Vistkreppuverðbólga: Fíll í Seðlabankanum?

Stýrivextir Seðlabankans eru enn í sögulegu hámarki og ekkert lát er á verðbólgunni, sem er nú komin upp í 6%. Orsakir þessarar verðbólgu eru eilífðarþrætuepli í íslenskri stjórnmálaumræðu og þar benda allir á náungann. En í öllu umrótinu virðist einn helsti sökudólgurinn sleppa nokkuð stikkfrí: vistkerfið. Alþjóðastofnanir hafa bent á að verðbólga síðustu ára hafi að stórum hluta verið drifin áfram af umhverfistengdum þáttum, svo sem versnandi aðgengi að orkuauðlindum (jarðgasi og olíu), auknum stríðsátökum vegna samkeppni um sömu auðlindir, aukinni tíðni veðuröfga með tilheyrandi uppskerubresti og verðhækkun matvæla, ásamt hækkandi kostnaði vegna truflana í framleiðslu- og flutningskerfum. Seðlabanki Íslands og stjórnvöld virðast ekki taka mark á viðvörunum og vistkreppuverðbólga virðist vera þeim framandi hugtak.

Verðbólga sem hefur rætur að rekja til versnandi ástands umhverfisins hefur á ensku verið kölluð ecoflation eða ecological inflation, en það hugtak verður hér þýtt sem „vistkreppuverðbólga“. Hugtakið birtist meðal annars í skýrslu á vegum World Resources Institute sem var gefin út árið 2008 undir titlinum Rattling supply chains. Höfundar skýrslunnar gerðu að umtalsefni áhrif umhverfisþátta á ýmsa framleiðslu en á árunum 2006 til 2008 urðu miklar verðhækkanir á hrávörumörkuðum: Heimsmarkaðsverð á olíu jókst um 110%, á hrísgrjónum um 217%, hveitikorni um 136% og sojabaunum um 107%. Þessar miklu hækkanir eru taldar hafa verið ein helsta kveikjan að mótmælaöldu sem fór af stað í ýmsum ríkjum Norður-Afríku og Arabíuskagans (arabíska vorið) og endaði meðal annars í blóðugu borgarastríði í Sýrlandi.

Á síðustu árum hafa ýmsar aðrar stofnanir velt fyrir sér áhrifum umhverfisógna á efnahag samfélaga og þar á meðal á verðstöðugleika. Á hverju ári kemur út skýrsla á vegum World Economic Forum en þar eru ýmsir leiðtogar og fræðimenn beðnir um að meta helstu ógnir sem steðja að hagkerfi heimsins (Global Risks Report). Í mörg ár í röð hafa umhverfistengdar ógnir ratað í efstu sæti listans. Í síðustu skýrslunni (2026) voru þær ógnir sem lentu í þremur efstu sætunum yfir alvarlegustu ógnir á næstu 10 árum allar umhverfistengdar: „veðuröfgar,“ „hnignun líffjölbreytni og hrun vistkerfa“ og „afgerandi breytingar á kerfum jarðar“. Gervigreind lenti aðeins í fimmta sæti, þrátt fyrir að sú ógn fái oft mun meiri umfjöllun í fjölmiðlum en vistkreppan.

Breska hugveitan Positive Money gaf einnig út skýrslu árið 2024 undir titlinum Verðbólga sem vistfræðilegt fyrirbæri. Þar voru margvísleg áhrif versnandi ástands vistkerfa einnig tíunduð og sérstök áhersla lögð á mikilvægi þess að seðlabankar heimsins tækju mið af þessum nýja veruleika í peningastefnu sinni. „Í heimshagkerfi sem einkennist af orkukrísum og loftslagskreppu er verðbólga – þótt hún sé flókið pólitískt fyrirbæri – í auknum mæli vistfræðileg í eðli sínu og bitnar hlutfallslega harðar á tekjulægri heimilum og ríkjum,“ segir í skýrslunni. Þar kom einnig fram að þegar verðbólga skaust upp í 11% í Bretlandi árið 2022 hafi um 75% af þeirri verðbólgu átt rætur að rekja til hækkunar orkuverðs. Höfundar skýrslunnar benda einnig á aukna loftslagsverðbólgu sem samkvæmt sumum greiningum gæti leitt til allt að 3% árlegrar hækkunar matvælaverðs fyrir árið 2035.

„Í slíku samhengi vinnur hefðbundin peningastefna þvert á markmið um verðstöðugleika og grefur auk þess undan efnahagslegum, félagslegum og umhverfislegum markmiðum stjórnvalda. Vaxtahækkanir taka ekki á meginorsökum hækkandi orku- og matvælaverðs, hamla fjárfestingu í fjármagnsfrekum grænum verkefnum og draga úr svigrúmi stjórnvalda í ríkisfjármálum. Þess í stað ættu seðlabankar að taka tillit til umhverfissjónarmiða við framkvæmd peningastefnunnar og kanna aukna samhæfingu þjóðhagsstefnu við ríkisfjármála- og atvinnustefnu,“ segir að lokum í skýrslunni.

Rannsókn frá Stanford-háskóla hefur leitt í ljós hvernig loftslagsbreytingar hafa verið að breyta vaxtarskilyrðum fimm helstu nytjaplantna heims undanfarin 50 ár (sér í lagi hveiti, bygg og maís) og eru að umbreyta landbúnaði.

Ólíkar birtingarmyndir vistkreppuverðbólgu

Fjölmargir umhverfistengdir þættir geta valdið vistkreppuverðbólgu en þeim má raða í fjóra meginflokka.

  1. Loftslagsverðbólga (ruslatunnan fyllist)

Loftslagsverðbólga er fyrsti flokkurinn en hún verður sífellt meira áberandi eftir því sem tíðni veðuröfga eykst með tilheyrandi skaða á framleiðslukeðjum. Mestu áhrifin eru á landbúnað og hafa þegar verið rannsökuð töluvert eins og nefnt var hér að ofan, en veðuröfgar geta einnig skaðað ýmsa aðra starfsemi, svo sem vöruflutninga og orkuframleiðslu.

Miklir þurrkar í Panama árið 2024 leiddu til dæmis til þess að stjórnvöld þar í landi neyddust til að takmarka skipaumferð í gegnum Panama-skurðinn í Mið-Ameríku. Sá skurður er eins og stór laxastigi sem gerir flutningaskipum kleift að komast til dæmis frá vesturströnd Bandaríkjanna til Evrópu án þess að þurfa að sigla suður fyrir Hornhöfða í Suður-Ameríku, en 5% af hnattrænum skipaflutningum fara í gegnum skurðinn. Hver sigling í gegnum skurðinn kallar hins vegar á óhemju magn af ferskvatni – magn sem samsvarar daglegri vatnsneyslu um 500.000 íbúa. Vatnið er fengið úr Gatun-stöðuvatninu en í þurrkatíð tæmist vatnið hraðar en úrkoman ræður við og fyrir vikið þarf að takmarka skipaumferð. Flutningaskip þurfa þá að sigla alla leið suður fyrir Hornhöfða en sú krókaleið bætir við 15.000 kílómetrum og 18 dögum við siglinguna, með tilheyrandi hækkun á flutningskostnaði.

Í september á þessu ári hefur umferð í gegnum skurðinn aftur verið takmörkuð úr 40 skipum á dag niður í 32 eftir þurrkatíð: milli maí og ágúst mældist úrkoma í landinu 34% lægri en meðaltalið. Yfirvöld í Panama selja réttinn til að sigla í gegnum skurðinn hæstbjóðanda en takmarkanir á umferð valda því iðulega að gjaldið hækkar út úr öllu valdi. Í lok árs 2025 var meðalgjaldið 55.000 $ á hvert skip en síðan þá hefur gjaldið þrefaldast og stærstu skipin hafa þurft að borga allt að 5 milljónum dollara í siglingagjöld.

Þurrkar hafa líka sett mark sitt á ýmsa innviði í Evrópu sumarið 2026, svo sem með því að valda truflunum á raforkuverum sem reiða sig á vatn úr ám til kælingar og hafa þess vegna þurft að draga úr raforkuframleiðslu sinni.

Veðuröfgar eru líka nú þegar farnar að valda auknum tryggingakostnaði. Í Bandaríkjunum sem dæmi hefur verðlagning fasteignatrygginga hækkað um 60-80% á aðeins þremur árum, milli 2020 og 2023, á þeim svæðum sem eru mest útsett fyrir veðuröfgum af völdum loftslagsbreytinga, svo sem Flórída og Mexíkóflóa (afsakið, Ameríkuflóa…). Víða í Evrópu og Bandaríkjunum eru tryggingafélög farin að hika við að tryggja húseignir á viðkvæmum svæðum og allt stefnir í að stórum hluta húseigenda verði einfaldlega neitað um tryggingar í nálægri framtíð eða að tryggingarnar verði svo dýrar að fáir muni hafa efni á þeim.

  1. Auðlindaverðbólga (skápurinn tæmist)

Auðlindaverðbólga lætur á sér kræla þegar auðlindir eru ofnýttar, sem leiðir iðulega til ójafnvægis milli framboðs og eftirspurnar.

Eitt afbrigði auðlindaverðbólgu er orðið því sem næst daglegt brauð í lífi margra Evrópubúa, en það er jarðefnaverðbólga (e. fossilflation). Hún fór eins og eldur í sinu eftir innrás Rússa í Úkraínu árið 2022 (m.a. 180% verðhækkun á jarðgasi í Evrópu) og svo aftur eftir árásir á Íran (m.a. 100% verðhækkun á dísilolíu og þotueldsneyti). Í almennri umfjöllun um þessa viðburði er verðbólgan gjarnan skilgreind sem afleiðing af stríðsátökum frekar en ofnýtingu auðlinda, en sú framsetning er aðeins hálfsannleikur: ef Evrópuþjóðir hefðu ekki ofnýtt eigið jarðefnaeldsneyti, meðal annars í Norðursjó, hefðu þær síður þurft á rússnesku jarðgasi að halda, og stríðið í Úkraínu hefði þar með engin áhrif haft á verðbólgu. Að sama skapi hefðu Bandaríkjamenn getað vegið upp á móti lokun Hormússunds með því að auka eigin framleiðslu væru þeir ekki nú þegar búnir að ofnýta eigin olíuauðlindir. Nýlegar hækkanir á olíu- og gasverði eru því ekki eingöngu afleiðing af stríðsátökum heldur líka drifnar áfram af ofnýtingu orkuauðlinda.

Stundum er því haldið fram að ofnýting geti aðeins átt við um óendurnýjanlegar auðlindir, svo sem jarðefnaeldsneyti, og að framboð af endurnýjanlegum auðlindum sé svo gott sem ótakmarkað, en veruleikinn er ekki svo svarthvítur. Sjávarafurðir eru til dæmis endurnýjanlegar en séu fiskistofnar ofveiddir geta þeir ekki lengur endurnýjað sig. Svokallaðir endurnýjanlegir orkugjafar á borð við vindorku og sólarorku kalla á vinnslu efna sem eru aðeins til í takmörkuðu magni (plast, kopar, líþíum og ýmsir aðrir málmar til dæmis).

Aukin aðsókn í endurnýjanlega orku og rafvæðing samgangna kallar á aukna koparframleiðslu. Alþjóðaorkumálastofnunin hefur varað við því að framboð af kopari á næstu árum og áratugum muni ekki anna eftirspurn miðað við sviðsmyndir sem byggja fyrst og fremst á orkuskipti frekar en kerfisbreytingum. Markaðsverð kopars á heimsmörkuðum hefur sexfaldast síðan árið 2000 og hefur aldrei mælst jafn hátt. Heimild: Macrotrends.

Að því leyti er hægt að ofnýta endurnýjanlega orku eins og hverja aðra auðlind og sú ofnýting getur leitt til skorts sem leiðir aftur til verðbólgu. Orkuskiptin sem ríki heims hafa heitið að innleiða eru meðal annars að valda aukinni eftirspurn eftir kopari en verð á kopari á heimsmörkuðum hefur tvöfaldast síðan 2021 og Alþjóða Orkustofnunin (IEA) hefur varað við því í nýrri skýrslu að framboð af kopar og öðrum málmum muni að öllu óbreyttu ekki duga til að fullnægja eftirspurn. „Ítarleg greining á hverju verkefni fyrir sig bendir til þess að þau verkefni sem tilkynnt hafa verið nægi aðeins til að mæta 70% af eftirspurn eftir kopar og 50% af eftirspurn eftir litíum árið 2035 í sviðsmynd þar sem öll ríki heims ná loftslagsmarkmiðum sínum.“

  1. Græn verðbólga (kostnaður við kerfisbreytingar)

Aðgerðir til að draga úr neikvæðum áhrifum hagkerfisins á umhverfið geta falið í sér aukinn kostnað og þar með valdið verðbólgu. Þetta er svo sem ekki nýtt enda hefur regluverk sem miðar að því að lágmarka umhverfisáhrif ýmissar iðnaðarstarfsemi oft verið þyrnir í augum þeirra fyrirtækja sem eiga í hlut, sem vísa þá gjarnan í þann viðbótarkostnað sem slíkar ráðstafanir fela í sér. Loftslagsaðgerðir af ýmsu tagi geta leitt af sér slíkan aukakostnað, að minnsta kosti til skamms tíma, og geta þar með verið verðbólguhvetjandi eins og hvert annað regluverk.

Það er þó vert að nefna að loftslagsaðgerðir eru ekki almennt eða sjálfkrafa verðbólguhvetjandi, og stundum þvert á móti. Í samgöngumálum, sem dæmi, geta ýmsar loftslagsaðgerðir leitt til minnkandi kostnaðar. Samgöngustefna sem setur virka máta og almenningssamgöngur í forgang er mun ódýrari en bílamiðuð samgöngustefna og ætti því að draga úr líkum á verðbólgu.

Áhrif á verðbólgu geta þar að auki verið ólík á mismunandi tímaskölum. Aðgerðir sem eru verðbólguhvetjandi til skamms tíma geta um leið dregið úr verðhækkunum til langs tíma. Kolefniskvótakerfi geta til að mynda leitt til hærra vöruverðs til skamms tíma, en séu tekjurnar nýttar til að flýta fyrir afkolun hagkerfisins geta slík kerfi á endanum leitt til minni verðbólgu þar sem samfélög verða síður háð takmörkuðum og innfluttum auðlindum. Sömuleiðis geta breyttir framleiðsluhættir í landbúnaði með það að markmiði að draga úr notkun á tilbúnum áburði og losun gróðurhúsalofttegunda leitt til hækkunar á matvöruverði til skamms tíma en um leið aukið fæðuöryggi til langs tíma.

Umræðan um verðbólguáhrif loftslagsaðgerða snýst þannig að mörgu leyti um það hvort við séum tilbúin að opna veskið í dag til þess að verja okkur gegn áföllum í framtíðinni.

  1. Aðlögunarverðbólga (kostnaður við rústabjörgun)

Aðlögunarverðbólga er stundum sett í sama flokk og græn verðbólga. Hún er hins vegar frábrugðin að því leyti að hún er óhjákvæmileg: við getum ákveðið að sleppa öllum loftslagsaðgerðum og þar með verður græn verðbólga engin (hvort það sé skynsamlegt er auðvitað önnur spurning). Við höfum hins vegar fátt annað val en að aðlagast loftslagsbreytingum eftir að skaðinn er skeður. „Aðlögun“ er reyndar villandi hugtak því hér er frekar um rústabjörgun að ræða. Sú rústabjörgun mun kosta peninga og þar með valda verðbólgu. Aukin tíðni sjávarflóða og skriðufalla mun til að mynda kalla á ýmsar aðgerðir, rýmingar, viðgerðir, auknar fjárfestingar í flóðavörnum og svo framvegis. Sveitarfélög sem þurfa að fara í slíka „aðlögun“ munu að öllu óbreyttu þurfa að auka skattheimtu til að standa undir þessum kostnaði. Sömuleiðis gæti veiking AMOC-hringrásarinnar leitt til kaldara loftslags á Íslandi sem myndi aftur kalla á meiri hitunarþörf hjá heimilum landsins með tilheyrandi hækkun á hitaveitureikningum og svo framvegis.

Þar sem aðlögunarverðbólga er afleiðing af því að hafa ekki farið í aðgerðir til að takmarka losun gróðurhúsalofttegunda er hún einhvers konar bakreikningur með dráttarvöxtum sem við fáum fyrir að hafa ekki greitt upphaflega reikninginn á réttum tíma (græn verðbólga). Það er því engin leið að sleppa við verðbólguna að öllu leyti, heldur eingöngu spurning um hvaða afbrigði hennar við teljum vera síst skaðleg. Það er líka ljóst að besta leiðin til að lágmarka líkur á auðlindaverðbólgu er að leggja áherslu á þær lausnir sem krefjast minnstrar aðsóknar í takmarkaðar (og innfluttar) auðlindir.

Innlend og innflutt verðbólga: af tvennu illu?

Í umræðunni um verðbólgu virðist öll athyglin beinast að innlendri verðbólgu og leitin að sökudólgum ætlar engan enda að taka. Eru launakröfur verkalýðsfélaga verðbólguhvetjandi? Eru fyrirtæki að okra? Er Seðlabankinn með allt niður um sig? Eru ríkisfjármálin í ólestri?

Á meðan er innflutt verðbólga varla rædd. Fyrir því eru stundum færð þau rök að við höfum enga stjórn á innfluttri verðbólgu en getum aftur á móti með ýmsum ráðum komið böndum á innlenda verðbólgu. „Við ráðum ekki hvað gerist í Miðausturlöndum,“ er þá sagt.

En það má færa ýmis rök fyrir því að innflutt verðbólga sé í raun miklu alvarlegra vandamál en innlend verðbólga, og víst getum við ýmislegt gert til að draga úr neikvæðum áhrifum hennar.

Flestir virðast sammála því að innlend verðbólga sé fyrst og fremst afleiðing af einhvers konar höfrungahlaupi sem á rætur að rekja í verðtrygginguna. Staðreyndin er hins vegar sú að „höfrungahlaupið“ er að mörgu leyti sýndarvandamál. Þegar allir hækka verðlag sinnar vöru eða þjónustu innanlands en launin hækka um leið um svipaða prósentu erum við sem þjóð hvorki betur né verr sett en áður. Krónan kaupir minna en áður en við höfum líka fleiri krónur.

Allt annað gildir um innflutta verðbólgu: Þegar verð á innfluttu eldsneyti tvöfaldast á heimsmörkuðum hækkar verð á fiski ekki sjálfkrafa á móti. Það þýðir að við fáum helmingi minni olíu fyrir hvert tonn af fiski sem við flytjum út. Við það verðum við sannarlega fátækari og engin peningastefnunefnd getur breytt því. Eina ráðið við því er að finna uppskriftina að góðu lífi án jarðefnaeldsneytis, eða að minnsta kosti með minna af því.

Ýmis nýleg dæmi um vistkreppuverðbólgu

Falin verðbólga

Hversu stóran hluta núverandi verðbólgu má rekja til vistkreppunnar? Á þessu stigi er ómögulegt að segja til um það þar sem fyrirbærið hefur ekki verið rannsakað á Íslandi svo blaðamaður viti til. Margt bendir hins vegar til þess að hún sé stærra hlutfall af heildarverðbólgu en marga grunar og að áhrif hennar séu alvarlegri en áhrif annarrar verðbólgu.

Þegar kemur að vistkreppunni er verðbólga hins vegar aðeins eitt af mörgum mögulegum einkennum, og ekki alltaf það versta. Einkennin geta einnig birst í formi versnandi fjárhagslegs öryggis heimilanna og slíkar afleiðingar má þannig skilgreina sem „falda verðbólgu“ (efnahagsleg fyrirbæri sem geta skaðað afkomu heimilanna án þess að mælast í vísitölu neysluverðs). Hér eru tekin fyrir þrjú dæmi um falda verðbólgu:

  1. Aukið atvinnuleysi: Í nútímasamfélagi eru flestöll störf beint eða óbeint háð flæði af orku og auðlindum. Verði einhver truflun á því flæði vegna veðuröfga eða auðlindaskorts tapast störfin. Þau fjölmörgu störf sem hafa skapast í ferðaþjónustunni á undanförnum árum eru til dæmis háð því að flæði af olíu til landsins haldist stöðugt næstu ár og áratugi. Minnkandi flæði orku og auðlinda veldur atvinnuleysi sem aftur veldur tekjutapi hjá viðkomandi einstaklingum. Lækkun ráðstöfunartekna af þessu tagi er ekki skilgreind sem verðbólga þar sem ekki er um verðhækkanir að ræða en áhrifin eru þau sömu: Versnandi afkoma heimila.
  1. Faldar verðhækkanir: Þegar syrtir í álinn vegna vistkreppu geta fyrirtæki gripið til þess ráðs að draga úr kostnaði með því að lauma verðhækkunum fram hjá hefðbundnum mælingum, til dæmis með því að nota ódýrara hráefni og draga úr gæðum vörunnar án þess að lækka verðið um leið, með því að draga úr þjónustu með aukinni sjálfvirknivæðingu (til dæmis með notkun spjallmenna í stað þjónustufulltrúa) eða með því að bjóða upp á minni pakkningar fyrir sama verð (e. shrinkflation). Einnig geta ýmis konar falin aukagjöld sloppið fram hjá mælingamönnum Hagstofunnar þegar kemur að þjónustu.
  1. Niðurskurður hjá hinu opinbera: vistkreppa leiðir iðulega til efnahagskreppu. Á krepputímum dragast tekjur ríkisins saman og þá leita stjórnmálamenn allra leiða til að draga úr útgjöldum ríkisins. Það er gjarnan gert með því að draga úr þjónustu og/eða draga úr ýmsum félagslegum greiðslum, stuðningi við félagsstarf og ýmsu öðru. Sá niðurskurður getur leitt til lækkandi ráðstöfunartekna, verri þjónustu og aukins kostnaðar hjá mörgum heimilum, án þess þó að þau áhrif mælist í verðbólgutölum.

Verðbólga, verðhjöðnun eða skortur?

Áhrif vistkreppu á verðbólgu hafa verið rannsökuð í síauknum mæli víðs vegar um heiminn á síðustu árum, þó að íslenskir fræðimenn hafi sýnt þeim lítinn áhuga. Dæmi um slíka verðbólgu hafa verið rakin hér að ofan en áhrifin eru þó margslungnari en halda mætti. Vistkreppan getur í sumum tilfellum jafnvel leitt til lækkandi verðlags, hversu mótsagnarkennt sem það kann að virðast. Þau áhrif eru í reynd skiljanleg: Þar sem vistkreppa leiðir fyrst til hækkandi verðs á ýmsum nauðsynjavörum leiðir hún til þess að heimili og fyrirtæki neyðast til að draga úr kaupum á vöru og þjónustu sem þykir síður nauðsynleg. Minnkandi eftirspurn eftir slíkum vörum getur þá leitt til verðhjöðnunar.

Slík verðhjöðnun var til dæmis áberandi á íslenskum fasteignamarkaði á árunum eftir fjármálahrunið þegar versnandi afkoma heimilanna leiddi til þess að fasteignir seldust illa og fasteignaverð lækkaði umtalsvert.

Öfug áhrif vistkreppu á verðbólgu geta líka átt við um olíuverð og um það eru nú þegar ýmis dæmi úr sögunni. Eftir olíukreppur áttunda áratugarins fjórfaldaðist olíuverð til að byrja með en olíuskortur leiddi um leið til efnahagssamdráttar, verðbólgu og atvinnuleysis og stuttu síðar lækkaði olíuverð aftur um 60% milli 1980 og 1986. Verðbólgan á það stundum til að eltast við skottið á sjálfri sér…

Að sumu leyti eru áhrif vistkreppu á verðlag lúxusvandamál. Hjá efnameiri heimilum á Vesturlöndum kallast vandinn sem er fram undan verðbólga. Hjá efnaminni heimilum og í efnaminni ríkjum heims þar sem fjölskyldur verja nú þegar helmingi tekna sinna eða meira í matvæli er verðhækkun ekki mæld í evrum eða krónum heldur í máltíðum. Í Kenía er gert ráð fyrir að fimmtungur maísuppskerunnar bregðist á núverandi vaxtartímabili vegna þurrka síðustu mánuðina og verðhækkanir eru nú þegar að gera vart við sig. Þar smitast verðlag yfir í pólitískan óstöðugleika: í maí létust að minnsta kosti fjórir í mótmælum sem brutust út um allt land vegna hækkana á eldsneytisverði, í landi þar sem matvælaverðbólga var þegar komin yfir 9% áður en uppskeran brást.

Í heimi þar sem samkeppnin um takmarkaðar auðlindir harðnar er dauði eins bókstaflega annars brauð og verðbólgan er dómarinn sem sker úr um hverjir fá að lifa. Spennan magnast með hverju árinu sem líður, með hverri nýrri orkukreppu og með hverjum uppskerubresti sem hleðst ofan á þann síðasta.

Nýlega braust spennan út við landamæri Evrópu þegar nærri 60.000 manns frá Marokkó fóru yfir til spænsku hólmlendunnar Ceuta og yfir 100 manns létust við tilraunina (flestir þeirra drukknuðu á leiðinni). Orsök þessarar landamærakrísu eru marghliða og alþjóðastjórnmál fléttast inn í atburðarásina en jarðvegurinn sem hún sprettur úr er vistkreppan: Viðvarandi þurrkar síðustu sjö árin, þeir verstu í Marokkó í fjóra áratugi, hafa leitt til þess að kornuppskeran hefur dregist saman um nærri helming, þurrkað út 720.000 störf í landbúnaði og hrakið bændafjölskyldur í átt að borgunum og ströndinni. Loftslagsskýrsla Alþjóðabankans um Marokkó sem var gefin út árið 2023 var meira að segja búin að spá fyrir um þessar hörmungar með töluverðri nákvæmni.

Í íslenskum fjölmiðlum hafa verið fluttar margar fréttir af atburðunum í Ceuta en fáar, ef einhverjar, hafa fjallað um þann jarðveg sem atburðirnir spretta úr: vistkreppuna. Samkvæmt athugun blaðamanns hafa birst minnst 20 fréttir um atburðina í Ceuta á vefsíðu RÚV. Engin þeirra hefur fjallað um áhrif loftslagsbreytinga á fólksflutninga í Marokkó. Er einhver furða að almenningur vanmeti alvarleika vandans þegar helstu fjölmiðlar landsins þegja vandamálið í hel?

RÚV hefur flutt minnst 20 fréttir um atburðina í Ceuta. Engin þeirra hefur fjallað um áhrif loftslagsbreytinga á fólksflutninga í Marokkó.

Hvað er til ráða?

Verðbólga hefur lengi verið þrætuepli í íslenskri stjórnmálaumræðu en þá hefur gjarnan verið einblínt á innlenda þætti hennar. Á tímum vistkreppu er hins vegar óhjákvæmilegt að sífellt stærra hlutfall verðbólgunnar verði innflutt og vistkreppudrifið.

Sem betur fer er það ekki svo að við séum varnarlaus gegn áhrifum innfluttrar verðbólgu, en í þessu eins og mörgu öðru eru engar töfralausnir heldur felst besta vörnin í langtíma kerfisbreytingum og fyrirhyggju. Þegar verðbólgan er komin fram er skaðinn nú þegar skeður og skammtímaplástrar gera yfirleitt lítið annað en að mála yfir vandann og jafnvel hella olíu á eldinn. Það á til dæmis við um tilraunir til að draga úr olíuverðshækkunum með skattalækkunum, sem draga úr hvatanum til að breyta, tæma ríkiskassann og draga um leið úr getu ríkisins til að fjárfesta í langtímalausnum.

Uppskriftin að því að draga úr vægi vistkreppuverðbólgu felst í því að endurskoða innkaupakörfuna okkar sem samfélag, með orkuskipti og loftslagslausnir að leiðarljósi. Verðbólga er reiknuð út frá vísitölu neysluverðs og sú vísitala er fengin með því að mæla hvað „dæmigerð“ innkaupakarfa meðal-Íslendings kostar: matvörur, húsnæði, húsbúnaður, eldsneyti, afþreyingu og fleira. Samsetning þessarar innkaupakörfu er ekki meitluð í stein. Við getum sem samfélag ákveðið að breyta samsetningunni með það að markmiði að verja hana fyrir áhrifum innfluttrar verðbólgu.

Sumt af þessu erum við nú þegar byrjuð að gera. Með því að rafvæða bílaflotann erum við til dæmis að draga úr áhrifum olíuverðshækkana á verðbólgu þar sem eldsneyti á bíla verður sífellt minna hlutfall af innkaupakörfunni. Sömuleiðis mætti koma innkaupakörfunni betur í skjól með því að efla innlenda matvælaframleiðslu, draga úr notkun innflutts áburðar í landbúnaði og efla innlenda framleiðslu á ýmis konar nauðsynjavöru. Slíkar áherslur geta til skamms tíma leitt til hækkandi vöruverðs en um leið dregið úr líkum á innfluttri verðbólgu í framtíðinni.