Bíllaus í Árbænum: „Þrjár flugur í einu höggi“

Nína María Saviolidis fæddist í Reykjavík en ólst upp í Grikklandi. Við 18 ára aldur fluttist hún aftur til Íslands og hóf nám við Háskóla Íslands. Í Aþenu var hún vön að hjóla allar sínar ferðir þrátt fyrir að borgin hafi verið mjög bílamiðuð á þeim tíma. Eftir komuna til Íslands var hún ekkert á þeim buxunum að „aðlagast“ íslenskri menningu og setjast upp í bíl. Þess í stað keypti hún sér ódýrt notað hjól og hélt bara áfram að hjóla út um allar koppagrundir. Blaðamaður Umskipta tók Nínu tali og varð samferða henni frá Háskóla Íslands, þar sem hún vinnur, að heimilinu hennar í Árbænum.

„Ég ólst upp í Grikklandi og pabbi minn er grískur að uppruna en við fluttumst til Íslands árið 2002 þannig að ég hef búið á Íslandi síðustu 24 árin. Við bjuggum í úthverfi Aþenu og áttum engan bíl þannig að ég var vön því að fara allar mínar ferðir á hjóli, labbandi eða með almenningssamgöngum. Borgin var ekkert sérstaklega hjólavæn á þeim tíma enda lítið af hjólastígum, en þetta vandist og þegar ég flutti til Íslands var ég orðin vön því að hjóla innan um bíla, þannig að bílamenningin hræddi mig ekkert. Fyrstu árin var ég fyrst og fremst að hjóla í frístundum mínum enda bjó ég mjög stutt frá vinnustaðnum og gat þess vegna labbað í vinnuna og skólann.“

Seldu bílinn en sakna hans ekki

Nokkrum árum síðar fluttu Nína og eiginmaður hennar í Árbæinn, í 10 kílómetra fjarlægð frá vinnustaðnum hennar. Þá var ekkert lengur raunhæft að ganga í vinnuna, en Nína var með einfalt ráð við því. „Ég keypti mér ódýrt notað fjallahjól og byrjaði að hjóla í vinnuna. Við áttum reyndar bíl á þeim tíma en eftir að hafa sest niður til að reikna út dæmið í Excel-skjali ákváðum við að selja bílinn. Við erum bæði einhvers konar Excel-nördar,“ útskýrir Nína og hlær. „Við áttuðum okkur á því hvers konar svarthol bíllinn var eiginlega fyrir heimilisreksturinn (fjárfesting, viðhald, tryggingar, eldsneyti) og það voru eiginlega forréttindi að fá að losa sig við hann.“

Eiginmaður Ninu er reyndar ekki mikið fyrir að hjóla. Þess í stað notar hann strætó og er sáttur við þann ferðamáta. Nína hjólar daglega 10 kílómetra leið í háskólann og heim aftur og tekur ferðin um 30 mínútur hvora leið. Á þeim örfáum dögum þegar veðrið er of slæmt til að hjóla notar hún strætó. Þrátt fyrir nokkuð bratta og langa brekku á leiðinni heim er hún ekkert á því að kaupa sér rafhjól. „Ég prófaði svona rafhjól einu sinni og þetta var svolítið skrýtin upplifun, mér fannst ég vera að svindla,“ segir hún og hlær. „En þetta er samt örugglega góð lausn fyrir marga og ef þetta getur hjálpað fólki að komast af stað þá er það frábært. Ég hef líka stundum hugsað að þetta gæti verið góður kostur fyrir mig þegar mig langar að fara aðeins lengri leiðir án þess að puða of mikið.“

Þrjár flugur í einu höggi

Nína er reyndar ekki lengur á fjallahjólinu sem hún keypti í upphafi. Eftir að hafa þróað með sér tennisolnboga þurfti hún að hvíla hjólið í smátíma. Í sjúkraþjálfun var henni ráðlagt að nota frekar dömuhjól þar sem hún sæti upprétt í þægilegri stöðu og þá keypti hún sér nýtt dömuhjól með bögglabera til að þurfa ekki að burðast með farangur á bakinu. „Ég hjóla stundum bara til gamans en fyrst og fremst finnst mér skemmtilegast að hjóla í vinnuna. Það er afslappandi, mun minna stressandi en að keyra og maður fær að tæma hugann eftir vinnudaginn. Líkaminn fær hreyfingu og svo sakar ekki að það er miklu ódýrara. Maður slær eiginlega þrjár flugur í einu höggi!“

Nína stundar rannsóknir og kennslu í umhverfis- og auðlindafræðum við Háskóla Íslands. Hún hefur meðal annars rannsakað umhverfisstjórnun fyrirtækja og áhrif loftslagsaðgerða á kynjajafnrétti og er með doktorsgráðu í viðskiptafræði. En hvaða reynslu hefur Nína af því að hjóla í Reykjavík og er eitthvað sem henni finnst að mætti betur fara?

„Eins og ég segi hef ég alist upp við að hjóla í bílaborg þannig að ég er orðin ýmsu vön. Ég passa mig alltaf mikið á vegamótum og hef lært að treysta aldrei bílum. Það hefur reyndar ekki alveg komið í veg fyrir slys enda hefur einu sinni verið keyrt á mig. Það var bíll sem keyrði yfir á rauðu, en sem betur fer var hraðinn ekki mikill og ég slapp ósködduð.“

Betur má ef duga skal

„Það þyrfti að huga betur að aðstöðu til að geyma hjól á vinnustöðum og víðar. Hjá mér hefur það ekki verið vandamál því ég er með frekar ódýrt hjól sem ég geymi úti en sumir vilja helst hafa aðgang að hjólageymslu. Það var til dæmis mjög lýsandi fyrir forgangsröðun hér í háskólanum að það var fyrst farið í að setja upp reykingaskýli áður en hugað var að hjólageymslu.“

„Það er reyndar búið að gera ýmislegt gott á síðustu árum eins og að leggja nýja hjólastíga, en það mætti líka margt gera betur, eins og að fjölga hjólastæðum, tengja betur strætó og hjólreiðar og klára þessa blessuðu borgarlínu. Það vantar líka betra eftirlit því það eru bílastæði úti um allt en samt eru bílar oft að leggja bara einhvers staðar í vegi fyrir hjólandi vegfarendum og jafnvel leggja hreinlega á hjólastígum“ (Nína sýnir blaðamanni stað á leiðinni heim þar sem hún sér reglulega heila bílaröð lagða á hjólastíg). „Það mætti taka fastar á því. Síðan eru þessir gæjar á breyttum rafskútum sem þjóta á hjólastígum á ofsahraða, það líst mér ekki á.“

„Viðhald á stígum er líka mjög misjafnt. Holur eru nefnilega miklu hættulegri fyrir hjólandi en fyrir bíla. Við sem erum á hjóli erum ekki með stálbrynju í kringum okkur og hola í stígnum getur valdið falli og alvarlegum meiðslum, en ekki bara skaða á tækinu sjálfu.“

En þótt margt megi bæta myndi Nínu aldrei detta í hug að skipta út hjólinu fyrir bíl. Hún er nú komin á nagladekkjum og tekur vetrinum fram undan opnum örmum. „Ég vona samt að vetrarþjónustan verði góð á hjólastígum í vetur því hún er forsenda þess að maður geti hjólað allt árið,“ segir Nína að lokum.