Arnhildur Pálmadóttir: „Þurfum að horfast í augu við veruleikann“

Arnhildur Pálmadóttir arkitekt hlaut Umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2024 og var valin borgarlistamaður Reykjavíkur fyrr á þessu ári. Hún vill með verkum sínum vekja athygli á þeim fjölmörgu lausnum sem standa byggingageiranum til boða þegar kemur að því að lágmarka neikvæð umhverfisáhrif starfseminnar. Í kaffihúsaspjalli við blaðamann Umskipta segir hún margar hindranir enn standa í vegi breytinga, ekki síst sú staðreynd að hvatarnir eru ekki til staðar.

Arnhildur fór snemma að hafa áhuga á hönnun og smíði bygginga og eins og oft vill verða voru foreldraáhrifin ráðandi þáttur. „Pabbi minn var byggingarverkfræðingur og byggingafulltrúi. Mér þótti skemmtilegt að sjá hann teikna. Umræðan við matarborðið snerist líka oft um þessi mál og smátt og smátt held ég að þetta hafi orðið til þess að kveikja áhugann hjá mér. Mér þótti líka gaman að byggja mér kofa í frítímanum mínum,“ bætir hún við hlæjandi.

Arnhildur lærði fyrst verkfræði á Íslandi. Hún vann á verkfræði- og arkitektastofum á Íslandi og í Noregi um tíma áður en hún fór svo í BA-nám í arkitektúr við Listaháskóla Íslands, þaðan sem hún útskrifaðist árið 2006. Að því loknu fór hún í framhaldsnám til Barcelona en þar segir hún að áhuginn á umhverfisáhrifum mannvirkjagerðar hafi aukist, enda var lögð mikil áhersla á þá hlið fræðinnar í skólanum í Barcelona. Hún útskrifaðist árið 2009 og kom síðan heim aftur í miðri efnahagskreppu, þegar byggingarstarfsemi lá að mestu leyti niðri og litla vinnu var að fá í þeirri grein. Hún vann sjálfstætt í ýmsum arkitekta- og hönnunarverkefnum auk þess að starfa hjá PK arkitektum um tíma, en að lokum stofnaði hún eigin hönnunarstofu árið 2018 undir heitið Sap Arkitektar.

Prófar sig áfram með endurnýtingu á byggingarefni

Eitt af hennar fyrstu verkefnum sem var með fyrirfram skilgreind markmið tengt umhverfismálum var 500 fermetra búsetukjarni við Háteigsveg 59 sem hún hannaði fyrir Félagsbústaði. Eitt af meginmarkmiðunum sem lágu til grundvallar var að heildarkolefnisspor hússins yrði minnst 30% lægra en hjá sambærilegum mannvirkjum án þess að það kæmi niður á gæðum eða kostnaði. Árangursríkasta aðferðin til þess að ná því markmiði var að nota eins lítið efni og hægt var og þá helst endurnýta efni annars staðar frá, þar sem 45% af losun frá íslenskri mannvirkjagerð er vegna byggingarefna (sérstaklega sements- og stálframleiðslu).

Háteigsvegur 59. Afgangstimbur var endurnýtt sem utanhússklæðning eftir að hafa verið meðhöndlað með japanskri brennsluaðferð.

Afgangar af steinflísum sem féllu til við byggingu Smiðju, skrifstofubyggingar Alþingis, voru nýttir sem efni í gólf í anddyri hússins. Afgangstimbur frá byggingaverslunum var endurnýtt sem utanhússklæðning eftir að hafa verið meðhöndlað með japanskri brennsluaðferð sem nefnist Yakisugi. Að lokum reyndist kolefnissporið vera 53% lægra en hjá hefðbundnum byggingum.

Arnhildur segir að það mætti auðveldlega lækka kolefnisspor íslenska mannvirkjageirans með frekar lítilli fyrirhöfn, til dæmis með því að endurnýta efni sem fellur til víða í byggingariðnaði. „Efnin eru nú þegar aðgengileg og gæði þeirra efna sem nú er hent eru mikil. Hugmyndafræðilega er þetta einnig góð leið til að vekja athygli á vandamálinu. Í stað þess að fornleifafræðingur finni þessi efni grafin í sorphaugum eftir 200 ár, þá blasa þau við í útveggjum bygginga frá þessum tíma. Ég held að þetta sé tímabundin “auðlind” eða ég vona það vegna þess að fyrirtæki verða að fara betur með efnin sín, henda minna og nýta betur. Það er allt of ódýrt að henda efnum í dag.“

Utanhússklæðningin „bökuð“ eftir japanskri aðferð.

Það mætti líka notast í meira mæli við lágkolefnissteypu. „Steypuframleiðendur bjóða upp á steypu sem inniheldur minna magn af sementi og notast við flugösku í stað sements. Flugaska er hliðarafurð frá kolaiðnaðinum og að því leyti er það engin töfralausn enda erum við að reyna að hætta kolabrennslu en á meðan það er í boði er skynsamlegt að nota það til að draga úr losun í byggingariðnaði.“

Erfitt að uppræta rótgrónar venjur

Því miður er lágkolefnissteypa enn frekar lítið notuð þar sem margir verkfræðingar láta sér nægja að nota hefðbundna steypu af gömlum vana.

„Það mætti einnig hanna burðarvirkið með nægjusemi að leiðarljósi. Það er oft notað óþarflega mikið efni í burðarvirkið vegna þess að verkfræðingar vilja gjarnan vera með belti og axlabönd, en hin hliðin á peningnum er að þetta kallar á mikla efnisnotkun,“ segir Arnhildur. „Hraðinn sem einkennir nútímabyggingariðnað getur líka verið vandamál. Lágkolefnissteypa þarf tvo daga til að harðna í stað eins og margir kjósa að nota venjulega steypu bara til að spara sér tíma, en það má alltaf skipuleggja sig öðruvísi.“

„Þá geta kröfur um vottanir líka verið hindrun. CE vottanir á gluggum eru verksmiðjuframleiðsluvottanir sem eiga illa við þegar sérsmíða á glugga til dæmis í ákveðið gamalt hús, eða sérsmíða glugga úr endurnýttu efni þar sem engin annar verður eins. Þessar vottanir eru dýrar og flækja verkið að óþörfu. Betra væri að krefjast frekar prófana í slíkum tilvikum. En hér var rannsóknarstofa byggingariðnaðarins lögð niður og það hefur tekið langan tíma að fá eitthvað í staðinn sem gæti gert þetta kleift. Yfirvöld hjá ESB eru reyndar að endurskoða þessar vottanir núna einmitt út af þessum atriðum.“

Betri byggingarefni eru í sjálfu sér ágæt en duga skammt ef ætlunin er að byggja sífellt meira. Ef kolefnissporið á hvert hús lækkar um 30% en við byggjum um leið 30% fleiri hús, erum við þá ekki að elta skottið á sjálfum okkur?

„Já, þetta er líka hluti af vandanum, við þurfum að byggja minna af nýjum byggingum og reyna frekar að endurgera og aðlaga þau hús sem við erum með, enda standa mörg hús tóm hér á höfuðborgarsvæðinu til dæmis. Það er líka alls óvíst að fólksfjölgun verði áfram jafn mikil og hún hefur verið síðustu árin, svo að það mætti alveg stíga aðeins á bremsuna hvað varðar nýbyggingar (sem er reyndar nú þegar að gerast sjálfkrafa að einhverju leyti). Venjan hefur verið sú að jafna eldri hús við jörðu og byggja nýtt í staðinn. Það hefur verið bæði fljótlegra, einfaldara og ekki síst ódýrara vegna þess að það er vinnufrekt ferli að taka hús í sundur á meðan stórvirkar vinnuvélar geta rifið hús á örskotsstundu og það er svo ódýrt að urða, jafnvel efni sem er í sæmilegu ástandi.“

Mættum læra af fortíðinni

„Við höfum lengi litið niður á byggingaraðferðir fortíðarinnar. Torfbærinn hefur til dæmis nánast orðið að einhverju skammaryrði, en í raun getum við lært ýmislegt af þessari fortíð því þar var endurnýting og nægjusemi í fyrirrúmi. Við höfum verið að rannsaka þessar byggingaraðferðir og reikna út kolefnisspor torfbæjarins í samstarfi við Grænni Byggð (frjáls félagasamtök aðila í byggingariðnaði) og það kom í ljós að þessi hús voru því sem næst kolefnishlutlaus ef upphitunin er undanskilin. Það var gríðarlega góð nýting á efninu, sem var sjaldan sótt í meira en 7 kílómetra fjarlægð frá byggingarstað og það var ekkert óalgengt, þegar menn voru að flytja, að húsin væru jafnvel tekin í sundur og sett saman aftur á nýja staðnum. Svo lærðu allir bændur að sinna viðhaldi þannig að eigendur og íbúar hverju sinni báru ábyrgð á því að halda húsinu í góðu ástandi.“

„Þrátt fyrir allt voru þetta ágætis hús á mælikvarða þess tíma þótt okkur finnist þetta nú ekkert merkilegt miðað við kröfur nútímans. Gólfflöturinn nýttist líka miklu betur. Rannsóknir hafa sýnt til dæmis að í Glaumbæ í Skagafirði bjuggu ellefu manns árið 1931 og dvöldu þeir mestan hluta tímans í baðstofunni, sem var 52 fermetrar. Ef aðeins er miðað við baðstofuna voru 2,5–3 fermetrar af rými á hvern einstakling. En miðað við þá þróun sem sést hefur á íbúðarrými á mann má áætla að það séu nú að meðaltali meira en 60 fermetrar á hvern einstakling hér á landi.

Frakkastígur 1 er eitt af síðustu verkum Arnhildar og Sap arkitekta og á að hýsa verslunar- og íbúðarhúsnæði. Húsið er byggt úr lágkolefnissteypu, endurnýtt efni er notað við klæðningu og endurnýtt gler er notað í sameignarglugga. Kolefnisspor byggingarinnar var 56% lægra en hjá viðmiðunarhúsi.

Þurfum að bæta regluverkið

„Sama hvort um er að ræða steypuna, endurnýtinguna eða aðrar aðferðir rekumst við alltaf á sama vandann: það eru fáir hvatar til staðar. Það er nú gerð krafa um að kolefnisspor nýrra bygginga verði reiknað út við hönnun hússins (svokallaðar lífsferilsgreiningar) en í reynd má kolefnissporið vera eins hátt og hönnuðinum sýnist án þess að það hafi nokkrar afleiðingar. Ég myndi vilja sjá regluverk sem tryggir að byggingar sem uppfylla ákveðnar kröfur og haldast undir ákveðnu losunarþaki fái til dæmis afslátt af byggingargjöldum, eða öfugt, að hús sem fara yfir ákveðin mörk fái á sig einhvers konar álag. Frekar en að búa til einkarekin vottunarkerfi mætti láta einfaldan gátlista fylgja með byggingareglugerðinni. Það er svolítið yfirborðsklór í þessum umhverfisvottunum sem við erum með núna. Þær eru bæði dýrar og ógagnsæjar og taka ekki endilega á rót vandans. Sama með niðurrif og endurnýtingu eldri bygginga, þar vantar líka betra regluverk.“

„Ef við hegðum okkur ekki betur í umhverfismálum núna og fjárfestum í þeim breytingum sem þurfa að verða þá mun falla á okkur gríðarlegur kostnaður tengdur loftslagsbreytingum á næstu árum, bæði vegna þess að við erum ekki að standa við alþjóðlegar skuldbindingar okkar og svo líka vegna breytinga á náttúru sem hafa áhrif á hið manngerða umhverfi og munu kosta okkur mikið.“

„Við sem arkitektar þurfum líka að hugsa út fyrir kassann og benda á ýmsan ávinning af því að gera hlutina öðruvísi. Ég hef til dæmis lagt áherslu á að hús þurfi að hafa sögu og sál og hús sem eru endurnýtt eða byggð úr endurnýttu efni öðlast sjálfkrafa slíka sál. Þær segja sögu sem nýjar byggingar geta ekki sagt.“

Frakkastígur 1.

Reynir að fá fólk til að hugsa út fyrir kassann

Verk Arnhildar vöktu athygli nýlega eftir að verkefni Sap arkitekta, Hraunmyndanir (e. Lavaforming), var valið framlag Íslands á Feneyjatvíæringnum í arkitektúr 2025. Þetta var í fyrsta sinn sem Ísland tók þátt í Feneyjatvíæringnum í arkitektúr með opnu kalli. Verkefnið Hraunmyndanir var saga framtíðarsamfélags sem þróar framsæknar lausnir í mannvirkjagerð. Arnhildur sá fyrir sér að hraunrennsli yrði beislað, nýtt sem byggingarefni og með þessu tækist að umbreyta staðbundinni ógn í auðlind.

„Lavaforming er bæði hugsuð sem raunhæf lausn og tilgáta sem hefur það að markmiði að vera hvatning til að hugsa út fyrir rammann og að ýta á nýsköpun og tengingar á milli skapandi greina og vísinda og tækni. Ég held að ímyndunaraflið sé lykill að breytingum.“

En hvernig sér Arnhildur framtíðina fyrir sér? Hefur hún áhyggjur af loftslagsbreytingum og er hún bjartsýn á að okkur takist að leysa vandann?

„Ég er bjartsýn að eðlisfari og nota verkefnin mín til að benda á og þrýsta á breytingar en ég hef ekki mikla trú á mannkyninu satt að segja.“ En þótt Arnhildi og blaðamanninum hafi ekki tekist að bjarga heiminum á þessum blauta morgni í október má alltaf hugga sig við það að kaffibollinn hafi verið nokkuð góður…

Frakkastígur 1. Vegrið af þjóðvegum varð að útveggjaklæðningu, gler úr turninum við Smáratorg fékk nýtt hlutverk og steinar úr grunni hússins urðu að klæðningu á jarðhæð.