Sturluð staðreynd: hvað mætti gera fyrir peninginn?
Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti hefur kostað ríkissjóð um 4 milljarða króna. Með sama pening hefði meðal annars verið hægt að aðstoða 2000 íslensk heimili við að kaupa sér rafbíl. Þessi 2000 heimili væru í dag komin í skjól frá hækkunum á eldsneytisverði.

Yfir sumarmánuðina seljast um það bil 35 milljónir lítra af eldsneyti á bensínstöðvum landsins í hverjum mánuði og niðurfellingin hefur kostað ríkið á bilinu 25-30 krónur minni tekjur á hvern seldan lítra, eða einn milljarð á mánuði. Ferðamenn sem hafa verið að keyra um landið á jarðefnaknúnum bílum í sumar eru líklega sá hópur sem hefur hagnast hvað mest á þessari aðgerð, þrátt fyrir að hafa ekki beðið um neina sérstaka aðstoð.

Skatturinn var lækkaður úr 24% niður í 11% í kjölfar stríðsins í Íran sem olli töluverðar hækkanir á heimsmarkaðsverði olíu. Lækkunin tók gildi þann 1. maí og rann úr gildi þann 31. ágúst. Tekjurnar sem töpuðust við lækkunina hefði verið hægt að nýta til dæmis með því að fimmfalda upphæð rafbílastyrks sem íslenskum heimilum stendur til boða, úr 500.000 krónum upp í 2.500.000 krónur. Lítill rafbíll með 300 km drægni hefði þannig aðeins kostað 2 til 3 milljónir króna í innkaupum.
Einnig hefði verið hægt að bjóða upp á niðurgreidda langtímaleigu á rafbíl. Slík leiga kostar í dag um 125.000 krónur á mánuði en með peningunum sem töpuðust hefði verið hægt að niðurgreiða langtímaleigu um 50% í þrjú ár hjá 2000 heimilum.
Rafbílar eru reyndar aðeins ein af mörgum lausnum til að komast í skjól frá hækkunum á heimsmarkaðsverði olíu. Með fjórum milljörðum hefði einnig verið hægt að kaupa 30.000 glæný rafmagnshjól og útdeila til landsmanna frítt, eða tvöfalda lengd hjólastígakerfisins í Reykjavík, eða kaupa fimmtíu glænýja rafmagnsstrætisvagna.
Þess í stað mun peningurinn renna í vasa olíuframleiðenda í Noregi, Sádí-Arabíu og víðar.

Rafbílavæðingin er reyndar komin í algjöran hnút vegna metnaðarleysis stjórnvalda. Á síðustu 4 árum hefur markaðshlutdeild hreinna rafbíla staðið í stað með um 42% nýskráninga. Í Noregi er hlutfall rafbíla í nýskráningum hins vegar komið í 98%, í Danmörku 80% og í Finnlandi 48%. Aðrar þjóðir svo sem Svíþjóð, Holland og Belgía eru um það bil að taka fram úr Íslandi með hlutfall upp á 36-42%.
Ef ætlunin var að kaupa sér vinsældir þá virðist niðurgreiðslan á jarðefnaeldsneyti ekki heldur hafa haft tilætluð áhrif. Frá því að niðurgreiðslan tók gildi hefur fylgi við ríkisstjórnarflokkana lækkað úr 50% niður í 43%.
Það er varla hægt annað en að taka undir ummæli Breka Karlssonar, formanns Neytendasamtakanna:
„Það þýðir ekki að pissa í skóinn sinn!“
