Sturluð staðreynd: Hvað mætti gera fyrir peninginn?

Hvað mun Sundabraut kosta? Það veit enginn á þessu stigi en síðast þegar G. Pétur Matthíasson upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar var spurður talaði hann um að kostnaðurinn myndi nema „á annað hundrað milljörðum króna“. Það á hins vegar eftir að ákveða endanlega útfærslu (brú eða göng) og útbúa nánari kostnaðaráætlun. Í umræðu um kostnaðaráætlanir hins opinbera er stundum talað í háði um „Pí-lögmálið“, sem vísar þá til þess að endanlegur kostnaður framkvæmdarinnar reynist um það bil 3,14 sinnum hærri en upphaflega var gert ráð fyrir. Ef við túlkum orð upplýsingafulltrúans þannig að kostnaðaráætlun gæti hljóðað upp á 200 milljarða og margföldum þeirri tölu með Pí (= 3,14) má þannig gera ráð fyrir að endanlegur kostnaður verði um 630 milljarðar króna. En hvað annað mætti gera fyrir þennan pening?
12.600 kílómetrar af hjólastígum
Það mætti til dæmis leggja 12.600 kílómetra af hjólastígum. Í dag eru um 50 kílómetrar af hjólastígum í Reykjavík. Það mætti því tvöfalda hjólastígakerfið í borginni fyrir aðeins 0,4% af því sem Sundabraut mun kosta. Þar til viðbótar mætti leggja hjólastíg allan hringinn í kringum landið (1.300 km) fyrir aðeins um 20% af Sundabrautarpeningunum og afhenda öllum Íslendingum frítt rafhjól fyrir aðeins 10% af peningunum.
Tvöfalda framlög til almenningssamgangna
Það mætti líka tvöfalda rekstrarframlög til Strætó bs. næstu 90 árin. Rekstrarframlög ríkis og sveitarfélaga til Strætó nema um 7,5 milljörðum á ári sem er aðeins um 1,2% af Sundabrautarpeningunum. Þá mætti skipta út öllum 130 dísilknúnum strætisvögnum í eigu Strætó eða verktaka á vegum þess fyrir rafknúna strætisvagna fyrir aðeins 15% af Sundabrautarpeningunum.
Rafvæða allar þungaflutningar
Einnig mætti rafvæða þungaflutninga að fullu. Á landinu öllu eru um 4000 þungaflutningabílar en með aðeins helmingnum af Sundabrautarpeningunum mætti rafvæða þá alla.
Rafvæða alla fólksbíla í eigu heimilanna
Að lokum mætti rafvæða 200.000 heimili. Á Íslandi eru nú um 320.000 fólksbílar knúnir jarðefnaeldsneyti. Með Sundabrautarpeningunum mætti gefa 200.000 heimilum frían rafbíl í jólagjöf og koma þeim þannig í skjól frá olíuverðshækkunum.
Líklega væri besta lausnin eitthvað sambland af ofangreindum aðgerðum. Þær aðgerðir myndu sannarlega „gjörbylta samgöngum“ í mun meira mæli en Sundabraut, með orkuöryggi og loftslagsbreytingar að leiðarljósi.

