Blórabögglar á tímum vistkreppu
Umhverfisskaði og ofnýting auðlinda geta leitt til efnahagslegrar kreppu. Á krepputímum verður oft vaxandi andúð á minnihlutahópum, sérstaklega þegar stjórnmálamenn grípa til þess að gera slíka hópa að blórabögglum. Nýleg rannsókn hagfræðinga í Bandaríkjunum sýnir að borgarar eru líklegri til að fyrirgefa fjandsamlega hegðun gagnvart innflytjendum á tímum efnahagsþrenginga. Vistkreppa getur því leitt til ofsókna.

Hinn fullkomni blóraböggull
Efnahagskreppum fylgir oft uppgangur stjórnmálaafla sem beina spjótum sínum gegn valdalitlum minnihlutahópum. Þekktasta dæmið úr sögunni eru atburðirnir í Þýskalandi um miðja síðustu öld þegar Weimar-lýðveldið, og síðar þriðja ríkið, innleiddi sífellt harðari lög gegn gyðingum á þeim tíma þegar þjóðin glímdi við kreppuna miklu. Við vitum öll hvernig sú saga endaði.
Minna þekkt dæmi úr nálægri fortíð eru líka merkileg. Í Rúanda var hrun kaffiverðs ein helsta orsök þjóðarmorðanna árið 1994 og í Bandaríkjunum náði Donald Trump kjöri til forseta á grundvelli stefnu sem kenndi innflytjendum um stöðnun millistéttarinnar. Fræðimenn hafa líka fært rök fyrir því að heilbrigðiskreppur geti valdið vaxandi andúð í garð innflytjenda (á fyrstu stigum COVID-19-faraldursins kenndi Trump innflytjendum um útbreiðslu veirunnar).

Hvers vegna leiða efnahagsþrengingar svo oft til eineltishegðunar gagnvart minnihlutahópum? Ein skýringin sem oft hefur verið nefnd er sú að gremjan sem efnahagskreppur valda leiði borgara til að leita að sökudólgum. Tækifærissinnaðir stjórnmálamenn sem hafa ekki áhuga á að ráðast að rót vandans freistast þá frekar til að ráðast á garðinn þar sem hann er lægstur og grípa í auðsótta blóraböggla. Innflytjendur verða iðulega fyrir valinu enda uppfylla þeir gjarnan öll fjögur skilyrði sem gera samfélagshóp að fullkomnum blóraböggli:
- Þeir eru í minnihluta og þar með ólíklegri til að geta varið sig gegn eineltinu.
- Fæstir þeirra hafa kosningarétt og því þurfa stjórnmálamenn sem ráðast gegn þeim ekki að óttast að missa atkvæði í kosningum.
- Þeir tilheyra gjarnan neðri lögum samfélagsins og hafa þar með mjög takmarkaðan aðgang að pólitískum eða efnahagslegum áhrifum.
- Fordómar gegn innflytjendum krauma alltaf undir yfirborðinu og iðulega þarf ekki nema lítinn neista til að kveikja stórt bál (ekki sakar ef hópurinn er dökkur á hörund).
Vistkreppa, efnahagsleg stöðnun og vaxandi andúð í garð innflytjenda
Á síðustu áratugum hefur ríkt efnahagsleg stöðnun og jafnvel samdráttur í mörgum ríkjum Evrópu og í Bandaríkjunum. Rætur þessarar stöðnunar eru að miklu leyti umhverfislegar: kröftugur hagvöxtur síðustu aldar byggðist fyrst og fremst á ofgnótt jarðefnaeldsneytis, sér í lagi olíu, en eftir því sem auðlindin verður sjaldgæfari reynist erfiðara að viðhalda vextinum. Spennan sem vistkreppan veldur brýst út í reglulegum efnahagskreppum sem dúkka upp með sífellt styttra millibili. Þannig tengist vaxandi andúð í garð innflytjenda vistkreppunni með beinum hætti og því miður virðist sem sagan frá Þýskalandi sé að einhverju leyti að endurtaka sig (þó í mildara formi – hingað til).
Fjölmörg ríki Evrópu hafa jafnt og þétt verið að herða á innflytjendastefnu sinni og stjórnmálaleiðtogar úr flestöllum áttum hafa verið að tileinka sér í sífellt meira mæli niðrandi málflutning sem hingað til hafði einskorðast við fjarhægri flokka.
Kreppa veitir fordómunum skjól
Þrátt fyrir útbreiddar staðalímyndir um að innflytjendur „steli störfum“ innfæddra, þrýsti niður launum, leggist á velferðarkerfið eða valdi aukinni glæpatíðni er erfitt að réttlæta slíkar áhyggjur á meðan atvinnuleysi er lágt, laun fara hækkandi, atvinnutækifærum fjölgar og glæpatíðni er lág. Þegar efnahagsvindar snúast verður gjarnan aukið atvinnuleysi, samdráttur í kaupmætti og færri atvinnutækifæri. Í slíku andrúmslofti er auðveldara að réttlæta neikvæða afstöðu gagnvart innflytjendum með vísan í áhyggjur af versnandi lífsskilyrðum.
Við þetta bætist að iðulega bítur atvinnuleysi verst á innflytjendum þar sem þeir vinna oft ófaglærð störf og eru þar með í fremstu víglínu vinnumarkaðarins á krepputímum. Þeir eiga þar að auki erfiðara með að komast fram fyrir röðina í samkeppninni um störf, ýmist vegna tengslaleysis, tungumálaörðugleika eða fordóma. Niðurstaðan er þá sú að atvinnuleysi verður hæst hjá innflytjendum og þar sem atvinnuleysi eykur líkur á afbrotum getur farið svo að bæði atvinnuleysi og glæpatíðni mælist hæst hjá innflytjendum. Sú niðurstaða verður síðan að vatni á myllu fordómanna því nú geta menn sagt: „Ég sagði ykkur það!“
Innflytjendur eru þá sakaðir um dugleysi, um að leggjast á velferðarkerfið, neita að aðlagast og stefna öryggi innfæddra í hættu. Lausnin við því er auðvitað að herða á innflytjendalögum, innleiða kerfisbundna mismunun og einangra innflytjendur enn frekar en þegar er orðið.
Slíkur vítahringur getur varla endað farsællega…
Blórabögglar á krepputímum
Fyrir nokkrum árum birtist rannsókn nokkurra hagfræðinga á tengslum efnahagskreppu og eineltis gagnvart minnihlutahópum (Scapegoating during crises). Fræðimennirnir vildu hanna tilraun með það að markmiði að komast að því hver þessi tengsl væru og hvort niðurstöðurnar myndu styðja við kenninguna um að kreppur gætu aukið á fjandsamlega hegðun gagnvart innflytjendum með því að veita fordómafullum einstaklingum trúverðuga réttlætingu fyrir skoðunum sínum.
Í tilrauninni fengu um 2000 bandarískir þátttakendur skrifaða lýsingu á ímyndaðri manneskju, „Mike“ að nafni. „Mike er verkamaður sem bjó við öruggt og vel launað iðnaðarstarf fyrir fjármálakreppuna árið 2008. Í fjármálakreppunni verður verksmiðjan sem Mike starfaði hjá gjaldþrota og Mike missir vinnuna,“ byrjaði sagan. Seinni hluti sögunnar um Mike var hins vegar útfærður í tveimur ólíkum útgáfum og þátttakendum í tilrauninni var skipt í tvo hópa sem fengu hver sína útgáfu. Í báðum útgáfum gekk Mike til liðs við samtök sem börðust gegn innflytjendum. Hjá einum hópi var sagan hins vegar útfærð þannig að Mike gekk í samtökin „skömmu fyrir fjármálakreppuna“, en hinum hópnum var sagt að hann hefði gengið í samtökin „skömmu eftir fjármálakreppuna“.
Þessum tveim útgáfum var ætlað að stýra því með skýrum hætti hvort Mike hefði trúverðuga ástæðu til að ganga í samtökin sem börðust gegn innflytjendum. Ef Mike hefði gengið í samtökin fyrir fjármálakreppuna hlyti ákvörðun hans að hafa verið knúin áfram af öðrum þáttum en kreppunni og atvinnuleysinu sem fylgdi í kjölfarið. Að lokum voru þátttakendur spurðir: „Hvers vegna heldur þú að Mike hafi gengið til liðs við þessi samtök? 2–3 setningar ættu að duga.“
Í ljós kom að í seinni útgáfunni (Mike gengur til liðs við samtökin eftir kreppuna) voru svarendur tvöfalt ólíklegri til að nefna fordóma eða kynþáttahyggju sem ástæðu fyrir hegðun Mikes (aðeins 5% í stað 10%) og voru líklegri til að nefna atvinnutengdar áhyggjur.
Á tímum efnahagsuppgangs eru innflytjendur nytsamir sem ódýrt og tamt vinnuafl og yfirleitt reynist auðvelt að halda fordómum undir yfirborðinu. Á tímum stöðnunar og kreppu skríður tortryggnin út úr sinni holu og allt í einu þykir smekklegt að leggja innflytjendur í einelti. „Þeir sem leggja mat á hvatirnar að baki hegðun sem beinist gegn minnihlutahópum standa nú frammi fyrir þeim vanda að greina merkið frá suðinu: hegðunin kann að stafa af útlendingaandúð, en hún getur einnig stafað af raunverulegum áhyggjum af því að missa vinnuna, geta ekki séð fyrir fjölskyldu sinni o.s.frv. Útlendingahatarar geta því falið sig í hópi fólks með slíkar áhyggjur, sem gerir þeim kleift að tjá andúð sína opinberlega með minni félagslegum tilkostnaði,“ segja höfundar rannsóknarinnar.
