Óraunhæf og mótsagnakennd atvinnustefna
Ný atvinnustefna ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur var kynnt í apríl með útgáfu skýrslu undir fyrirsögninni Atvinnustefna Íslands: Vaxtarplan til 2035. Þegar rýnt er í skýrsluna kemur í ljós að markmiðin eru bæði óraunhæf og mótsagnakennd. Efni skýrslunnar bendir til þess að stjórnvöld séu úr tengslum við veruleikann og taki ekki mark á vísindalegri þekkingu.

Eilífðarvél hagvaxtarins
Helsta markmið stefnunnar er nokkuð hefðbundið: hagkerfið skal vaxa. Samkvæmt skýrsluhöfundum er tilgangur þessa vaxtar að „skapa verðmæti“ og þar með að „bæta lífskjör þjóðarinnar“. Í skýrslunni er harmað að síðan 2018 hafi hagvöxtur á mann mælst 0%, en hvergi er reynt að setja þessa efnahagslegu stöðnun í alþjóðlegt samhengi eða greina orsök hennar. Það virðist vera gert ráð fyrir því að hagvöxtur sé hið eðlilega ástand og að stöðnun síðustu ára sé tímabundið bakslag sem auðvelt verði að brjótast út úr með réttri atvinnustefnu.
En í sögulegu samhengi er hagvöxtur langt frá því að vera eðlilegt ástand. Hagfræðingar hófu að mæla hagvöxt á fjórða áratug síðustu aldar og síðan þá hefur mælst nokkuð kröftugur hagvöxtur á Vesturlöndum. Á seinni tímum hafa hagfræðingar hins vegar reynt að áætla stærð og vöxt heimshagkerfisins fyrr á öldum og viti menn, í ljós kom að efnahagsleg stöðnun var hið eðlilega ástand alla tíð fram að iðnbyltingu á 18. öld.

Fyrir iðnbyltingu var framleiðsla fyrst og fremst drifin áfram af mannlegu vinnuafli með aðstoð húsdýra. Vélvæðingin sem hófst í kringum 1800 breytti leikreglunum og nú var fólksfjöldi ekki lengur takmarkandi þáttur fyrir stærð hagkerfisins, því nú var mögulegt að auka framleiðslu með því að fjölga vélum í stað þess að fjölga vinnandi höndum. Svo lengi sem hægt var að útvega næga orku á þessar vélar (gufuvélar og brunahreyfla) virtist eilífðarvél hagvaxtarins vera óstöðvandi. Sú þróun hefur haldið áfram allt til okkar dags en nú eru merki um að hagvöxturinn sé að gefa eftir alls staðar í iðnríkjum, og Ísland er engin undantekning.
Skýringin er einföld: jarðefnaeldsneyti er sá byltingarkenndi orkugjafi sem hefur knúið vélvæðinguna áfram, en það vélafóður er því miður aðeins til í takmörkuðu magni og sífellt erfiðara reynist að útvega nægilegt magn af því til að viðhalda vexti hnattræna hagkerfisins (lokun Hormússunds er nýjasta dæmið um slíka erfiðleika). Aðrir orkugjafar geta að einhverju leyti leyst það af hólmi en ekki á þeim hraða og á þeim skala sem þarf til að viðhalda vextinum sem við höfum vanist.
Þessi sögulega og eðlisfræðilega staðreynd virðist vera æðstu ráðamönnum framandi. Við lestur skýrslunnar mætti halda að nóg sé að óska eftir hagvexti til að sá hagvöxtur birtist eins og andi úr lampa Alladíns.
Hugverkaiðnaður: óvæntur bjargvættur?
Raunar virðist skýrslan að einhverju leyti taka tillit til slíkra takmarkana, því í henni er minnst sérstaklega á svokallaðan „hugverka- og þekkingariðnað“ en skýrsluhöfundar telja að vöxtur slíks iðnaðar „takmarkist ekki af náttúruauðlindum“ og geti þar af leiðandi orðið einhvers konar vonarstjarna íslensks atvinnulífs. Hugtakið „hugverkaiðnaður“ er reyndar tiltölulega loðið en inn í þá skúffu eru gjarnan flokkaðar atvinnugreinar á borð við lyfjaframleiðslu, gagnaversiðnað og tölvuleikjagerð. Slíkum atvinnugreinum er sérstaklega hampað á þeim forsendum að þær geti vaxið „í sátt við umhverfið“.
En hvað segja vísindin? Kolefnisspor lyfjaiðnaðar hefur verið töluvert rannsakað og er langt því frá að vera smávægilegt. 99% af því hráefni sem notast er við í lyfjaframleiðslu eru afurðir unnar úr hráolíu eða jarðgasi, og 3% af allri olíuframleiðslu í heiminum er ætluð lyfjaiðnaðinum. Til að mynda þarf 1,3 kg af hráolíu til að framleiða 1 kg af paracetamol-töflum. Framleiðslan er þó aðeins ein hlið á peningnum, því til að koma lyfjum á markað þarf að flytja þau, en það er gert með skipum, vörubílum og flugvélum sem ganga fyrir olíu. Á meðan á Covid-faraldrinum stóð var bóluefni gjarnan flutt með flugi en samkvæmt útreikningum hefur sú dreifing kallað á 8000 flugferðir með Boeing 747-vélum, og sá flutningur einn og sér hefur valdið 100 sinnum meiri losun gróðurhúsalofttegunda (GHL) en framleiðslan sjálf.
Samkvæmt vísindagrein sem birtist í ritinu The Lancet í fyrra er lyfjaiðnaðurinn ábyrgur fyrir 1% af allri losun í heiminum. Það er tvöfalt meiri losun en kemur frá öllum veiðiskipaflota heims (0,5%). Þar að auki hefur losun geirans aukist um 77% milli 1995 og 2019.
Upplýsingatækni í miklum vexti – en hversu lengi?
Annar iðnaður sem stjórnvöld flokka undir „hugverkaiðnað“ er upplýsinga- og samskiptatækni (UST). Inni í þeim flokki er gjarnan nefndur gagnaversiðnaður sem hefur verið í miklum vexti á Íslandi, ásamt tölvuleikjagerð (fyrirtækið CCP er þá gjarnan nefnt sem fyrirmynd). En vöxtur UST-iðnaðarins á Íslandi hefði ekki getað orðið svo kröftugur nema samhliða örum vexti á heimsvísu. Árið 2006 höfðu aðeins 17% jarðarbúa aðgang að Internetinu, en í dag er talan 74%.
Það er vissulega gleðiefni að sem flestir hafi aðgang að þessari nýjung en skuggahliðin á þessari þróun hefur gleymst. Kolefnisspor UST-iðnaðarins hefur aukist hraðar en hjá nokkrum öðrum iðnaði (allt að 9% á ári) og er nú þegar orðið um 4% af allri hnattrænni losun, sem er jafn mikið og losun frá öllum vörubílaflota heims. Losunin verður til við tækjaframleiðslu (tölvur, símar, sjónvörp), uppbyggingu á nauðsynlegum innviðum (fjarskiptanetum og gagnaverum) og framleiðslu á orku til að knýja tæki og kerfi áfram (60% af allri raforkuframleiðslu í heimi er knúin áfram af jarðefnaeldsneyti).
Jafnvel þótt gagnaver á Íslandi séu knúin áfram af endurnýjanlegri orku kallar uppbygging innviða og framleiðsla á búnaði á ýmis konar hráefni sem eru framleidd með aðstoð jarðefnaeldsneytis (sement, plast, stál og aðrir málmar). Sömu sögu er að segja um tölvuleikjaiðnaðinn sem hefur getað þrifist þökk sé ofgnótt af orku og hráefni til að framleiða tölvur og byggja upp fjarskiptainnviði.
Framleiðslukeðjur UST-iðnaðarins eru samtvinnaðar olíuiðnaðinum. Það sést meðal annars á því að lokun Hormússunds veldur skorti á helíum, gastegund sem er meðal annars notuð við framleiðslu á örgjörvum. Helíum er unnið meðfram vinnslu á jarðgasi en um þriðjungur af helíumframleiðslu heims fer fram í Qatar, sem hefur ekki getað flutt út framleiðslu sína eftir lokun Hormússunds. Án jarðgass er ekkert helíum, án helíums engar tölvur, án tölva enginn „hugverkaiðnaður“…
Veldisvöxtur gervigreindar og UST-iðnaðarins almennt veldur gríðarlegri eftirspurn eftir ýmsum hráefnum, svo sem kopar, sem stofnanir á borð við Alþjóðaorkumálastofnun hafa varað við að gæti skort enda tekur að meðaltali 17 ár að koma nýrri koparnámu í notkun.

Mynd: Pexels
Grænþvottur í boði ríkisins
Af þessu sést að fullyrðingar um að hugverkaiðnaður sé óháður náttúruauðlindum og geti því vaxið án nokkurra hindrana eru andstæðar öllum vísindalegum staðreyndum. Grænþvottur í boði ríkisins?
Kaflinn um hugverkaiðnaðinn er reyndar langt því frá eina dæmið um slíkan grænþvott. Í skýrslunni er til dæmis fullyrt að „stærsta framlag Íslands til loftslagsmála enn sem komið er felst í sölu endurnýjanlegrar raforku til alþjóðlegra útflutningsgreina“. Hér er væntanlega átt við að „græn“ málmaframleiðsla á Íslandi hljóti að koma í veg fyrir notkun jarðefnaeldsneytis annars staðar í heiminum. En kenningin er ekki byggð á neinum vísindum: engin trygging er fyrir því að íslensk framleiðsla dragi úr framleiðslu annars staðar, enda getur alltaf verið um hreina viðbót að ræða.
Lagareldi fær líka óheftan aðgang að grænþvottavél ríkisins. Skýrsluhöfundar sjá fram á „mikil vaxtartækifæri“ í lagareldi og telja vöxtinn geta verið „sjálfbæran“ og „í sátt við umhverfið“. Vöxturinn mun þó augljóslega kalla á aukna notkun flutningstækja til að flytja inn aðföng og flytja út afurðir (vörubíla og skip sem í dag ganga langflest fyrir olíu). Þegar allt er talið veldur framleiðsla á einu kílói af eldislaxi fimm sinnum meiri losun en eitt kíló af þorski eða ýsu í línuveiðum.
Er fjölbreytni móteitur gegn áföllum?
Höfundum skýrslunnar er tíðrætt um fjölbreytni og áfallaþol íslensks atvinnulífs. En er aukin fjölbreytni endilega til bóta ef hinar nýju atvinnugreinar eru jafn háðar takmörkuðum auðlindum og þær gömlu?
Hugmyndin um að við getum stutt við vöxt allra atvinnugreina í einu er að leiða okkur út í skurð.
Viðurkenning á því að auðlindir séu takmarkaðar felur í sér nauðsyn þess að velja og hafna þær útflutningsgreinar sem við teljum geta hjálpað til við að byggja upp lágkolefnishagkerfi. Atvinnugrein sem reiðir sig á jarðefnaeldsneyti, hvort sem er innanlands eða annars staðar í framleiðslukeðjunni, er aðeins til þess fallin að veikja áfallaþol hagkerfisins og draga úr orkusjálfstæði landsins auk þess að setja lífsskilyrði á jörðu í hættu, og ætti því ekki að fá að vaxa.
Stjórnvöld ættu nú þegar að eiga fullt í fangi með að umbreyta rótgrónum útflutningsgreinum, svo sem sjávarútvegi, stóriðju og ferðaþjónustu, þannig að þær geti losað sig úr ánauð jarðefnaeldsneytisins. Tíminn er runninn upp þegar við megum ekki lengur spyrja okkur „hvernig getum við fengið meira af öllu?“ heldur frekar „hvernig getum við haldið í það sem við erum nú þegar með?“
