Ósýnileg hönd Kína réttir við olíumarkaðinn
Fyrir árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran sem hófust í febrúar fór um 34% af öllum útflutningi hráolíu í heimi í gegnum Hormússund. Þar til viðbótar fóru um 5 milljónir tunna á dag af tilbúnu eldsneyti sömuleiðis í gegnum sundið. Eftir að stríðsátökin hófust dróst skipaumferð mikið saman, sem varð til þess að Alþjóðaorkumálastofnunin varaði við meiriháttar olíukrísu. Sú krísa hefur reyndar reynst mildari en margir óttuðust og þótt olíuverð hafi vissulega hækkað mælist það enn frekar lágt sögulega séð. Ein helsta ástæða þess virðist vera sú að Kínverjar hafa ákveðið að draga stórlega úr innflutningi á olíu og nýta sér ríkulegar neyðarbirgðir sem stjórnvöld þar í landi hafa verið að byggja upp á síðustu áratugum. En hvað duga þær lengi?

Í apríl síðastliðnum varaði Fatih Birol framkvæmdastjóri Alþjóðaorkumálastofnunarinnar við því að heimsbyggðin stæði nú frammi fyrir mestu orkukreppu í sögunni vegna stríðsins í Íran. Birol sagði slíkar kreppur hafa komið árin 1973, 1979 og svo 2022 þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. „Mun meira hefur tapast af olíu og gasi í þessu stríði en í hinum þremur kreppunum samanlagt,“ bætti hann við. Það kom þess vegna mörgum á óvart að olíuverð skyldi ekki hækka meira en raunin varð, og þótt afleiðingar hafi verið miklar á Asíumörkuðum hafa Evrópubúar hingað til síður fundið fyrir kreppunni. Fyrir því hafa verið nefndar nokkrar ástæður, sem þó ríkir nokkuð óvissa um.

Olíuleiðslur og neyðarbirgðir taka við keflinu
Sú fyrsta er sú staðreynd að olíuframleiðendur í Miðausturlöndum gátu að hluta til komist fram hjá lokun Hormússunds með því að flytja olíuna með öðrum leiðum. Af 20 milljónum tunna sem fóru í gegnum sundið daglega reyndist hægt að flytja um 5 milljónir tonna (einn fjórði) um aðrar flutningsleiðir, sér í lagi í gegnum olíuleiðslur á landi.
Sádí-Arabía, sem er stærsti einstaki olíuútflytjandi á svæðinu, gat til dæmis nýtt sér svokallaða „Austur-vestur“ olíuleiðsluna sem liggur um 1200 km leið frá austurhluta landsins og alla leið til Yanbu-hafnarinnar á vesturströnd landsins, þar sem olían er dæld á skip og flutt í gegnum Rauðahaf.
Í öðru lagi hafa Vesturlönd gripið til þess ráðs að losa um neyðarolíubirgðir til að vega upp á móti samdrætti í framboði. Slíkt kerfi neyðarbirgða var einmitt komið upp í kjölfar olíukreppu á áttunda áratug síðustu aldar og var ætlað að milda áhrif skyndilegs áfalls á olíumörkuðum. Í mars síðastliðnum tilkynnti Alþjóðaorkumálastofnunin sögulega ákvörðun um að losa um 400 milljónir olíutunna af neyðarbirgðum, sem er tvöfalt meira magn en hafði verið losað um í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu árið 2022.
Skömmtun og fjarvinna í efnaminni Asíulöndum
Í öðru lagi eru um 80% af allri olíu sem fer um Hormússund ætluð Asíumörkuðum, sem varð til þess að olíukrísan kom fyrst og fremst niður á Asíuþjóðum, sérstaklega efnaminni þjóðum sem höfðu litlar eða engar neyðarbirgðir olíu. Í Sri Lanka var skömmtunarkerfi komið á, en samkvæmt því máttu bíleigendur kaupa að hámarki 15 lítra af eldsneyti á viku, auk þess sem vinnuvikan var stytt niður í fjóra daga. Í Víetnam var starfsfólk hvatt til að vinna að heiman. Á Filippseyjum var lýst yfir neyðarástandi í lok mars 2026. Stórum hluta flugferða var aflýst, bæði í innanlands- og millilandaflugi, og vinnuvikan var stytt niður í fjóra daga fyrir alla ríkisstarfsmenn.
Í Evrópu hafa afleiðingarnar verið mildari og hvergi hefur verið gripið til neyðarráðstafana á borð við skömmtun eða fjarvinnu. Hækkanir á eldsneytisverði hafa þó haft sínar afleiðingar: Í Frakklandi hefur umferð fólksbíla á hraðbrautum landsins dregist saman um 6% yfir sumarið 2026 miðað við sumarið á undan. Ökumenn velja frekar þjóðvegi þar sem ekki þarf að greiða veggjald, auk þess sem eldsneytiskostnaður er minni þegar bíllinn er ekinn á 90 km hraða í stað 130 km hraða.
Hin ósýnilega hönd Kína
Stærsti einstaki þátturinn sem hefur mildað áhrif olíukreppunnar virðist vera staða olíubirgða í Kína og ákvarðanir ráðamanna þar í landi. Kínverjar eru stærsti einstaki olíukaupandi í heimi með innflutningi upp á 11,5 milljónir tunna á dag á undanförnum árum (13,5% af allri olíuframleiðslu í heimi). Svo virðist sem stór hluti þessa innflutnings hafi í raun farið í það að fóðra ríkulegar neyðarbirgðir, þær stærstu í heimi, með um 1400 milljónir olíutunna á heildina, á meðan næststærstu birgðirnar er að finna í Bandaríkjunum með aðeins um 400 milljónir.
Þessar ríkulegu neyðarbirgðir hafa gert Kínverjum kleift að draga stórlega úr sínum olíuinnflutningi, úr 11,5 milljónum tunna á dag fyrir stríð niður í 7 milljónir tunna í júní, sem er um 40% samdráttur á örfáum mánuðum. Þessar 4,5 milljónir tunna sem Kínverjar hafa þannig „afsalað sér“ breyta miklu: Til samanburðar er innflutningur hráolíu til Evrópu um 9 milljónir tunna á dag, sem þýðir að ef Evrópulönd hefðu þurft að taka þennan samdrátt á sig hefði það þýtt 50% minna olíuframboð í Evrópu.
Svo virðist sem Kínverjum hafi með þessu tekist að draga verulega úr verstu áhrifum olíukreppunnar, en eftir stendur spurningin: Hvað munu birgðirnar endast lengi og hvað gera Kínverjar næst? Stjórnvöld í Peking gefa ekki út nein opinber markmið hvað varðar neyðarbirgðir og opinberar tölur um birgðastöðu eru heldur ekki aðgengilegar. Það er þó vitað að Kínverjar eru enn að byggja nýja geymslutanka og nú þegar eru merki um að olíuinnflutningur þeirra sé byrjaður að aukast á ný.
Skemmdir á olíuinnviðum í Rússlandi og Sádí-Arabíu
Hinar ýmsu neyðaraðgerðir sem hefur verið gripið til miðuðu flestar að því að vandinn væri tímabundinn. Átökin myndu fljótt líða hjá og viðskipti með olíu myndu aftur ganga sinn vanagang. Sjö mánuðum eftir upphaf átakanna bólar hins vegar ekkert á friðsamlegri lausn og umferðin um Hormússund er enn takmörkuð að verulegu leyti.
Til viðbótar við lokun sundsins eru skemmdir á olíuinnviðum Rússlands vegna stríðsins í Úkraínu að bæta gráu ofan á svart. Sögulega séð hefur Rússland verið þriðji stærsti framleiðandi olíuafurða í heimi, á eftir Bandaríkjunum og Kína, með 32 stórar olíuhreinsunarstöðvar og framleiðslugetu upp á 6,5 milljónir tunna á dag. Hins vegar hafa drónaárásir á rússneskar olíuhreinsunarstöðvar aukist verulega á síðustu mánuðum og í júní var framleiðslugetan komin niður í 3,8 milljónir olíutunna á dag. Sú framleiðsla er 30% minni en á sama tíma í fyrra og hefur aldrei verið minni á síðustu 20 árum. Sú skerðing á framleiðslugetu hefur orðið til þess að rússnesk stjórnvöld hafa takmarkað útflutning eldsneytis til að vernda innlendar birgðir.

Nýlegir atburðir í Miðausturlöndum og Rússlandi sýna að þrátt fyrir töluverðan sveigjanleika í kerfinu er olíukreppan líklega langt frá því að vera afstaðin. Ekki eru öll kurl komin til grafar og óvissan fram undan ef til vill meiri en nokkru sinni.
