Grænþvottur mánaðarins: Morgunblaðið telur auðlindir vera óþrjótandi

Einu sinni í mánuði afhendir ritstjórn Umskipta sérstök grænþvottaverðlaun til einstaklings, fyrirtækis eða stofnunar sem hefur náð framúrskarandi árangri á sviði nýsköpunar í grænþvotti. Að þessu sinni hefur ritstjórn Umskipta ákveðið að veita Ásgeiri Ingvarssyni, blaðamanni hjá Morgunblaðinu, grænþvottaverðlaunin fyrir „frumlega túlkun á lögmálum eðlisfræðinnar“ í frétt sem birtist í blaðinu og á vefnum þann 15. október 2026.
Fréttin sem um ræðir ber yfirskriftina „Því fleira fólk, því meira til skiptanna“ og í henni er því haldið fram að auðlindir jarðar séu óþrjótandi svo lengi sem öllum sé frjálst að nýta þær án nokkurra takmarkana. „Í raun þarf engar áhyggjur að hafa af auðlindaskorti svo fremi sem fólki sé veitt frelsið til að virkja eigið hugvit til að skapa ný verðmæti og nýjar lausnir,“ segir meðal annars í fréttinni. Því er líka haldið fram, meðal annars í fyrirsögn, að „meðalmanneskjan skapar meiri verðmæti en hún nýtir sjálf“.
Þá er reynt að koma lesandanum í skilning um að óþarfi sé að óttast auðlindaskort eða hafa áhyggjur af framtíðinni, því „sköpunargáfa mannskepnunnar er auðlind sem eru engin takmörk sett“ og þökk sé töfratækni sé ofgnótt hráefnis og orku rétt handan við hornið: „Að smíða frumefni gæti verið innan seilingar þegar tekist hefur að ná góðu valdi á orkuframleiðslu með kjarnasamruna […] og bendir flest til að þess sé ekki langt að bíða að hana megi nota til að framleiða ógrynni orku á hagkvæman hátt.“
Blaðamaðurinn byggir þessa bjartsýni sína á viðtali við Marian Tupy, sem er höfundur bókarinnar Superabundance og félagi hjá Cato-hugveitunni (Cato Institute), alræmdri bandarískri hugveitu sem var meðal annars stofnuð af milljarðamæringnum Charles Koch og aðhyllist nýfrjálshyggju. Starfsemi hugveitunnar hefur meðal annars verið fjármögnuð af olíurisum og tóbaksfyrirtækjum og hún leggst gjarnan gegn hvers kyns aðgerðum sem hafa að markmiði að setja olíuiðnaðinum skorður.
Það er umhugsunarvert að sjá að bandarískir olíurisar hafi svo greiðan aðgang að íslenskum fjölmiðlum í gegnum Cato-hugveituna. Blaðamaður greip til þess ráðs að senda blaðamanni Morgunblaðsins ásamt ritstjórn eftirfarandi skeyti:
„Sæll Ásgeir,
Ég á erfitt með að sjá hvernig ofangreindar staðhæfingar samrýmast grundvallarlögmálum eðlisfræðinnar. Eigum við að draga þá ályktun til dæmis að sjávarauðlindin sé óþrjótandi svo lengi sem útgerðirnar fá að veiða eins mikið og þeim sýnist? Er verið að leggja til afnám kvótakerfisins?
Er sömuleiðis verið að draga í efa að jarðefnaeldsneyti sé takmörkuð auðlind?
Hvað er átt við með því að manneskja geti skapað meiri verðmæti en hún nýtir sjálf? Er verið að halda því fram að maðurinn geti búið til auðlindir úr engu?
Mér finnst merkilegt að á tímum sem einkennast af loftslagsbreytingum, hnignun líffjölbreytni og harðnandi samkeppni um takmarkaðar olíuauðlindir sé stór fjölmiðill á borð við Morgunblaðið, sem fær að auki styrki á kostnað skattgreiðenda, að dreifa þeim skilaboðum að auðlindir séu óþrjótandi og að óþarfi sé að hafa áhyggjur af ofnýtingu þeirra.
Ég skora þess vegna á ykkur að endurskoða þessa grein.“
Blaðamaðurinn neitaði að endurskoða greinina og svaraði því til að „eðli málsins samkvæmt“ væri framsetningin í viðtalinu „einfaldari en í bókinni sjálfri“ en að bókin væri „vandað rit“ og fullyrðingarnar „studdar með sannfærandi rannsóknum og útreikningum“.
Engin svör bárust frá ritstjórninni.
