Frá Skotlandi til meginlands Evrópu í næturlest?

Stjórnvöld í Skotlandi hafa sett á fót vinnuhóp með það að markmiði að skoða möguleika á beinum næturlestarferðum til meginlands Evrópu. Með þessu myndi opnast tækifæri fyrir Íslendinga sem vilja lágmarka kolefnisspor ferðalaga sinna. Með því að taka stutt flug til Skotlands og þaðan lest til Evrópu í stað þess að taka beint flug alla leið gæfist færi á að heimsækja fleiri staði og lækka um leið kolefnisspor ferðarinnar um allt að 40%.

Áform um útvíkkun á Caledonian Sleeper-þjónustu til og frá Skotlandi eru að komast á skrið eftir að vinnuhópur var skipaður til að skoða möguleikann á beinni lestartengingu við meginland Evrópu samkvæmt nýlegri frétt á Euronews.com. Þann 4. ágúst síðastliðinn tilkynnti Stephen Flynn, efnahags-, ferðamála- og samgönguráðherra Skotlands, að fulltrúar frá Caledonian Sleeper væru að meta „tæknilega og viðskiptalega hagkvæmni þess að lengja næturlestarþjónustuna inn á meginlandið“.

Allt að 40% minni losun í blandaðri ferð með flugi og lest

Verði þessi hugmynd að veruleika munu ný tækifæri opnast fyrir Íslendinga sem njóta þess að ferðast til útlanda en vilja um leið halda kolefnisspori ferðalaga í lágmarki. Eins og kunnugt er valda lestarferðir mun minni losun gróðurhúsalofttegunda en flugferðir miðað við sömu vegalengd (allt að 98% minni losun miðað við lest sem er knúin áfram af lágkolefnisorku).

Útreikningar blaðamanns sýna að blönduð ferð (flug + lest) frá Íslandi til meginlands Evrópu veldur allt að 40% minni losun en beint flug til sama áfangastaðar. Því lengri sem leiðin er, því meiri er ávinningurinn. Blönduð ferð til Parísar veldur til að mynda 22% minni hlýnun en bein flugferð og blönduð ferð til Mílanó veldur 41% minni hlýnun.

Kolefnisspor utanlandsferðar eftir ferðamáta samanborið við árlegan kolefniskvóta einstaklings árið 2050 samkvæmt Parísarsamkomulaginu.
Heimild: Atmosfair.de / ecopassenger.org

Til að halda áhrifum loftslagsbreytinga í skefjum samþykktu aðildarþjóðir á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í París árið 2015 að halda meðalhlýnun jarðar innan við 1,5°C miðað við tímann fyrir iðnbyltingu. Sé 420 milljarða tonna kolefniskvóti IPCC til ársins 2050 deildur niður á fjölda jarðarbúa (8,8 milljarðar) má gera ráð fyrir að hver einstaklingur á jörðinni megi að hámarki valda losun upp á 1,5 tonn CO₂-ígilda á ári.

Stök flugferð til Tenerife veldur hins vegar losun upp á 1,3 tonn (samkvæmt kolefnisreiknivél Atmosfair.de) sem fer langt með að klára árlegan kolefniskvóta einstaklings. Með því að fækka ferðum og nýta sér lestarsamgöngur í auknum mæli er hins vegar hægt að takmarka hlýnunaráhrifin verulega.

Fimm næturlestarleiðir frá Skotlandi til London

Caledonian Sleeper býður nú þegar upp á fimm leiðir milli Norður-Skotlands og London, sex nætur í viku. Ferðir frá Skotlandi byrja ýmist frá Glasgow Central og Edinborg Waverley og stefna suður um láglendisleiðina, eða byrja frá Fort William, Inverness og Aberdeen en þá liggur leiðin um hálendi Skotlands.

Ferðin frá Edinborg til London tekur um 7,5 klukkustundir. Alls rekur fyrirtækið 40 svefnvagna en hver þeirra er búinn sex herbergjum með sérbaðherbergi og boðið er upp á morgunverð í sérstökum veitingavagni. Einnig eru í boði hefðbundin herbergi með tveggja hæða rúmum og sameiginlegu baðherbergi. Lægstu fargjöld nema 160 pundum (26.000 krónum) fyrir lestarferð og gistingu.

Áður en farið er um borð geta ferðalangar slakað á í gestastofum Caledonian Sleeper. Þar geta þeir frískað sig upp í sturtunum og fengið sér bita fyrir brottför og eftir komu á áfangastað.

Sofnað í Edinborg og vaknað í París

Verði áform um nýja leið Caledonian Sleeper frá Skotlandi til meginlands Evrópu að veruleika opnast möguleiki fyrir Íslendinga til að taka stutt flug til Skotlands síðdegis (2,5 klst), fara þaðan um borð í næturlestina, leggjast til hvílu og vakna morguninn eftir í Brussel, París eða Amsterdam. Gera má ráð fyrir að lestarferðin myndi taka 9 til 11 klukkutíma á heildina litið, sem þýðir að ferðalangar gætu farið af stað frá Skotlandi um klukkan 10 að kvöldi og vaknað á meginlandi Evrópu milli klukkan 7 og 9 næsta morgun. Ferðatíminn yrði í reynd mjög svipaður og með beinu flugi, nema fyrstu nóttinni á gististað yrði skipt út fyrir gistingu í næturlestinni. 

Lestarferðir frá Skotlandi til Evrópu eru nú þegar raunhæfur möguleiki því Caledonian Sleeper býður upp á næturlestarferðir frá Edinborg og Glasgow til Lundúna, en ferðalangar þurfa að skipta um lest í Lundúnum og fara þaðan um borð í Eurostar-lestina sem býður upp á beinar ferðir til Brussels, Parísar og Amsterdam. Frá Brussel er einnig í boði að taka næturlest til annarra evrópskra borga, svo sem Berlínar, Prag og Mílanó með lestarfyrirtækinu European Sleeper. Þá áformar fyrirtækið að bjóða upp á beinar næturlestarferðir frá París til Barcelona frá og með árinu 2028.

Efnahagslegir hvatar ekki til staðar

Breski ferðabloggarinn Kelly Prince-Wright er ein af þeim sem hafa nýtt sér næturlest Caledonian Sleeper með kærastanum sínum en af myndunum að dæma hefur verið um nokkuð rómantíska upplifun að ræða.

Víða í Evrópu hefur almenningur kallað á að framboð af lestarferðum verði aukið og að dregið verði úr kostnaðarmun á milli flugferða og lestarferða, en vegna þess að millilandaflug er undanþegið öllum sköttum og gjöldum á eldsneyti á meðan lestarfyrirtæki þurfa að bera ýmis gjöld eru lestarferðir oft dýrari en flug þrátt fyrir að vera mun loftslagsvænni fararmáti. Miklar hækkanir á þotueldsneytisverði vegna átaka í Miðausturlöndum og Úkraínu gætu hins vegar orðið til þess að lestarferðir verði í mörgum tilfellum ódýrari kosturinn.

Á Íslandi hefur skapast hefð fyrir því að stéttarfélög niðurgreiði hluta af flugmiðanum þegar félagsmenn kaupa sér utanlandsferðir auk þess að þotueldsneyti er undanþegið sköttum. Sú hefð er óheppileg í heimi þar sem draga þarf úr notkun jarðefnaeldsneytis hratt og örugglega, þar sem hún býr til hvata bæði til að ferðast oftar til útlanda og auk þess til að velja beint flug frekar en blandaða ferð flug+lest, enda er lestarferðin ekki niðurgreidd.

Evrópsku samtökin Back-on-Track hafa tekið saman allar þær leiðir sem bjóða upp á næturlestir á meginlandi Evrópu og í Bretlandi og gefið út leiðakort sem áhugasamir geta kynnt sér á meðfylgjandi mynd (kortið er einnig að finna á back-on-track.eu).