Olíukrísa á Kúbu

Líklega hefur nýleg olíukreppa hvergi haft jafn alvarlegar afleiðingar og á Kúbu, þar sem rafmagnsleysi er orðið daglegt brauð hjá stórum fjölda íbúa, auk þess sem sífellt stærri hluti þeirra glímir við skort á matvælum og innviðir eru víða í niðurníðslu. Viðskiptabann sem Bandaríkin hafa lagt á eyjuna hefur gert stöðuna enn erfiðari en ella þar sem Kúbverjar hafa nánast ekkert getað flutt inn af olíuafurðum í marga mánuði. Íbúar reyna að bjarga sér eins og mögulegt er, meðal annars með því að skipta út gömlum bandarískum bílum fyrir rafknúnum mótorhjólum og þríhjólum með sólarsellum.

Fáir Kúbverjar eiga efni á því að fara um á gömlum bandarískum bensínbílum lengur. Þeir efnameiri geta keypt sér rafbíl en rafmótorhjól og rafhjól eru mun ódýrari lausn. Mynd: El País.

Viðskiptabannið hefur nú verið í lýði í níu mánuði og valdið víðtæku rafmagnsleysi, enda er 83% af allri raforku á Kúbu framleidd í olíuknúnum raforkuverum og aðeins innan við 4% framleidd með endurnýjanlegum orkugjöfum. Samkvæmt Mannréttindastofu Kúbu (Cuban Observatory for Human Rights) eiga um 63% íbúa landsins erfitt með að nálgast nauðsynjavörur. Víða hafa myndast langar biðraðir við matvöruverslanir og bakarí og í júní var tilkynnt að fimm af sex skipum sem áttu að koma með hveiti til landsins höfðu ekki komist til hafnar vegna viðskiptaþvingana. Átta af hverjum tíu íbúum landsins segjast þurfa að sleppa máltíð minnst einu sinni á dag.

Betur stæðir borgarar búa við þann lúxus að geta keypt sér sólarsellur og rafbíla en fyrir marga er verðmiðinn of hár. Ríkisrekna raforkufyrirtækið Electrical Union of Cuba hefur á þessu ári hleypt af stokkunum verkefni til að setja upp 5.000 2-kW sólarorkukerfi sem Kínverjar hafa gefið þjóðinni að gjöf. Þeim hefur verið dreift til allra sveitarfélaga á Kúbu, með sérstakri áherslu á einangruðustu svæðin. Þá eru létt, rafknúin þríhjól með sólarsellum á þakinu, ýmist heimasmíðuð eða flutt inn frá Kína, orðin að einu vinsælasta farartæki á eyjunni.

Ferðamennska er í frjálsu falli enda hafa mörg flugfélög fækkað ferðum eða jafnvel gefist upp á sumum flugleiðum. Það sem af er ári hefur fjöldi ferðamanna til landsins dregist saman um 37% miðað við sama tímabil í fyrra.

Orkukrísan hefur einnig valdið auknum efnahagserfiðleikum en milli 2020 og 2025 er talið að efnahagur landsins hafi dregist saman um 15%. Víða gengur illa að sinna viðhaldi á grunninnviðum. Samkvæmt Mannréttindastofu landsins þurfa 47% íbúðareininga landsins á viðgerðum að halda og aðeins 18% eru taldar vera í góðu ástandi.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Kúbverjar þurfa að glíma við meiriháttar olíukreppu. Á eftirstríðsárunum og fram að tíunda áratug síðustu aldar reiddi þjóðin sig að miklu leyti á viðskipti við Sovétríkin, ekki síst þegar kom að olíuinnflutningi. Eftir fall Sovétríkjanna slitnaði hins vegar úr þessu viðskiptasambandi og við tók tímabil sem einkenndist af miklum olíuskorti. Innflutningur á olíu féll úr 13 milljónum tonna árið 1989 niður í 5,5 tonn árið 1993 eða um 60%. Eyjaskeggjar neyddust þá til að grípa til ýmissa neyðarráðstafana: vörubílum var breytt í strætó svo að borgarbúar kæmust leiðar sinnar og bílaeigendum var gert skylt með lögum að taka farþega upp ef eftir því var óskað. Auk þess voru flutt inn yfir milljón reiðhjól frá Kína og hálf milljón til viðbótar framleidd innanlands.

Vörubílum var breytt í strætó og leigubílar voru gjarnan í formi þríhjóls

Landbúnaður tók einnig miklum breytingum. Skortur á kemískum áburði, skordýraeitri og vélbúnaði varð til þess að lífræn ræktun var eina raunhæfa framleiðsluaðferðin. Matarskortur neyddi kúbverska borgara til að nýta hvern einasta landskika. Borgarbúar tóku víða frumkvæðið að því að rækta eigin matvæli á hvaða lausu landi sem var. Ríkisstjórnin hvatti síðar til slíkra ráðstafana og aðstoðaði við að efla þær. Borgargarðar spruttu upp um alla höfuðborgina í Havana og víðar þar sem upphækkuðum beðum var komið fyrir á þökum, í bakgörðum, á ónotuðum bílastæðum og á auðum lóðum. Söluturnar í miðborg Havana veittu íbúum ráðgjöf og útbreiddir götumarkaðir veittu greiðan aðgang að staðbundinni matvælaframleiðslu þar sem nánd við neytandann dró úr orkuþörfinni.
Frá þessari merkilegu sögu er meðal annars sagt í heimildarmyndinni The Power Of Community: How Cuba Survived Peak Oil (2006) sem er aðgengileg á YouTube.