Grænþvottur mánaðarins
Einu sinni í mánuði afhendir ritstjórn Umskipta sérstök grænþvottaverðlaun til einstaklings, fyrirtækis eða stofnunar sem hefur náð framúrskarandi árangri á sviði nýsköpunar í grænþvotti.
Að þessu sinni hefur ritstjórn Umskipta ákveðið að veita Steingrími Birgissyni, forstjóra Hölds bílaleigu Akureyrar, grænþvottaverðlaunin fyrir „skapandi staðreyndir“ í Kastljósviðtali þann 22. september 2026.

Í Kastljósþættinum umræddi fullyrti Steingrímur að Ísland væri „eitt umhverfisvænasta land veraldar“.
Setjum fullyrðingu forstjórans í tölulegt samhengi:
Til eru ýmsir mælikvarðar á því hversu „umhverfisvænar“ mismunandi þjóðir eru en hér eru þrjú dæmi um mælingar sem ættu að gefa manni góða vísbendingu um frammistöðu Íslands í loftslagsmálum:
1. Kolefnisspor meðal-Íslendings er 12 tonn CO₂-ígilda á mann á ári. Það er meira en tvöfalt meðaltalið á heimsvísu og sex sinnum meira en það þyrfti að vera árið 2050 ef markmið Parísarsamkomulagsins eiga að nást (2 tonn á mann). Kolefnissporið mælir þá losun sem verður til við að framleiða alla þá vöru og þjónustu sem meðal-einstaklingur nýtir sér á hverju ári.
2. Staðbundin losun gróðurhúsalofttegunda á Íslandi er 27 tonn á mann sem er hæsta talan í Evrópu og fimm til sex sinnum hærri en heimsmeðaltalið. Staðbundin losun mælir aðeins þá losun sem á sér stað innan landamæra auk losunar frá millilandasamgöngum.
3. Innflutningur á jarðolíu og olíuafurðum til Íslands er 2,5 tonn á mann á ári, sem er ein hæsta talan sem þekkist í heiminum og er á pari við Bandaríkin. Þá hefur olíuinnflutningur til Íslands aukist um 40% síðan 2010.
Þessir þrír mælikvarðar ættu að duga til að sannfæra hvern sem er um að fullyrðingin „Ísland er eitt umhverfisvænasta land veraldar“ stenst ekki nokkra skoðun og getur varla kallast annað en augljós afneitun.
Bergsteinn Sigurðsson, þáttastjórnandi Kastljóssins þennan dag, sá samt sem áður enga ástæðu til að gera athugasemd við málflutning forstjórans.
Ritstjórn Umskipta leitaði eftir skýringum á því hvers vegna svo væri en engin svör bárust frá Bergsteini.
Ritstjórnin hafði sömuleiðis samband við Steingrím Birgisson forstjóra Hölds en þaðan fengust heldur engin svör.
