Þegar einelti verður að stjórnmálastefnu
Víða um Evrópu og Bandaríkin hefur andúð á innflytjendum verið á uppleið undanfarin ár. Ísland er engin undantekning frá þessu og margir innflytjendur hafa verið uggandi yfir þeim ummælum sem bæði núverandi dómsmálaráðherra og aðrir stjórnmálamenn hafa viðhaft um innflytjendur. Þær breytingar á innflytjendalögum sem ráðherra hefur boðað og réttlætingar sem fyrir þeim voru bornar eru farnar að líkjast einelti á vegum hins opinbera.

Hundaflautustjórnmálin
Þorbjörg Sigríður dómsmálaráðherra hefur ítrekað gefið í skyn að innflytjendur séu ógn við öryggi innfæddra, bæði með lagabreytingum sínum og ummælum sem voru viðhöfð til að réttlæta þær breytingar. Hún hefur haldið því fram að það hafi „ríkt stjórnleysi“ í innflytjendamálum, að „það gangi ekki að hafa allar gáttir opnar“ (sem hefur aldrei verið tilfellið) og að við þurfum að „opna augun“ og „horfast í augu við afleiðingar stefnuleysis“. Þar hefur hún verið að vísa í fólksfjölgun síðustu ára sem skýrist af auknum fjölda innflytjenda, en skautar fram hjá því að sú þróun skýrist fyrst og fremst af aðflutningi fólks frá EES-svæðinu og Úkraínu. Aðgerðir hennar beinast hins vegar gegn innflytjendum sem eiga uppruna utan EES og hafa lítið með fólksfjölgunina að gera.
Þar að auki er sú fólksfjölgun sem ráðherrann vísar í ekki síst afleiðing af atvinnustefnu stjórnvalda síðustu ára sem hefur kallað á mikið magn af innfluttu vinnuafli. Vilji stjórnvöld draga úr fólksfjölgun er þeim í lófa lagið að breyta um atvinnustefnu frekar en að níða skóinn af innflytjendum.
Eitt af fyrstu verkum Þorbjargar í ráðherraembætti var að heimila ríkinu að afturkalla vernd þeirra sem fremja alvarleg brot. Með þessu er verið að skapa hugrenningartengsl milli umsækjenda um vernd annars vegar og glæpa og ofbeldis hins vegar og gefa í skyn að lögbrot innflytjenda séu sérstakt vandamál sem kalli á róttækari úrræði en réttarkerfið býður nú þegar upp á.
Þorbjörg hefur líka boðað hertari reglur um dvalarleyfi: einstaklingar munu nú þurfa að hafa búið í landinu í 6 ár í stað 4 til að fá varanlegt dvalarleyfi. Ráðherrann hefur sagt að þeirri breytingu sé ætlað að koma í veg fyrir að „við séum að soga til okkar ákveðna hópa“. Hvaða „hópa“? Jú, til dæmis fólk sem „sýnir ekki nein merki þess að það þurfi að sækja um vinnu,“ því eins og allir vita eiga innflytjendur það til að leggjast eins og sníkjudýr á velferðarkerfið.
Afbrotamenn, sníkjudýr og letiblóð
Hundaflautustjórnmál dómsmálaráðherrans enda ekki hér. Hún boðar einnig þá breytingu að dvalarleyfi verði ekki veitt einstaklingum sem skulda opinber gjöld (innflytjendum er ekki treystandi til að borga skuldir sínar) og hertar reglur um fjölskyldusameiningar. „Það á alls ekki að vera sjálfgefið að það felist í því að allur þinn ættbogi fylgi þér,“ hefur hún sagt og gefur með þessu í skyn að innflytjendur séu að misnota kerfið og nema land í hrönnum. Lágmarksaldur sambúðarfólks fyrir fjölskyldusameiningar hækkar úr 18 upp í 24 ár og er þessu ætlað að koma í veg fyrir þvinguð hjónabönd og málamyndahjúskap (því innflytjendur eru svo gjarnir á að misnota hvorn annan og kerfið í leiðinni).
Þessu til viðbótar ætlar Þorbjörg að banna einstaklingum utan EES að sækja um dvalarleyfi á grundvelli vistráðningar (au-pair). Hún réttlætir það með því að vísa í dæmi um misnotkun og að kostnaður við að halda uppi eftirliti með vistfjölskyldum sé of hár. Vistfjölskyldur á Íslandi hafa mótmælt þessari ákvörðun, boðist til að borga fyrir eftirlitið og bent á önnur úrræði til að koma í veg fyrir misnotkun, en allt kom fyrir ekki: ráðherrann veit best hvað er innflytjendum fyrir bestu og það sem er þeim fyrir bestu er að koma helst aldrei til Íslands.
Raunar virðist ráðherrann líta svo á að efnaminni innflytjendum almennt sé fyrir bestu að fá aldrei að koma til Íslands því það bjóði upp á misnotkun og það sem hún kallar „innflutta stéttaskiptingu“. Henni er mjög umhugað um velferð slíkra einstaklinga og þess vegna ætlar hún að hækka gjaldskrá fyrir dvalarleyfi svo að efnaminni einstaklingar verði örugglega ekki fyrir því óláni að fá dvalarleyfi á Íslandi og verða fyrir misnotkun af hálfu óprúttinna landsmanna. Mætti ekki taka skrefið til fulls og senda efnaminni Íslendinga úr landi til að ráða bót á „innlendri stéttaskiptingu“, fátækum Íslendingum til bóta auðvitað?
Þessu til viðbótar boðar ráðherrann ýmsar aðrar „úrbætur“, svo sem strangari skilyrði um námsmannaleyfi og brottfarabúðir fyrir umsækjendur um vernd. Fern réttindasamtök hafa lýst áhyggjum af slíkum búðum og UNICEF á Íslandi telur það vera verulega afturför í mannréttindum ef börn verða hneppt í varðhald.
Því færri, því betra
Allar þessar aðgerðir eru liður í því sem Þorbjörg kallar að „ná árangri í innflytjendamálum“ og mælikvarðinn á þann árangur er nokkurn veginn þessi: því færri innflytjendur, því betra. Ráðherrann hefur enda sagt berum orðum að fækkun erlendra ríkisborgara sýni að ríkisstjórnin sé að ná árangri.
Ýmsir aðrir stjórnmálamenn hafa reyndar hoppað á eineltislestina og keppast nú um hver getur fundið frumlegustu aðferðina við að lumbra á innflytjendum. Diljá Mist Einarsdóttir þingkona hefur lagt fram frumvarp með það að markmiði að takmarka aðgang innflytjenda að túlkaþjónustu verulega. Diljá Mist telur að „það ætti ekki að vera fortakslaus réttur útlendinga að fá túlk á kostnað skattgreiðenda í öllum samskiptum við hið opinbera.“
Látum það vera að innflytjendur séu ítrekað kallaðir „útlendingar“ þótt þeir hafi búið í landinu í áraraðir og borgi sína skatta eins og aðrir. Með þessu frumvarpi er aftur verið að gefa í skyn að innflytjendur séu tregir eða latir til að læra íslensku og þar að auki baggi á ríkissjóði. Túlkar og innflytjendur hafa bent á að nær væri að gera aðfluttum auðveldara fyrir að læra íslensku með því að efla tungumálakennslu fyrir innflytjendur en áhuginn á því er lítill sem enginn. Nichole Leigh Mosty formaður fjölmenningarseturs hefur kallað tillögurnar „aðskilnaðarstefnu“ og „útlendingaandúð í málverndarbúningi“ í harðorðri grein á Vísi.
Sambærileg tillaga Miðflokksins um tímamörk gjaldfrjálsrar túlkaþjónustu var rædd í borgarstjórn Reykjavíkur og borgarfulltrúi flokksins skrifaði pistil á Vísi undir fyrirsögninni „Ævilöng túlkaþjónusta á kostnað útsvarsgreiðenda“. Það er blússandi gangur í nornaveiðunum þessi misserin…
Ungur og efnilegur krossfari
Sannkallaður höfðingi nornaveiðanna er þingmaðurinn knái Snorri Másson, sem situr um þessar mundir sveittur við að undirbúa rannsóknarrétt að hætti Spánverja. Snorri hefur meðal annars slegið því fram að Ísland standi „á krossgötum í innflytjendamálum“ og vill líkt og Þorbjörg grípa til aðgerða til að draga úr fólksflutningum til landsins frá ríkjum utan EES. Reyndar virðist sem Viðreisn, sem skilgreinir sig sem „frjálslyndan flokk“ á hátíðardögum, eigi mikla samleið með Miðflokknum í þessu máli. „Ég lýsi því yfir að langflestar þær tillögur sem koma fram í þessari skýrslu eru nokkuð sem Miðflokkurinn mun styðja heils hugar,“ sagði Snorri á Alþingi um skýrslu starfshóps dómsmálaráðuneytisins. Það er ánægjulegt að sjá að ólíkir flokkar geti fundið sér sameiginlegt áhugamál í því sem Snorri kallar að „varðveita samfélag okkar“.
En í huga Snorra er baráttan rétt að byrja og metnaðurinn er síst minni en hjá höfundi forns fræðirits, sem hefur því miður verið að safna ryki um nokkra hríð en gæti að lokum fengið uppreisn æru, og bar titilinn Mein Kampf. Snorri lítur svo á að fyrsta skrefið í baráttunni sé að loka því sem næst alfarið fyrir fólksflutninga til landsins utan EES, meðal annars með því að einskorða útgáfu atvinnuleyfa utan EES-svæðisins við „raunverulega, óumdeilanlega og brýna þjóðhagslega þörf á tilteknum sérfræðingum.“ Ekki viljum við að hreinsanirnar komi niður á lífsgæðum innfæddra Íslendinga… Þar næst þurfum við að „hætta kerfisbundinni móttöku hælisleitenda alveg,“ segir Snorri.
Lokalausn í vændum?
Næsta skref í áætlun Snorra yrði að „takmarka alla endurnýjun dvalarleyfa þeirra sem hafa fengið hæli, takmarka og þrepaskipta aðgangi fólks að velferðarkerfinu, skera niður fjárhagsstuðning ríkis og sveitarfélaga til erlendra ríkisborgara, hvort sem þetta heita atvinnuleysisbætur eða lífeyrir, hvers konar.“ Þá vill Snorri fara í „greiningarvinnu á hvaða hælisleitendur væru ekki að leggja sitt af mörkum til samfélagsins og grípa til viðeigandi aðgerða,“ enda vitum við öll að „Arbeit macht frei“.
Snorri vill einnig neita hælisleitendum um ótímabundið dvalarleyfi nema þeir hafi náð „fullum tökum á íslenska tungumálinu“, hvað sem það nú þýðir. Hér væri kannski tækifæri til að slá tvær flugur í einu höggi með því að fá hælisleitendur sem hafa komist í gegnum þessa þraut Snorra til að kenna ólæsum íslenskum unglingum að lesa. Það er þó ekki gefið að Snorri sé tilbúinn að launa þeim erfiðið því hann lítur svo á að „ríkisborgararéttur er í grunninn heilagur réttur Íslendinga með eðlilegum en fáum undantekningum.“ Með öðrum orðum: Innflytjendur geta aldrei orðið að „alvöru“ Íslendingum og öðlast kosningarétt, nema í sérstökum tilvikum (ef þeir eru hvítir og nógu ríkir?)
Enn hefur ekki komið fram hvaða lokalausn Snorri er með í pípunum en blaðamaður vill benda á að víða um land eru sundlaugar og þar er að finna vel nothæfa sturtuklefa sem mætti eflaust aðlaga að breyttri notkun. Hvað gerir maður ekki fyrir góðan málstað?
