Er hægt að spá fyrir um þróun olíuverðs?

Það hefur varla farið framhjá neinum að heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað hressilega á undanförnum mánuðum. Þegar þessi grein er skrifuð er olíutunnan af Brent-olíu komin yfir 110$, sem er um 80% hækkun miðað við mánuðina fyrir stríð (um 60$ tunnan). En hvað má búast við að gerist næst? Mun verð á olíu og olíuafurðum halda áfram að hækka á næstu mánuðum og árum?

Sögulega séð er núverandi olíuverð reyndar ekki sérstaklega hátt verð því olíuverð fór yfir 120$ rétt fyrir fjármálahrunið árið 2008 og svo yfir 130$ eftir innrás Rússa í Úkraínu árið 2022. Ef leiðrétt er fyrir verðbólgu virðist þessi hækkun enn hóflegri því verðlag ársins 2008 jafngildir 200$ á verðlagi dagsins í dag og verðlag ársins 2022 jafngildir um 140$.

Verð á dísilolíu og þotueldsneyti í hæstu hæðum

Mestu verðhækkanirnar hafa hins vegar ekki verið á hráolíu heldur á unnum olíuafurðum og þá sérstaklega dísilolíu og þotueldsneyti, sem eru að miklu leyti framleidd í Miðausturlöndum og í Rússlandi þar sem framleiðslan hefur einnig dregist saman vegna stríðsátaka. Meðalverð á gallon af dísilolíu í Bandaríkjunum er komið yfir 6,5$ þegar þessi grein er skrifuð, sem er meira en 100% hækkun frá því í janúar og hefur aldrei í sögunni verið jafn hátt, enda eru bandarísk yfirvöld nú farin að hugleiða af alvöru að leggja útflutningsbann á dísilolíu til að vernda innlendar birgðir. Samkvæmt vefsíðu Alþjóðasamtaka flugfélaga (IATA) er tunnan af þotueldsneyti komin yfir 200$ sem er einnig tvöföldun frá því fyrir stríð.

En er hægt að spá fyrir um þróun olíuverðs á næstu árum?

Það er augljóslega ómögulegt að spá fyrir um það nema um leið að spá fyrir um hvernig átökin í Miðausturlöndum og Úkraínu muni þróast, en engu að síður er hægt að komast að ýmsu sem getur komið að gagni þegar kemur að því að undirbúa sig undir framtíðina. Þótt ekki sé hægt að spá fyrir um hvað muni gerast er stundum mögulegt að útiloka ýmsar sviðsmyndir og útilokunaraðferðin getur komið manni ansi langt í lífinu…

Þegar sérfræðingar ljúga

Byrjum á byrjuninni: Hvernig hefur helstu sérfræðingum hingað til gengið að spá fyrir um þróun olíuverðs? Því er hægt að svara með afgerandi hætti: hörmulega. Ein virtasta stofnun á sviði orkumála er Alþjóðaorkumálastofnunin (IEA eða International Energy Agency), sem gefur árlega út mjög ítarlegar skýrslur um stöðu orkumála og framtíðarhorfur í heiminum. Skýrslurnar bera heitið World Energy Outlook og innihalda iðulega spár um þróun olíuverðs nokkra áratugi fram í tímann (stofnunin kallar þær reyndar ekki spár heldur „forsendur“ eða „sviðsmyndir“ til að verja sig gegn gagnrýni).

Meðfylgjandi línurit sýnir annars vegar þróun olíuverðs frá árinu 1999 (leiðrétt fyrir verðbólgu) og hins vegar fjórar mismunandi spár Orkumálastofnunar (frá því 2000, 2005, 2010 og 2015). Í elstu spánni (2000) gerði stofnunin ráð fyrir að olíuverð myndi standa nokkurn veginn í stað fram til 2010 og síðan hækka nokkuð fram til 2020. Raunin varð hins vegar sú að verðið snarhækkaði á fyrra tímabilinu (þrefaldaðist milli 2000 og 2010). Á seinna tímabilinu hrundi olíuverð á móti um helming, þvert á spár stofnunarinnar um töluverðar hækkanir. Í næstu spá (2005) sá stofnunin aftur fyrir sér nokkuð stöðugt olíuverð, sem var ævintýralegt vanmat á þeim miklu verðhækkunum sem urðu í raun milli 2005 og 2015.

Heimild: Macrotrend og World Energy Outlook

Eftir að hafa ítrekað vanmetið olíuverðshækkanir virðist stofnunin hafa skipt um taktík og hóf þá að spá kröftugum verðhækkunum. Í skýrslu ársins 2010 var því spáð að olíuverð myndi vera komið yfir 150$ tunnan árið 2015. Það var aftur á móti stórlega ofmetið því það ár var meðalolíuverð 76$. Ef sú spá hefði gengið eftir ætti olíuverð í dag að vera í kringum 200$ en er í reynd helmingi lægra þrátt fyrir lokun Hormússunds og stríð í Úkraínu. Spáin frá því 2015 gerði sömuleiðis ráð fyrir miklu hærra olíuverði en raunin hefur orðið.

Kenning og raunveruleiki, tvennt ólíkt

En hvernig fer stofnunin eiginlega að því að spá fyrir um olíuverð? Það er gert með því að spá fyrir um framboð og eftirspurn. Samkvæmt þeim líkönum sem stofnunin notast við ræðst eftirspurnin af þáttum eins og fólksfjölgun, hagvexti og orkuskiptum á meðan framboðið ræðst aðallega af getu olíuiðnaðarins til að finna og dæla meiri olíu upp úr jörðinni til að vega upp á móti rýrnun í framleiðslu hjá eldri olíusvæðum. Hugmyndin er síðan sú að ef framboðið nær ekki að anna eftirspurn þá hækkar verðið og öfugt (grunnlögmálið úr hagfræði 101 sem flestir kannast við).

Vandinn er að þessi kenning um framboð og eftirspurn stemmir ekki við sögulegan veruleika. Til skamms tíma leiða áföll í olíuframleiðslu vissulega til verðhækkana, en söguleg tölfræði sýnir hins vegar að til langs tíma litið er engin fylgni milli framboðs af olíu og verðs á olíutunnu. Punktaritið hér að neðan sýnir annars vegar framboð af olíu í heiminum (framleiðslan) og hins vegar meðalolíuverð fyrir hvert ár síðan 1988. Samkvæmt kenningunni um framboð og eftirspurn ætti línan sem tengir ártölin saman annaðhvort að stefna í átt að neðra horninu hægra megin (framboð eykst – verðið lækkar) eða í átt að efra horninu vinstra megin (framboð dregst saman – verðið hækkar). Raunþróunin er hins vegar nánast tilviljanakennd: stundum eykst framleiðslan en verðið hækkar samt (t.d. 1998-2000 eða 2006-2008), stundum dregst framleiðslan saman en verðið lækkar þrátt fyrir það (t.d. 1979–1982 eða 2008–2009) og allt þar á milli.

Lögmálið um framboð og eftirspurn virðist þannig ekki eiga við um langtímaþróun olíuverðs. Ein skýringin á því gæti verið sú að framboð af olíu er takmarkandi þáttur fyrir stærð hagkerfisins: Minnkandi framboð af olíu leiðir iðulega af sér efnahagskreppu, sem leiðir svo af sér minnkandi kaupmátt einstaklinga og fyrirtækja. Þar sem veski neytenda er ekki ótakmörkuð auðlind getur olíuverð ekki haldið áfram að hækka endalaust. Í miðri kreppu er erfiðara að yfirbjóða aðra neytendur og því er ekki gefið að skortur leiði til varanlegra verðhækkana. Fyrr eða seinna neyðast einhverjir að draga úr sinni neyslu og þá ná framboð og eftirspurn jafnvægi á ný. Þegar það gerist getur olíuverð lækkað aftur og jafnvel orðið lægra en það var áður en kreppan skall á.

Þvert á kenninguna um framboð og eftirspurn er engin fylgni á milli þess hvað er framleitt mikið af olíu og hvað hún kostar.
Heimild: Our World in Data.

Ekki hægt að treysta á markaðnum

Þessi tilviljanakennda þróun olíuverðs skiptir öllu máli þegar kemur að ákvarðanatöku um framtíðina. Í fyrsta lagi hefur verið tilhneiging hjá mörgum hagfræðingum að líta svo á að markaðurinn muni leysa vandann þegar olíuna fer að skorta. Hugmyndin er sú að olíuverð muni hækka eftir því sem framboð dregst saman. Þær verðhækkanir muni sjálfkrafa skapa hvata til að finna tæknilausnir og nýta aðra orkugjafa, sem verður til þess að eftirspurn eftir olíu mun dragast saman. Sú hugmynd byggir á lögmálinu um framboð og eftirspurn sem því miður á ekki við um olíuna eins og hér var nefnt. Það er þess vegna ekki hægt að treysta á það að aðrir orkugjafar verði sjálfkrafa hagkvæmari eftir því sem framboð af olíu dregst saman.

Það sem verra er, blint traust á almætti markaðarins ýtir undir aðgerðarleysi af hálfu stjórnvalda, sem leiðir til þess að samfélög eru illa undirbúin þegar olíuskortur fer að bíta af alvöru. Þær lausnir sem eru í boði til að draga úr olíuþörf samfélagsins (afkolun hagkerfisins) eru margar hverjar tímafrekar umbreytingar sem fara ekki að skila árangri fyrr en eftir mörg ár eða áratugi. Að bíða eftir meiriháttar skorti og tilheyrandi verðhækkunum til að hrinda umskiptunum af stað er því ávísun á félagslegar og efnahagslegar hamfarir.

Fágætt en ódýrt?

Þessi tilviljanakennda verðþróun felur líka í sér aðra mikilvæga lexíu. Lögmálið um framboð og eftirspurn hefur fætt af sér hættulega ranghugmynd, sem er sú að verðlag sé mælikvarði á aðgengi. Samkvæmt þeirri ranghugmynd hlýtur það sem er dýrt að vera fágætt og öfugt – það sem er ódýrt hlýtur að vera til í miklu magni. Þar af leiðandi hljóti olíuverð dagsins í dag að vera góður mælikvarði á það hversu mikið er eftir af olíu í heiminum. En verðið í dag segir okkur í raun ekkert um hvað verður til af olíu á morgun. Sú ranghugmynd veldur hins vegar því að ráðamenn sofna á verðinum á meðan olían er ódýr og koma síðan af fjöllum þegar hana fer að skorta.

Svarið við spurningunni í titli greinarinnar er því skýrt „nei“: Það er ekki hægt að spá fyrir um þróun olíuverðs og þeir sem hafa reynt það hafa brennt sig illa á því.

Það er hins vegar hægt að spá fyrir um annað mikilvægara, því þar geta lögmál eðlisfræðinnar komið til aðstoðar: Framboð af óendurnýjanlegri auðlind er alltaf takmarkað, sem þýðir að fyrr eða síðar mun framboð af olíu dragast saman. Í mörgum olíuríkjum er framleiðslan nú þegar byrjuð að rýrna (meðal annars í Noregi) og sumir sérfræðingar úr olíuiðnaðinum hafa jafnvel spáð því að framboð af olíu fram til 2050 gæti dregist saman um helming, burtséð frá stríðsátökum í Miðausturlöndum. Hagkerfi sem ganga að miklu leyti fyrir innfluttri olíu, eins og það íslenska, munu skaðast illa ef sú spá gengur eftir, óháð því hvernig olíuverð þróast. Afkolun hagkerfisins snýst þar af leiðandi um miklu meira en að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Hún snýst beinlínis um líf og dauða hagkerfisins.