Fræðir Íslendinga um lestarferðir

Guðrún Ólafsdóttir er áhugamanneskja um lestarferðir og hefur verið að halda námskeið undir yfirskriftinni „Að ferðast með lest“ í endurmenntun Háskóla Íslands síðustu árin. Nýtt námskeið hóf göngu sína þann 29. október og Guðrún segir aðsóknina aldrei hafa verið eins góða. Að þessu sinni var hámarksþátttöku náð (40 nemendur) en námskeiðið er í boði bæði að hausti og vori og bæði í staðnámi og fjarnámi. Á námskeiðinu fjallar Guðrún sérstaklega um næturlestir, sem eru að ganga í endurlífgun lífdaga víða um Evrópu um þessar mundir, ekki síst sem valkostur við flugið á tímum þegar margir ferðalangar leita leiða til að draga úr loftslagsáhrifum ferðalaga. Blaðamaður Umskipta heimsótti Guðrúnu á námskeiðinu og spurði hana út í efni námskeiðsins og reynslu hennar af lestarferðum.

„Einu sinni var ég á ferðinni í næturlest í Evrópu. Þegar ég ætlaði að fara í svefnklefann minn og leggjast til hvílu áttaði ég mig á því að það var kona í klefanum mínum. Ég sagðist vera búin að bóka þennan klefa og hún sagðist hafa gert það líka en svo kom í ljós að ég hafði bókað vitlaust. Ég hafði ætlað mér að bóka einstaklingsklefa en bókaði óvart klefa fyrir tvo sem ég átti að deila með annarri manneskju. Sem betur fer fór vel á með okkur og við fórum að spjalla um daginn og veginn. Hún sagði mér að hún hefði valið að taka næturlest dótturinnar hennar vegna. Dóttirin hafði miklar áhyggjur af loftslagsbreytingum og var búin að segja við hana: „Mamma, þú mátt ekki fljúga!“ og móðirin hlýddi dótturinni auðvitað,“ segir Guðrún og hlær.

Guðrún hefur ýmsar ferðasögur að segja og vill reyndar meina að í lestarferðum sé ferðin sjálf ekki bara lausn til að fara frá A til B heldur órjúfanlegur hluti af upplifuninni. „Þetta er allt annað en að vera í flugvél þar sem maður er eiginlega bara að bíða eftir því að komast á áfangastað. Ég vann um tíma í starfi þar sem ég þurfti að fljúga oft á milli staða og mér fannst þetta stressandi, með allar þessar ferðir á flugvöll, biðraðir, innritanir, öryggisleitir, þrengsli í vélinni, bið eftir ferðatöskum og þess háttar.“

„Stundum fékk ég hins vegar að fara með lest og hreifst af þeim ferðamáta. Það var mun afslappaðra, maður gat gengið um, horft á landslagið út um gluggann, fengið sér eitthvað í veitingavagninum og svo var maður kominn beint í hjarta borgarinnar í stað þess að þurfa alltaf að finna leigubíl eða rútu til að komast frá flugvellinum að áfangastað. Þetta var eiginlega næstum því eins og skemmtisigling.“

„Framboð af næturlestum hefur verið að aukast töluvert á síðustu árum og Guðrún fjallar sérstaklega um fyrirtæki á borð við Nightjet, EuroNight og Caledonian Sleeper sem sérhæfa sig í næturlestum. „Mörgum Íslendingum finnst þessi ferðamáti heillandi en á Íslandi eru engar lestir og margir hafa einfaldlega áhyggjur af því að ruglast á þessum praktísku hlutum.“

Guðrún sýnir yfirlitskort yfir næturlestir fyrirtækisins Nightjet sem tengja margar af helstu borgum Evrópu.

„Hvar og hvernig kaupi ég lestarmiða? Hvernig finn ég rétta pallinn? Hvar á ég að standa á pallinum? Hvernig get ég tryggt að ég sitji í rétta átt miðað við stefnu lestarinnar?“ Þetta eru allt spurningar sem Guðrún segir koma upp reglulega á námskeiðinu og þar er farið vandlega yfir þessi atriði. „Það eru sumir sem hafa einfaldlega aldrei farið í lest, og svo aðrir sem hafa kannski farið með hóp en aldrei einir og treysta sér ekki alveg til að taka skrefið án þess að kynna sér málin betur.

Guðrún byrjaði að kenna námskeiðið fyrir um það bil fimm árum og fram að því hafði aðsóknin verið ágæt (20 til 25 manns á hverju námskeiði) en nú tók aðsóknin allt í einu stökk og námskeiðið er fullbókað. Sjálf byrjaði hún að ferðast með lest fyrir um 10 árum, en hvernig vaknaði áhuginn? „Þetta er góð spurning. Ég hef ekki velt því mikið fyrir mér, þetta kom bara smátt og smátt, mér fannst þetta exótískt og þægilegt og ég heillaðist af þessu einhvern veginn. Síðan vissi ég að Íslendingar væru svo vanir að fljúga alls staðar að þessi valkostur var allt of vanmetinn, og ég áttaði mig á því að hérna var tækifæri til að ráða bót á þessu.“

Í síðasta tölublaði Umskipta var fjallað um skoska lestarfyrirtækið Caledonian Sleeper sem er nú að kanna möguleika á beinum næturlestarferðum frá Skotlandi til meginlands Evrópu. Til viðbótar við Caledonian Sleeper og fyrirtækin sem nefnd voru að ofan var fyrirtækið Nox að hefja rekstur nýlega og býður upp á næturlestarferðir milli Hamborgar og München. Þá áformar fyrirtækið að tengja 100 borgir víðs vegar um Evrópu á næstu 10 árum. Það er sannarlega að opnast nýr heimur fyrir Íslendinga í leit að öðruvísi ferðalögum en Guðrún er reyndur fararstjóri í þessum nýja heimi og tekur hlýlega á móti öllum nýgræðingum…

Guðrún sýnir kort yfir lestarleiðir og bækur sem fjalla um lestarferðalög og næturlestir. Hún fer líka yfir ýmsa þjónustu sem lestarfyrirtæki bjóða upp á og önnur praktísk atriði, svo sem hvernig og hvar er best að kaupa miða, hvar á að standa á lestarpallinum og svo framvegis.