Kaupmannahöfn: hvernig kreppa bjargaði borginni

Á sjöunda áratug síðustu aldar stefndi allt í að Kaupmannahöfn yrði að nútímalegri bílaborg að bandarískri fyrirmynd. Víða um borgina höfðu hjólastígar verið fjarlægðir til að „rýmka fyrir“ einkabílnum og árið 1972 var sporvagninum skipt út fyrir dísilknúna strætisvagna. Borgaryfirvöld höfðu í hyggju að leggja ofurhraðbraut með sex akreinum í hvora átt þvert í gegnum miðborgina. Tvær olíukreppur, efnahagslegir erfiðleikar og kröftug mótmæli urðu til þess að sagan tók allt aðra stefnu. Í dag hjóla 62% íbúa Kaupmannahafnar í vinnuna eða skólann og aðeins 9% notast við einkabílinn.

Reiðhjól urðu fyrst algeng sjón í Kaupmannahöfn í byrjun tuttugustu aldar en fyrsti hjólastígur borgarinnar var lagður á Esplanaden árið 1892. Það ár voru um 3.000 reiðhjól í borginni en aðeins 17 árum síðar voru þau orðin um 80.000 (íbúar voru þá rétt undir 500.000 talsins) og á þriðja og fjórða áratugnum jukust vinsældirnar enn frekar. Í seinni heimsstyrjöldinni var bensín skammtað og því urðu hjólreiðar helsti samgöngumátinn í borginni. Á fimmta áratugnum voru frístundahjólaleiðir lagðar í gegnum græn svæði í útjaðri hennar.

Stefndi í allsherjar bílavæðingu

Eftir lok seinni heimsstyrjaldar urðu aftur á móti vatnaskil í samgöngumenningu Dana. Bandarísk bílamenning helltist yfir danskan almúga í formi ódýrra innfluttra bíla og bíómynda frá Hollywood þar sem bíllinn var gjarnan í aðalhlutverki. Á sjötta áratugnum hóf hjólamenningin að gefa eftir. Við lagningu nýrra vega var hjólastígum gjarnan sleppt og margir hjólastígar voru styttir við gatnamót til að auka afköst bílaumferðar, með því að bæta við beygjuakreinum og öðrum bílatengdum innviðum í þeirra stað.

Á sama tíma jókst bílaumferð verulega með þeim afleiðingum að öryggistilfinning hjólandi borgara versnaði til muna. Á aðeins 20 ára tímabili milli 1950 og 1970 dróst hjólandi umferð saman um nærri 90%.

Árið 1972 bættu borgaryfirvöld gráu ofan á svart með því að leggja niður sporvagnakerfi borgarinnar sem hafði þjónað íbúum vel í yfir 100 ár. Sömu yfirvöld sáu fyrir sér áframhaldandi uppbyggingu bílainnviða, meðal annars með lagningu ofurhraðbrautar að hætti Los Angeles þvert í gegnum borgina, með sex akreinar í hvora átt (svokallaða Søringen-hraðbraut). Aðeins ári síðar bankaði hins vegar sagan á dyrnar.

Miðborg Kaupmannahafnar á gullöld einkabílsins (1961).

Olíukreppan kemur uppreisninni af stað

Á þeim tíma voru Danir hættir að nota kol til raforkuframleiðslu og húshitunar og reiddu sig þess í stað á innflutta olíu. Olíukreppan árið 1973 reyndist harkalegt högg á danskan efnahag og stjórnvöld neyddust til að skammta bensín og koma á bíllausum sunnudögum til að spara olíubirgðir. Mörgum borgarbúum þótti sá dagur vera besti dagur vikunnar og samgönguhjólreiðar, sem höfðu varla átt sér lífsvon í mörg ár, fengu einhvers konar uppreisn æru.

Félögum í Landssamtökum hjólreiðamanna fór að fjölga á ný og samtökin urðu að öflugri grasrótarhreyfingu í baráttunni fyrir betri samgöngum. Þau tóku meðal annars þátt í því að skipuleggja söguleg fjöldamótmæli fyrir framan ráðhús Kaupmannahafnar, sem þriðji hver borgarbúi sótti til að mótmæla alræði einkabílsins, versnandi loftgæðum og fjölgun umferðarslysa og krefjast betri innviða og öryggis fyrir hjólandi umferð í borginni.

Borgarbúar mótmæltu kröftuglega gegn alræði einkabílsins fyrir framan ráðhús Kaupmannahafnar og höfðu að lokum betur.

Við þetta bættist að olíukreppurnar tvær, ásamt misheppnaðri húsnæðisstefnu í borginni og ýmsum öðrum þáttum, urðu til þess að fjárhagur borgarinnar versnaði stöðugt. Í áratugi hafði stefna stjórnvalda snúist um að niðurgreiða brottflutning fjölskyldna í úthverfi Kaupmannahafnar og hafði skilið eftir borg þar sem uppistaðan var annars vegar lífeyrisþegar og hins vegar háskólanemar, en hvorugur hópurinn lagði mikið af mörkum til skatttekna borgarinnar.

Borg á barmi gjaldþrots

Við lok áttunda áratugarins var Kaupmannahöfn orðin því sem næst gjaldþrota. Með allt að 17% atvinnuleysi, skatttekjur sem stóðu ekki undir velferðarkerfinu og fjárlagahalla upp á 750 milljónir dollara neyddist borgin til að snúa við blaðinu í samgöngustefnunni sinni. Stórkallaleg uppbygging bílainnviða var ekki lengur raunhæf framtíðarsýn og fjárfestingar í hágæða almenningssamgöngum þóttu einnig of dýrar. Augljósa staðreyndin var sú að uppbygging reiðhjólainnviða og almennur stuðningur við samgönguhjólreiðar voru langódýrasti kosturinn í stöðunni.

Neyðin kennir nakinni konu að spinna, segir máltækið, en í þessu tilfelli kenndi hún borgarbúum að hjóla og borgaryfirvöldum að byggja upp góða reiðhjólainnviði. Þegar ljóst varð að fjárfestingar í hjólainnviðum skiluðu ávinningi fyrir almenna umferð, umhverfi, heilsu og efnahag, ákvað borgin að veðja enn stærra á þá stefnu. Niðurstaðan er hjólamenningin sem einkennir Kaupmannahöfn nútímans. Borgin státar nú af yfirgripsmiklu neti aðskilinna og breiðra hjólastíga meðfram öllum aðalgötum, auk sérhannaðra brúa sem gera hjólreiðafólki og gangandi vegfarendum kleift að komast yfir höfnina.

Það er ekki einu sinni fyrir neðan virðingu konungsfólks að láta sjá sig á hjóli. Hér er Friðrik konungur á ferð með dóttur sinni.

„Hvernig í ósköpunum hafið þið efni á þessum hraðbrautum?“

Nærri tveir þriðju hlutar íbúa borgarinnar ferðast á hjóli að minnsta kosti nokkrum sinnum í viku, aðallega vegna þess að sá fararmáti er fljótlegasta og auðveldasta leiðin til að komast á milli staða. „Þegar borgarstjórar í öðrum borgum spyrja mig hvernig Kaupmannahöfn hafi átt efni á að fjárfesta í slíku hjólastígakerfi, þá spyr ég á móti hvernig í ósköpunum þeir hafi haft efni á hraðbrautarverkefnum,“ segir Morten Kabell, fyrrverandi borgarstjóri tækni- og umhverfismála, þegar hann er spurður út í samgöngustefnu borgarinnar. „Við fjárfestum í hjólastígum vegna þess að það var ódýrasti kosturinn.“

Samkvæmt útreikningum fjármálaráðuneytis Danmerkur er samfélagslegur kostnaður af bílferðum nálægt einni evru á hvern ekinn kílómetra. Á hinn bóginn skilar hver kílómetri sem er farinn á reiðhjóli samfélagslegum ávinningi upp á 60 evrusent þökk sé heilsufarslegum ávinningi hjólreiða, aukinni skilvirkni í samgöngum og minni útgjöldum til samgönguinnviða (einfaldur hjólastígur afkastar 5 sinnum meira umferðarflæði en bílaakrein).

Reynsla Dana býður upp á dýrmætan lærdóm. Í stað þess að sóa hundruðum milljarða í sífellt stækkandi bílainnviði er bæði fljótlegra, ódýrara og skynsamlegra að fjárfesta í öruggum og þægilegum samgönguhjólreiðum. Með tilkomu rafhjóla eru brekkur og mótvindur ekki lengur hindranir og hver einasta borg á jörðinni getur farið að dæmi Kaupmannahafnar vilji hún verða skilvirkari, öruggari og mannlegri.

Danir kunna manna best að vera fínir á hjóli.