Orkuskiptin sem engu máli skiptu
Oft er talað um forskot Íslands í orkuskiptum með vísan í hlutfallslegar tölur um orkunotkun. Staðreyndin er hins vegar sú að þrátt fyrir hitaveituvæðingu hefur olíunotkun landsins haldið áfram að aukast stöðugt á seinni hluta 20. aldar og hefur aldrei verið meiri en í dag.
Má bjóða þér appelsínusafa ofan í brennivínið?

Þegar kemur að aðgerðum til að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda er orðinn landlægan ósiður að réttlæta aðgerðaleysi með því að vísa í meinta „sérstöðu“ Íslands í orkumálum. Þingkona og fyrrverandi orkumálastjóri hélt því nýlega fram að „við á Íslandi“ værum komin „miklu lengra“ en aðrar þjóðir á sviði orkuskipta. Að reyna að draga úr olíunotkun á Íslandi væri „eins og að kreista safa úr rúsínu,“ sagði þingkonan.
Margir hafa endurtekið sömu rök í ýmsum búningi og spurt: af hverju ætti þjóð sem er komin á undan öðrum í orkuskiptum að leggja enn meiri erfiði á sig til að draga úr losun?
Vandinn er að tölfræðin um olíunotkun á Íslandi rímar afar illa við þessa algengu söguskýringu. Samkvæmt tölum Our World in Data er olíunotkun á mann á Íslandi tvöfalt hærri en meðaltalið í Evrópu og á pari við olíunotkun Bandaríkjanna. Hvernig má vera að við séum best í heimi, en um leið verst í heimi?
Svarið við því er að fyrrverandi orkumálastjóri og aðrir hafa fallið fyrir rökleysu sem ég kýs að kalla „prósentusjónhverfingu“.
Prósentusjónhverfingin
Sjónhverfingin sú er orðin allsráðandi í allri umræðu um orkuskipti. Hún á sér langa sögu sem byrjaði líklega í Bandaríkjunum í tíð Jimmy Carters forseta og er meðal annars rakin í bók orkusagnfræðingsins Jean-Baptiste Fressoz, More and More and More. Hún felst í því að einblína á prósentutölu „grænnar raforku“ í orkunotkun tiltekins lands í stað þess að horfa á heildargildi fyrir tiltekna orkugjafa. Sú framsetning getur gefið ranglega í skyn að notkun á jarðefnaeldsneyti hafi dregist saman: ef raforkuframleiðsla með vatnsafli eykst, til dæmis, þá lækkar prósentutala jarðefnaeldsneytisins sjálfkrafa á móti, jafnvel þó að notkun þess hafi haldist óbreytt, eða jafnvel aukist sömuleiðis, nema ekki eins mikið. Myndrit Orkustofnunar hér að neðan hefur oft verið (mis)notað í þessu samhengi og virðist vera lifandi sönnun þess að olíunotkun á Íslandi hafi dregist töluvert saman, sérstaklega síðan 1960:

Myndrit Orkustofnunar virðist benda til þess að olíunotkun hafi dregist stórlega saman á Íslandi en sýnir í raun aðeins prósentugildi (prósentusjónhverfingin)
Þegar heildargildin eru skoðuð kemur hins vegar í ljós að olíunotkun hefur margfaldast með 35 síðan 1940 og aukist tíu sinnum hraðar en fólksfjölgun (sjá myndrit hér að neðan). Rúsínan er hvergi sjáanleg og þvert á móti hefur vínberið aldrei verið safaríkara!
Það er ljóst að ef markmiðið er að draga úr olíunotkun þá er um það bil jafn gagnlegt að horfa á prósentutölur eins og að stinga hausnum í sandinn. Svona tölfræðikúnstir jafngilda því að áfengissjúklingur tæki upp á því að drekka tvær flöskur af appelsínusafa til viðbótar við þær tvær flöskur af brennivíni sem hann er vanur að drekka á dag og telji sig þannig hafa stigið stórt skref í átt að hollustu. „Áður fyrr var brennivínið 100% af því sem ég drakk, en nú er það komið niður í 50%!“

Má bjóða þér appelsínusafa ofan í brennivínið?
Margir virðast taka því sem sjálfsögðum hlut að hagkerfi sem notar mikið magn af lágkolefnisraforku („grænni“ raforku) hljóti að nota lítið af jarðefnaeldsneyti á móti, en ólíkir orkugjafar eru ekki endilega í samkeppni hver við annan. Þvert á móti vinna þeir oft saman og ekkert því til fyrirstöðu að nota mikið af ólíkum orkugjöfum samhliða, enda virðist sem orkuþorstinn okkar sé engum takmörkum settur.
Punktaritið hér að neðan er einmitt til þess gert að kanna hvort fylgni sé til staðar á milli hlutfalls lágkolefnisraforku í tilteknu landi og losunar CO₂ í sama landi. Þar sést að fylgnin er nánast engin: sum ríki sem eru þekkt fyrir mikla kolanotkun, eins og Indland og Pólland, eru samt með lægri losunartölur á mann heldur en Ísland, á meðan mörg ríki sem eru með mjög hátt hlutfall „grænnar“ raforku eru samt með háar losunartölur (Ísland, Noregur).

Orkuskiptin sem engu máli skiptu
Í merkilegri doktorsritgerð um orkusögu Íslands eftir Óðinn Melsteð sagnfræðing kemur ýmislegt áhugavert í ljós. Gullöld olíunnar á Íslandi byrjaði fljótt eftir seinna stríð og árið 1962 náði olíukynding í húshitun hámarki (60% íslenskra heimila). Eftir það fór hitaveitan smátt og smátt að taka yfir og árið 1990 heyrði olíukynding nánast sögunni til (innan við 3% heimila).

Ef við horfum nú á heildarolíunotkun deild í fjölda íbúa (olíunotkun á mann) blasir merkileg staðreynd við: Á hátindi olíukyndingar árið 1962 var olíunotkun á hvern Íslending um 2 tonn á ári (bein og óbein notkun), en eftir að olíukyndingu hafði verið útrýmt árið 1990 var olíunotkun á mann komin í… 2,4 tonn!
Þegar olíunotkun Íslendinga er borin saman við olíunotkun Breta er ekki heldur að sjá að hitaveitan hafi haft nein teljandi áhrif á þróunina. Einu atburðirnir sem virðast hafa leitt til samdráttar í olíunotkun eru olíukreppan 1979, fjármálahrunið 2008 og Covid-faraldurinn.

Þegar allri olíunni er á botninn hvolft
Sem sagt, olíunotkun á mann jókst um 20% á tímabilinu 1962–1990, þrátt fyrir orkuskipti í húshitun. Sökudólgarnir: einkabílavæðingin (sala á bensíni þrefaldaðist), flugvæðingin (sala á þotueldsneyti margfaldaðist með 30), ásamt aukningu í vöruflutningum (aukin framleiðsla og viðskipti við útlönd).

Fyrirsögn þessarar greinar er auðvitað meint í stríðni: Hitaveitan skipti víst máli fyrir orkuöryggi og viðskiptajöfnuð þjóðarinnar og á þeim forsendum getum við verið stolt af henni, en henni var aldrei ætlað að takmarka heildar-notkun á olíu og það gerði hún heldur ekki.
Það eru nefnilega ótal mismunandi leiðir til að nota olíu, sem okkur finnst flestum afar spennandi, og olíunotkun okkar sem þjóð virðist fyrst og fremst ráðast af kaupmætti okkar. Þegar við „spörum“ olíu á einu sviði þá sparast erlendur gjaldeyrir, og þá eigum við efni á meiri olíu á öðrum sviðum (svokölluð endurkastsáhrif, e. rebound effect).
Fullyrðingar um að Ísland sé „á undan öðrum í orkuskiptum“ eru því byggðar á prósentusjónhverfingu og jaðra við sögufals í opinberri umræðu. Orkuskipti fortíðar hafa ekki leitt til minni notkunar á olíu á heildina litið, og orkuskipti framtíðar munu ekki gera það heldur nema til staðar sé pólitískur vilji til þess að koma í veg fyrir endurkastsáhrif. Það er til dæmis ekki til neins að skipta út bensínbílum fyrir rafmagnsbíla ef við notum síðan ávinninginn af því til að fara í fleiri utanlandsferðir. Hingað til hefur skort bæði skilning á endurkastsáhrifum og vilja til að koma í veg fyrir þau…
