að huga að umhverfismálum. Í viðtali við annan hagfræðing þann 20. maí er verðbólgunni lýst eingöngu sem efnahagslegu fyrirbæri sem er „voðalega erfitt að eiga við“ og í viðtali við Seðlabankastjóra þann 7. október er heldur ekkert rætt um leiðir til að draga úr olíuþörf hagkerfisins.

Rætt um verðbólguna í viðtali við Seðlabankastjóra í október. Hækkun olíuverðs á stóran þátt í verðbólguþróun undanfarna mánuði en engu að síður eru lausnir til að draga úr olíuþörf aldrei ræddar.

Við erum sem sagt dæmd til að búa við hagkerfi sem sveiflast eftir duttlungum hráolíumarkaðarins og eina ráðið við olíuverðbólgu er að fikta í stýrivöxtum og vona það besta. „Það eru vonandi bjartari tímar framundan?“ spyr þáttarstjórnandinn í lok viðtalsins við Seðlabankastjóra. „Ég er alltaf bjartsýnn,“ svarar hann. Í öðru viðtali er rætt við aðalhagfræðing Íslandsbanka. Þar er höggvið í sama knérunn og viðtalið endar á sömu nótum: „Mun ástandið batna?“ spyr þáttastjórnandi. „Já, að lokum.“

Þetta reddast allt á endanum, eins og allir vita…

Loftslagsvandinn ósýnilegur í umfjöllun um önnur mál:
Sýnishorn úr ýmsum Kastljósþáttum

Það versta í umfjöllun Kastljóss er ekki að finna í þeim þáttum sem fjalla með beinum hætti um loftslagsvandann heldur í umfjöllun um önnur málefni. Þar eru hin ýmsu málefni líðandi stundar sjaldan sett í samhengi við loftslagsmálin þrátt fyrir tengsl sem þyrftu að vera öllum ljós. Umfjöllun af þessu tagi sendir þau skilaboð að loftslagsvandinn sé í reynd ekki raunverulegur eða í besta falli algjört aukaatriði.

Hvorki meira né minna en 9 fréttaskýringar fjalla um gervigreind og 5 til viðbótar um aðra stafræna tækni. Sú tækni er hins vegar aldrei rædd út frá áhrifum hennar á loftslag og auðlindir, þrátt fyrir að kolefnisspor upplýsingatæknigeirans hafi á síðustu árum aukist hraðar en hjá nokkrum öðrum iðnaði (allt að 9% aukning á ári) og sé nú þegar orðið um 4% af allri hnattrænni losun, sem samsvarar losun frá öllum vörubílaflota heims. Þá gleypa gagnaver heimsins nú þegar 2-3% af raforkuframleiðslu heimsins. (Mynd: Viðtal við Sigríður Mogensen þann 12.01)

Í viðtali við Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra um fiskeldi er ekki minnst á loftslagsáhrif fiskeldis þrátt fyrir að framleiðsla á eldislaxi valdi 3-5 sinnum meiri losun en þorskveiðar miðað við sama magn af fiski (aðallega vegna fóðurframleiðslu). Í þremur öðrum fréttaskýringum um fiskeldi er heldur ekki minnst á þau áhrif.
27.01.2026

Í umfjöllun um efnahagsmál tekur þáttastjórnandi fram að Íslendingar hafi „aldrei farið í jafn margar utanlandsferðir“ og er það talið vera merki þess að „allt gangi vel“, þrátt fyrir að millilandaflugið sé þegar farið að valda tvöfalt meiri losun en samgöngur á landi og komi í veg fyrir að loftslagsmarkmið Íslands geti náðst.
3.02.2026

Í umfjöllun um kaupfíkn er aðeins rætt um neikvæðar afleiðingar hennar á einstaklinginn sem um ræðir, á meðan áhrif ofneyslu á loftslag og umhverfi eru hvergi nefnd (svo allrar sanngirni sé gætt var hins vegar sýnd ágætis umfjöllun um hraðtísku þar sem áhrif textíliðnaðarins á umhverfið eru í forgrunni og lausnir við vandanum kynntar til sögunnar, þótt loftslagsáhrifin hafi ekki verið nefnd sérstaklega í því samhengi).
26.02.2026

Í viðtali við Runólf Ólafsson framkvæmdastjóra FÍB er fjallað um lækkun kolefnisgjalds sem lausn á olíukreppunni án þess að spurt sé hvaða áhrif slík aðgerð kunni að hafa á loftslagsmarkmið eða hvort peningunum væri ekki betur varið í orkuskipti, eflingu almenningssamgangna eða aðrar langtímalausnir.
31.03.2026

Í umfjöllun um nýja byggingaraðferð sem notast við stál í stað timburs er aldrei spurt hvaða áhrif slík aðferð kunni að hafa á kolefnisspor bygginga, þrátt fyrir að stálframleiðsla sé einn losunarfrekasti iðnaður á heimsvísu (8% af allri losun CO₂ í heimi).
14.04.2026

Í umfjöllun um strætó er tekið viðtal við ungan mann sem býr í Norðlingaholti og þjálfar handbolta í Kórnum í Kópavogi. Ungi maðurinn heldur því fram að hann „neyðist“ til að keyra á milli vegna þess að strætóferðin sé of löng. Blaðakonan sér enga ástæðu til að nefna að leiðin er aðeins 4 kílómetrar eða 10-15 mínútur á reiðhjóli. Umfjöllunin ýtir þannig undir þá ranghugmynd að einkabíllinn sé nauðsyn svo lengi sem almenningssamgöngukerfið sé ekki fullkomið.
15.04.2026

Í umfjöllun um samgöngumál er ekkert minnst á áhrif samgangna á loftslag eða önnur umhverfisáhrif. Þáttastjórnandinn lýsir almenningssamgöngum aðeins sem lausn til að draga úr umferðartöfum en ekki sem lausn á loftslagsvandanum eða lausn til að draga úr olíuþörf. Aðspurður um lausnir virðist einn viðmælandi líta svo á að almenningssamgöngur séu fyrst og fremst góður kostur fyrir skólabörn („látum strætókort fylgja skráningargjöldum“) og nefnir varla samgönguhjólreiðar („það geta ekki allir verið á hjóli“) þrátt fyrir að um 80% borgarbúa búi í hjólafæri frá vinnu og stór hluti þeirra sem notast við einkabílinn segist gjarnan vilja nota annan samgöngumáta. Í öðrum þætti er tekið viðtal við innviðaráðherra og „stórsókn í samgöngumálum“ kynnt til sögunnar. Aldrei er spurt hvernig sú „stórsókn“ samrýmist loftslagsmarkmiðum eða hvernig hún geti hjálpað til við að draga úr olíuþörf.
04.05.2026

Í umfjöllun um ofþyngd á Íslandi er fjallað um lyfjagjöf sem lausn á vandanum á meðan breyttar samgönguvenjur eru ekki nefndar, þrátt fyrir ráðleggingar landlæknis um að fullorðnir ættu að hreyfa sig rösklega í minnst 150 mínútur á viku, sem er þar að auki mun ódýrari lausn fyrir heilbrigðiskerfið, dregur úr umferðartöfum og samrýmist loftslagsmarkmiðum mun betur.
30.04.2026

Í umfjöllun um heimsmeistaramótið í fótbolta harmar viðmælandi að miðaverð á leiki hafi hækkað með þeim afleiðingum að það verði erfiðara fyrir stuðningsmenn að fljúga yfir hálfan hnöttinn til að „bregða sér á stórmót“. Losun CO₂ frá flugsamgöngum hefur tvöfaldast á síðustu 30 árum á heimsvísu og þyrfti helst að dragast saman um minnst 5% á ári ef markmiðin úr Parísarsamkomulaginu eiga að nást. Engu að síður sér þáttastjórnandinn enga ástæðu til að gera athugasemd við málflutninginn. Viðmælandinn bætir við að „allt í einu er orðið fyrir útvalda að sækja fótboltaleik“ og virðist því þjást af forréttindablindu á háu stigi enda hafa flugferðir á íþróttaviðburði alltaf verið og munu alltaf vera „fyrir útvalda“ (80% mannkyns hefur aldrei stigið í flugvél, hvað þá flogið á fótboltaleik). Þáttastjórnandinn sér heldur enga ástæðu til að nefna að heimsmeistaramótið 2026 er það kolefnisfrekasta í sögu mótsins og muni valda losun upp á 7,8 milljónir tonn CO₂-ígilda, sem er meira en tvöfalt kolefnisspor heimsmeistaramótsins í Katar árið 2022.
11.06.2026

Í umfjöllun um Icelandair er rætt við Boga Nils Bogason forstjóra Icelandair: Þáttastjórnandinn viðrar ítrekað áhyggjur af stöðu fyrirtækisins eftir að hlutabréf í félaginu féllu um 20% (eins og blaðamönnum er lagið laumar hún eigin afstöðu inn í fullyrðingu um að „margir hafa lýst áhyggjum af stöðu Icelandair“). Henni virðist þykja sjálfsagt að ríkið kaupi í félaginu á kostnað skattborgara til að tryggja afkomu fyrirtækisins. Hún sér hins vegar enga ástæðu til að spyrja forstjkórann út í framtíðarsýn og aðgerðir fyrirtækisins til að draga úr losun frá starfsemi þess, þrátt fyrir að olíunotkun íslenska fluggeirans hafi aukist um 50% síðan Parísarsamkomulagið var undirritað árið 2015 og þrátt fyrir ítrekaðar ábendingar IPCC um mikilvægi þess að koma böndum á stöðuga aukningu í losun frá flugsamgöngum.
10.03.2026

Framtíðarspár sem afhjúpa afneitun

Það eru einkum tveir Kastljósþættir sem afhjúpa afneitun umsjónarmanna hvað best (eða kannski væri réttara að tala um „loftslagsblindu“). Þeir þættir fjalla um framtíðina með beinum hætti og þar sést glögglega að blaðamennirnir líta ekki svo á að loftslagsvandinn sé raunverulegur hluti af framtíðinni. Fyrri þátturinn var sýndur þann 7. janúar og inniheldur viðtal við Hjálmar Gíslason forstjóra GRID (titlaður „frumkvöðull“ í lýsingu RÚV). Í þættinum er reynt að svara spurningunni „fer heimurinn sífellt batnandi?“

Meginstef í málflutningi Hjálmars er að allt sé á réttri leið í heiminum og ekkert tilefni til annars en að líta framtíðina björtum augum. Helsta röksemdin er sú að fyrst hlutirnir hafi batnað síðustu 200 árin hljóti þeir að halda áfram að batna næstu ár og áratugi. Tækniframfarir muni halda ótrauðar áfram með tilheyrandi jákvæðum áhrifum á lífsgæði allra jarðarbúa (kannski fyrir utan þessa 6000 sem drápust nýlega eftir flóð í Nepal vegna bráðnunar jökla, og nokkra aðra sem gætu misst af lestinni óvart…). Málflutningur Hjálmars er lítið annað en kennslubókardæmi um samfelluvilluna (e. continuity bias) sem gerir ráð fyrir að framtíðin verði bein framlenging af fortíðinni. Blaðamenn RÚV virðast horfa fram hjá því að „frumkvöðlar“ eru ekki ónæmir fyrir óskhyggju frekar en aðrir – og kannski enn síður.

Hjálmar Gíslason forstjóri GRID telur allt vera á „réttri leið“ í heiminum og hvorki hann né þáttastjórnandinn sáu ástæðu til að nefna loftslagsbreytingar sem mögulegt áhyggjuefni (7. janúar 2026).

Ekkert bendir til annars en að þáttastjórnandinn taki að mestu leyti undir framtíðarsýn Hjálmars og enginn í upptökuverinu virðist hafa rænu til að velta fyrir sér hvort loftslagshamfarir og tilheyrandi uppskerubrestir, heimsfaraldrar, auðlindaskortur og hrun líffjölbreytni sem vísindamenn eru sífellt að vara við gætu mögulega aðeins sett strik í reikninginn í útópíu Hjálmars. Það er að minnsta kosti nokkuð augljóst að hvorki þáttastjórnandi né viðmælandi hafa kynnt sér síðustu loftslagsskýrslu Milliríkjanefndar um loftslagsbreytingar (IPCC) eða taka þá ekkert mark á henni.

Ódauðlegir á dauðri plánetu

Annar þátturinn sem fjallar einnig um framtíðina var sýndur þann 1. október undir fyrirsögninni „Lykillinn að langlífi“. Þar er spjallað við bandarískan sérfræðing í öldrunarlækningum sem vill meina að þökk sé framförum í læknisfræði verði hægt að koma í veg fyrir ýmsa sjúkdóma og lengja þannig lífslíkur jarðarbúa. Aðspurður um helstu þætti sem geta haft neikvæð áhrif á heilsu fólks í framtíðinni nefnir viðmælandinn hefðbundna áhættuþætti svo sem óhollt mataræði, reykingar og kyrrsetu. Í viðtali við annan viðmælanda í sama þætti lætur þáttastjórnandinn sig dreyma um að „lífslíkur verði orðnar 120 ár eftir 50 ár eða svo.“

Hér afhjúpast aftur hvernig bæði þáttastjórnandi og viðmælendur skauta algjörlega fram hjá vísindalegri þekkingu á áhrifum loftslagsbreytinga á heilsu manna. Það hefði þó dugað að lesa aðeins fyrstu línur úr sjöunda kafla í skýrslu IPCC um loftslagsbreytingar til að átta sig á því að blautir draumar um ódauðleika væru ekki sérlega raunhæfir miðað við óbreytt ástand:

„Loftslagstengdir sjúkdómar, ótímabær dauðsföll, vannæring í öllum sínum myndum og ógnir við geðheilbrigði og vellíðan fara vaxandi (mjög mikil vissa). Loftslagsvá er vaxandi orsakavaldur nauðungarflutninga og vergangs (mikil vissa) og er meðverkandi þáttur í vopnuðum átökum (mikil vissa). […]. Keðjuverkandi og samverkandi áhættuþættir sem hafa áhrif á heilsu vegna öfgakenndra veðuratburða hafa komið fram á öllum byggðum svæðum og búist er við að áhættan aukist með frekari hlýnun.“

IPCC hefur greinilega misst af minnisblaðinu um eilíft líf rétt handan við hornið…

Byggt á greiningu blaðamanns á 266 fréttaskýringum Kastljóss

Lausnamiðuð og gagnrýnin blaðamennska eða letjandi meðvirkni?

Allt bendir til þess að tuttugasta og fyrsta öldin verði öld vistkreppunnar og þótt margt sé enn hægt að bjarga þarf að ráðast í hraðar og umfangsmiklar breytingar ef ætlunin er að bjarga því sem bjargað verður. Fjölmiðlar þurfa að gera upp við sig hvort þeir vilji vera hluti af lausninni eða hvort þeir vilji þvert á móti festa óbreytt ástand enn frekar í sessi með því að gera lítið úr hættunni og fjalla um hin ýmsu samfélagsleg málefni á forsendum óbreytts ástands.

Fjölmiðlaumfjöllun sem gerir ráð fyrir gulli og grænum skógum um ókomna tíð er úr öllum tengslum við bestu vísindalega þekkingu og dregur þar að auki úr hvatanum til að aðhafast (til hvers að aðhafast ef framtíðin er björt?). Mótsagnarkennd framtíðarsýn, ófullnægjandi umfjöllun um hinar ýmsu lausnir sem samfélaginu og einstaklingum standa til boða og áhersla á skammtímalausnir frekar en kerfisbreytingar virka á áhorfendur eins og öflugt deyfilyf, þegar eini möguleiki þeirra til að tryggja eigin framtíðarvelsæld heimtar þrefaldan espressó-bolla og hressilegt klapp á bakið.

Ítarleg greining blaðamanns á umfjöllun RÚV í Kastljósinu sýnir að sú umfjöllun er í engu samræmi við alvarleika þeirrar áskorunar sem Íslendingar standa frammi fyrir á komandi árum og áratugum. Þar að auki stangast hún á við eigin umhverfis- og loftslagsstefnu RÚV en samkvæmt henni hefur stofnunin skuldbundið sig til að vera „til fyrirmyndar í umhverfis- og loftslagsmálum og halda neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi stofnunarinnar í lágmarki“ og að „hvetja til aukinnar umhverfisvitundar í samfélaginu“.

Við, skattborgarar þessa lands, sem fjármögnum þessa umfjöllun úr eigin vasa, hljótum að gera kröfu til þess að starfsmenn RÚV vakni úr þessum væra blundi, fari að flytja okkur vandaðar og lausnamiðaðar fréttir um áskoranir samtímans, láti af meðvirkninni gagnvart einstaklingum í ábyrgðarstöðum og krefjist svara um aðgerðir í viðtölum við æðstu ráðamenn.