Keypti sér rafhjól og seldi Tesluna

Á blautlegu síðdegi í lok september situr blaðamaður við borð á Vitabarnum við Bergþórugötu. Tilefnið er stutt færsla sem maður að nafni Baldvin Björgvinsson birti á Facebook-síðunni sinni þann 1. september og vakti töluverða athygli. „Svona í tilefni bensínhækkunardagsins þá keypti ég þetta Riese & Muller rafhjól fyrir ári. Síðan þá hef ég farið 2.000 km, aðallega í og úr vinnu. Ég er fljótari á hjólinu en á bíl og aldrei bílastæðavandamál fyrir mig á Skólavörðuholtinu þar sem ég kenni við Tækniskólann. Ég seldi svo Tesluna í vor,“ byrjaði færslan, en henni fylgdu tvær myndir af hjólinu góða. Varla gat blaðamaður látið fram hjá sér fara að taka viðtal við þennan Baldvin, sem þáði boð um að hitta blaðamanninn þann dag eftir vinnu, sýna honum gripinn og vera samferða honum á leiðinni heim til Kópavogs – á hjóli auðvitað.

Aðspurður um menntun segist Baldvin vera rafvirkjameistari og rafvélavirkjameistari. Þar sem blaðamaður hefur takmarkaðan skilning á eðli mismunandi fræðigreina innan rafvirkjunar og horfir vandræðalegur framan í viðmælanda sinn neyðist Baldvin til að þýða hugtakið á mannamáli:

„Mótorar…“

Baldvin hefur kennt við Tækniskólann í þrjú ár, ýmist við Frakkastíg eða í Hafnarfirði. Hjólaleiðin frá heimili hans við Hrauntungu í Kópavogi að Tækniskólanum í Reykjavík er um fimm kílómetrar að lengd og tekur hann um 20 mínútur að hjóla. Leiðin í Hafnarfjörð er eitthvað lengri í kílómetrum talið en samt er Baldvin fljótari að fara þá leið, ekki nema 15 mínútur. „Það eru ekki svona miklar brekkur þar,“ útskýrir hann.

Langaði í þægilegt „ömmuhjól“

Brekkurnar trufla hann reyndar ekkert þótt þær hægi aðeins á meðalhraðanum. Með rafhjól af þeirri gerð sem Baldvin notar verða jafnvel bröttustu brekkurnar að góðum brandara og hann rúllar upp Öskjuhlíðina eins og ekkert sé. Hjólið er útbúið reim í stað keðju og í stað hefðbundinna gíra er stiglaus búnaður sem er bæði þægilegri og nánast viðhaldsfrír. „Það þarf reyndar smá auka útbúnað til að hjóla allan veturinn, góð finnsk nagladekk og síðan er ekkert til sem heitir vont veður, bara rangur fatnaður,“ skrifar Baldvin í færslunni sinni. Hann stundar skútusiglingar í frístundum sínum og er því vanur að klæða sig eftir veðri.

Baldvin rúllar upp öskjuhlíðina eins og ekkert sé á leiðinni heim til Kópavogs.

Áður en hann keypti síðasta hjólið hafði Baldvin átt tvö rafhjól. „En þessi hjól voru ekki nógu góð. Ég gafst eiginlega upp á þeim og keyrði frekar í vinnuna. Ég var hins vegar búinn að íhuga nokkuð lengi að kaupa mér vandað rafhjól og velti fyrir mér valinu vandlega. Ég vildi fá reim og Bosch-stýrikerfi og þekkti marga sem áttu þessa gerð af hjóli og mældu með henni. Ég vildi líka hjól í hollenskum stíl, sem væri þægilegt að stíga upp á og þar sem maður sæti í þægilegri, uppréttri stöðu. Þetta sem Hollendingar kalla omafiets eða ömmuhjól. Það er því miður ákveðin tilhneiging hjá karlmönnum á Íslandi að líta niður á svoleiðis hjól og halda að maður þurfi helst að vera á racer-hjóli með háa stöng og í spandex-galla til að vera karlmannlegur. En þetta er ekki praktísk útfærsla í daglegu stússi og hentar alls ekki öllum.“

Hjólið er af gerðinni Riese & Muller, skartar gúmmíreim í stað keðju og er búið stiglausum búnaði í stað hefðbundinna gíra. Það er auk þess búið ýmsum þægilegum aukahlutum svo sem kílómetra- og hraðamæli, áföstum vettlingum, hliðarspeglum og töskum.

 „Var búinn að vera of latur of lengi“

En hvað fékk Baldvin til að gefa bílinn upp á bátinn? „Það er sambland af nokkrum ástæðum,“ segir hann. „Í fyrsta lagi var ég farinn að finna fyrir því að ég væri búinn að vera of latur of lengi og þyrfti að fara að gera eitthvað fyrir heilsuna. Það kom mér eiginlega á óvart hvað bæði þrek og þol bötnuðu mikið eftir að ég byrjaði að hjóla í vinnuna. Ekki bara hefur þolið aukist heldur ýmislegt annað sem ég bjóst ekki við. Styrkur í baki og höndum og bara öllum líkamanum hefur stórbatnað og ég get nú gert hluti sem ég réð ekki við áður. Síðan er alltaf svolítið hausverkur að finna bílastæði við skólann og á háannatíma er umferðin þannig að ég er heilum tíu mínútum lengur að keyra heldur en að hjóla.“

„Eftir að hafa verið búinn að hjóla fram hjá Teslunni (módel Y) fimm sinnum í viku gat ég ekki lengur horft upp á hana rýrna í verði. Ég ákvað því að selja hana og kaupa mér minni rafbíl, sem ég nota reyndar sáralítið. Mér finnst sorglegt að sjá hvað nemendur í skólanum eru að sóa miklu í bílakostnaði. Það eru aðeins örfáir sem hjóla í skólann og skólinn gerir heldur ekkert mikið til að styðja við þennan ferðamáta. Til að byrja með mætti bjóða nemendum upp á almennilega hjólageymslu eins og við kennararnir höfum aðgang að.“

Hjólið skartar gúmmíreim í stað keðju

Flestir bílstjórar tillitsamir en reiðhjólainnviðir vanhugsaðir

Reiðhjól Baldvins er af gerðinni Riese & Muller og var keypt í Ellingsen fyrir rúmar 800.000 krónur, en samkvæmt úttekt FÍB nemur rekstrarkostnaður fólksbíls af minni gerð minnst 130.000 á mánuði og því getur jafnvel dýrt rafhjól borgað sig á aðeins sex mánuðum. „Þú getur keypt eitt svona hjól á ári og hent því í ruslið en samt verið í plús,“ eins og Baldvin orðar það í sínum beinskeytta stíl.

En hvernig líst Baldvini á reiðhjólainnviði á höfuðborgarsvæðinu? „Þetta getur verið óttalegur bútasaumur eins og þú þekkir. Sums staðar eru mjög góðir kaflar með aðskildum hjólastíg og svo allt í einu hverfur stígurinn og maður á bara að gera svo vel að redda sér einhvern veginn. Síðan eru víða krappar beygjur og blindhorn við gangamunna og engir speglar, sem býður alltaf upp á hættu. Uppbygging reiðhjólainnviða er eitthvað skrýtin, það virðist algjörlega skorta heildarsýn. Ég upplifi mig samt sæmilega öruggan. Flestir bílstjórar eru tillitsamir og fara varlega, en inni á milli eru auðvitað einhverjir svartir sauðir þannig að maður þarf alltaf að vera á varðbergi á gatnamótum.“

Fer stundum krókaleiðir til að lengja ferðina heim

„Það er auðvitað ýmislegt sem stjórnvöld mættu gera betur til að styðja við þennan ferðamáta. Niðurfelling virðisaukaskatts á rafhjólum var góð aðgerð en nú er því miður búið að draga hana til baka. Svo þyrfti að taka almennilega á þessum reiðhjólaþjófnaði sem hefur verið vandamál. Hjólið mitt er með áfasta læsingu á afturhjólinu sem er mjög þægileg og fljótleg lausn og er eiginlega orðin staðalbúnaður í Hollandi. Þar til viðbótar get ég læst stýrikerfinu í gegnum app í símanum þannig að það er til lítils að stela hjólinu nema maður kunni að hakka sig inn í stýrikerfið. Allar aðgerðir til að styðja við þennan ferðamáta myndu í rauninni borga sig margfalt til baka, til dæmis í formi minni kostnaðar í heilbrigðiskerfinu, og ekki veitir af því…“

Hjólið er með áfasta læsingu á afturhjólinu. Þægileg lausn sem er orðin staðalbúnaður í Hollandi.

Baldvin sér ekki fram á að fara aftur upp í bíl í fyrirsjáanlegri framtíð og er miklu frekar upptekinn af því hvernig hjól hann ætlar að kaupa sér næst. Upp á síðkastið hefur hann verið að nota hjólið í ýmislegt annað en ferðir til og frá vinnu. Búðarferðir eru gjarnan farnar á hjóli og svo hefur hann gaman af því að prófa nýjar hjólaleiðir, forvitninnar vegna. „Stundum finnst mér eiginlega of stutt að hjóla þessa fimm kílómetra heim, þannig að ég tek smá krók fram hjá Gróttu,“ segir hann að lokum og hlær, áður en hann stígur upp á hjólið og þytur af stað í átt að Hamraborg, með blessaðan blaðamanninn á hælum sér…

Eftir gott spjall á Vitabarnum fékk blaðamaður að fylgja Baldvini heim í Kópavoginn. Leiðin var bæði fjölbreytt og afslappandi.