Kolefnisförgun á sjó hefst í Danmörku
Kolefnisförgun á sjó hófst formlega við opnun Greensand-stöðvarinnar við vesturströnd Danmerkur í september. Samkvæmt fyrsta áfanga er stöðin hönnuð til að farga allt að 400.000 tonnum af CO₂ árlega en þegar fram í sækir á verkefnið að ráða við allt að 8 milljónir tonna á ári, sem samsvarar um 0,24% af allri losun gróðurhúsalofttegunda innan Evrópusambandsins. Í viðtali við Umskipti segist Ólafur Elínarson samskiptastjóri Carbfix fagna áfanganum. Ólafur segir tæknina vera að mestu tilbúna en að enn eigi Evrópa langt í land með að ná markmiðum um föngun og förgun.

Kolefni dælt niður aftur í stað olíu
Starfsemi Greensand-verkefnisins er ætlað að veita aðgang að innviðum fyrir flutning og varanlega geymslu á CO₂ sem fangað er frá iðnaði og öðrum uppsprettum. Fyrst um sinn verður einblínt á það að farga CO₂ frá dönskum lífmetanverksmiðjum. Friðrik X Danakonungur opnaði stöðina formlega þann 18. september við hátíðlega athöfn í Esbjerg-höfn en verkefnið er undir forystu INEOS Energy, sem lýsir aðstöðunni sem fyrstu fullkomnu kolefnisförgunarstöð Evrópusambandsins á hafi úti.
Fangaður CO₂ er umbreyttur í vökva og fluttur með vörubílum til sérstakrar stöðvar í Esbjerg-höfn. Þaðan er hann síðan fluttur um borð í Carbon Destroyer 1, sem INEOS lýsir sem fyrsta sérsmíðaða CO₂-flutningaskipi ESB, áður en honum er dælt niður í jarðlögin á Nini West-olíusvæðinu sem er uppurin olíulind um 250 kílómetra undan ströndum Danmerkur og um 1.800 metra undir sjávarbotni.
Ólafur Elínarson samskiptastjóri Carbfix segir um svipaða starfsemi að ræða og starfsemi Carbfix en aðferðin sé frábrugðin að því leyti að í Danmörku sé ætlunin að geyma kolefnið í vökva- og gasformi og á mun meira dýpi. Borholur Carbfix séu mun grynnri og aðferð Carbfix snúist um að binda kolefnið í stein en það ferli tekur aðeins um 2 ár og eftir það sé öruggt að kolefninu sé fargað fyrir fullt og allt. „Í þessu verkefni í Danmörku er hins vegar verið að bora í gegnum þakberg (e. caprock) og það þarf að vanda vel til verka svo að gasið leiti ekki aftur upp á yfirborðið, sem er gert með ítarlegu eftirlitskerfi.“
„Aðferðirnar okkar eru öðruvísi að því leyti að við erum að farga kolefni á landi. Við leysum CO₂ fyrst í vatni og dælum því svo niður í berglög undir mun minni þrýstingi en þarna er gert. Þetta er að því leyti bæði ódýrari og varanlegri aðferð.“

Stefna að því að farga losun frá iðnaði
Forsvarsmenn INEOS telja að förgunarinnviðir gætu þegar fram í sækir tekið við CO₂ frá iðnaðarútblæstri víðs vegar um Evrópu eftir því sem fleiri föngunarverkefni verða þróuð. Dan Jørgensen, framkvæmdastjóri orku- og húsnæðismála hjá Evrópusambandinu, kallaði opnunina áfanga í kolefnisförgunarátaki Evrópu og sagði hana sýna að kolefnisförgun á hafi úti sé vaxin upp úr því að vera tilraunastarfsemi yfir í fullvirka starfsemi.
Evrópusambandið hefur sett sér markmið um að byggja upp innviði fyrir kolefnisföngun og -förgun upp á 50 milljónir tonna árlega niðurdælingargetu fyrir árið 2030 og 250 til 280 milljónir tonna fyrir árið 2040. Heildarlosun gróðurhúsalofttegunda í Evrópu var hins vegar 3.340 milljónir tonna CO₂-ígilda sem þýðir að Greensand-verkefnið ræður nú við 0,01% af allri losuninni og ef áætlanir um förgun á 8 milljónum tonna ganga eftir mun sú förgun jafngilda 0,24% af allri losun í álfunni. Til að markmið ESB náist fyrir árið 2040 þarf föngun og förgun að aukast upp í 8,4% af núverandi losun.

Langt í land að markmið náist
Eins og staðan er dugar starfsemi Greensand þannig fyrir aðeins innan við 1% af þeim 50 milljónum tonna sem ESB áformar að farga á hverju ári fyrir 2030. Er raunhæft að ætla að þessi markmið náist? „Þetta er alveg hægt tæknilega séð og þessi verkefni hafa verið að sýna það. En það er ljóst að við eigum enn langt í land til að ná þessum markmiðum og það þarf að spýta í lófana.“ Árið 2024 hóf Carbfix að farga kolefni sem er flutt inn sjóleiðis frá Sviss (losunin er fönguð í fráveitustöð þar í landi). Auk þess hefur íslenska fyrirtækið í hyggju að fanga og farga losun frá íslenskri stóriðju og vinnur með ýmsum fyrirtækjum að slíkum verkefnum, meðal annars með rannsóknarborun á Grundartanga.
Greensand-verkefnið er annað af tveimur stærri förgunarverkefnum sem hafa litið dagsins ljós í Evrópu á síðustu árum en Northern Lights-stöðin við vesturströnd Noregs hóf starfsemi árið 2024. Hún fargar nú um 1,5 milljón tonnum á ári, sem er aðallega losun frá sementsverksmiðju Heidelberg í Noregi en fyrirtækið áformar að auka afkastagetuna upp í 5 milljónir tonna árið 2028. Til samanburðar fargar Carbfix um 40.000 tonnum af CO₂ á ári.
Jim Ratcliffe ekki besta fyrirmyndin
Milljarðamæringurinn Jim Ratcliffe, sem Íslendingar þekkja vel fyrir fjárfestingar sínar í jörðum og laxveiðiám á Vopnafirði, er stjórnarformaður INEOS og telur að förgunarstarfsemin sé raunhæf lausn til að draga úr losun frá evrópskum iðnaði án þess að útvista starfseminni til annarra landa.
Það skýtur hins vegar skökku við að þegar kemur að lífsstílsbreytingum hefur Ratcliffe sannarlega ekki sýnt í verki að hann hafi raunverulegar áhyggjur af loftslagsbreytingum, enda er Englendingurinn stoltur eigandi fimm einkaþota og tveggja lystisnekkja og er auk þess vanur að sækja íþróttaviðburði á einkaþyrlu. Það má velta fyrir sér hvort ekki sé óheppilegt fyrir trúverðugleika loftslagslausna að forsvarsmenn verkefna sem eiga að vera hluti af lausninni sýni loftslagslausnum ekki áhuga nema þegar hægt er að græða á þeim peninga.

